Síða 1 af 1
Heyrist bara í örðrum hátalaranum
Sent: Sun 09. Jan 2005 11:45
af ammarolli
Jæja veit ekki hvar ég á að setja þetta inn enn skipir ekki...
Það heyrist bara í örðrum hátalaranum og ég er ekkert smá pirraður.
er með nýjasta Direct, hvað gæti verið að ?
Sent: Sun 09. Jan 2005 11:55
af MezzUp
„Spuring er ekki nógu góð ef að henni þarf að svara með spurningu...........“
Er „Balance“ rétt stillt í „Volume Control“?
Eru hátalarnir örugglega rétt/vel tengdir?
Virkar hátalarnir rétt með einhverju öðru(t.d. geislaspilara)?
Ertu með réttan driver fyrir hljóðkortið?
Ef að það fylgdi stillingarforrit með hljóðkortinu, er það rétt stillt?
Gerist þetta í öllum forritum eða bara sumum?
Ef svo er, í hvaða forritum?
Hefur þetta alltaf verið svona?
Ef ekki, hvenær byrjaði þetta?
Hvað gerðirðu til þess að þetta byrjaði?
Sent: Sun 09. Jan 2005 13:03
af hahallur
Ég var líka geðveitk lengi að reyna að laga þetta á 5.1 kerfi hjá mér.
Þangað til að ég fattaði að bassaboxið þar sem maður tengir allt í var með nokkrum slittnum vírum
Sent: Sun 09. Jan 2005 14:52
af ammarolli
Er „Balance“ rétt stillt í „Volume Control“? það veist ég ekki.... hvernig gái ég að því ?
Eru hátalarnir örugglega rétt/vel tengdir? Jamm..
Virkar hátalarnir rétt með einhverju öðru(t.d. geislaspilara)? já hinni tölvuni
Ertu með réttan driver fyrir hljóðkortið? það veit ég.. finn enga..:S
Ef að það fylgdi stillingarforrit með hljóðkortinu, er það rétt stillt? neibbs :/
Gerist þetta í öllum forritum eða bara sumum? öllum.
Ef svo er, í hvaða forritum?
Hefur þetta alltaf verið svona? já allltaf
Ef ekki, hvenær byrjaði þetta?
Hvað gerðirðu til þess að þetta byrjaði?
Sent: Þri 11. Jan 2005 15:41
af ammarolli
hmm er einhver sem getur hjálpað mér ?
Sent: Þri 11. Jan 2005 15:54
af Pandemic
Sent: Þri 11. Jan 2005 17:59
af Birkir
Pandemic skrifaði:go
home
Ég skil ekki þetta attitude... Hann gerði svosem ekki mikið rangt, hann útskýrði vandamálið kannski ekki nógu vel en þegar hann var spurður út í það þá svaraði hann eflaust því sem hann gat svarað. Hann veit kannski ekki hvernig maður stillir balance í volume control en það þýðir ekki að hann megi ekki spyrjast fyrir um vandamálið.
P.S. Þú stillir Balance með því að fara í "Volume Control". Þú ferð þangað með því að tvíklikka á gráa hátalarann niðri í taskbar (Neðst í hægra horninu).
Sent: Þri 11. Jan 2005 18:23
af Zaphod
Birkir skrifaði:Pandemic skrifaði:go
home
Ég skil ekki þetta attitude... Hann gerði svosem ekki mikið rangt, hann útskýrði vandamálið kannski ekki nógu vel en þegar hann var spurður út í það þá svaraði hann eflaust því sem hann gat svarað. Hann veit kannski ekki hvernig maður stillir balance í volume control en það þýðir ekki að hann megi ekki spyrjast fyrir um vandamálið.
P.S. Þú stillir Balance með því að fara í "Volume Control". Þú ferð þangað með því að tvíklikka á gráa hátalarann niðri í taskbar (Neðst í hægra horninu).
Alveg sammála Birki , attitudeið hjá Pandemic á frekar heima á bt.is , og spáðu í því að þú hefðir verið fljótari að svara honum um hvar maður stillir þetta en að gera þennan slappa link á bt
Sent: Þri 11. Jan 2005 18:27
af Pandemic
Sent: Mið 12. Jan 2005 19:02
af ammarolli
huh... ég fattaði ekki hvað var verið að meina með því þarna Balance
annars nei ekki komið lag.. búinn að dl drivernum..
Sent: Mið 12. Jan 2005 20:04
af ParaNoiD
virka aðrir hátalarar á sama tengi ?
get alveg ýmindað mér að tengið sé eitthvað skemmt
Sent: Mið 12. Jan 2005 22:56
af Pandemic
Oft þarf hugbúnaðurinn með hljóðkortinu á auto dedecta hvernig hlóðsystem þú ert með t.d með REALTEK kubbasettið á mínu móðurborð þarf að ítta á takka í hugbúnaðinum þannig að hann fatti hvort ég sé með microphone,5.1,power speakers etc.
Checkaðu hvort það sé ekki einhvað þannig forrit.
Annars er frábært ef þú myndir senda okkur Screenshot af volume control hjá þér og hafa sem flesta möguleika þar þannig að við getum skoðað hvort einhvað sé vitlaust stillt.
Edit: farðu í control panel í windows og þar í Sound and Audio devices farðu þar í Speak Volume og hafðu allt í high þar að segja báðar stikurnar. Og við hliðina á því er Advanced takki sem þú getur stillt hvernig hlóðkerfi þú ert með.
Sent: Lau 15. Jan 2005 00:06
af ammarolli
jæja afskaið hvað ég svara seint enn volme control Screenshotið
Sent: Lau 15. Jan 2005 15:49
af Snorrmund
þar sem "front" er .. setja balanceið í miðjuna(sliderinn fyrir neðan front sem er alla leið til hægri núna)
prófa það ?
Sent: Lau 15. Jan 2005 20:48
af ammarolli
Já.. það virkaði, takk kærlega
Sent: Lau 15. Jan 2005 21:04
af Snorrmund
Það var ekkert
Sent: Sun 16. Jan 2005 00:28
af hahallur
Þetta var ansi skondin bilun, hún ætti allveg heima á BT.is en annars hef ég lennt í eins veseni með mic td, það var álíka heimskulegt.
Sent: Sun 16. Jan 2005 16:38
af Birkir
Af hverju ætti hún frekar heima á bt.is en hérna?
Það voru
miklu meiri líkur á að hann fengi lausn við þessu hér en á bt spjallinu. Hann gerði bara rétt í því að spyrja hér en ekki að leita ráða hjá einhverjum vitleysingum á bt spjallinu. Hann hafði líka vit á að vanda póstinn og reyna að koma öllum upplýsingum til skila þannig að ég skil ekki hvað menn eru endalaust að væla.
Sent: Sun 16. Jan 2005 16:46
af skipio
Sammála Birki. Maður þarf ekkert að skammast sín fyrir að kunna ekki eitthvað enda byrja allir á því að vera byrjendur.
Að þora ekki að spyrja er hinsvegar eitthvað sem er verulega slæmt!
Og ammarolli, ekki fara á BT-spjallið ef þú vilt læra eitthvað. *Horror*
Haltu þig frekar hérna hjá okkur og fyrr en varir verður þú líka farinn að svara spurningum eins og sannur Vaktari.