Síða 1 af 1
Utanlandstraffík hæg ??
Sent: Fim 24. Mar 2016 19:09
af Voidpointer
Kvöldið spjallverjar. Mig langaði til að forvitnast hvort að einhver annar er að lenda í hægagangi erlendis frá, ég er hjá Hringdu. Búinn að taka nokkur speedtest (speedtest.net, testmy.net) þar sem að ég fæ alveg fínan hraða innanlands en svona 10% af því sem ég á að fá erlendis.
Any ideas ?
Re: Utanlandstraffík hæg ??
Sent: Fös 25. Mar 2016 00:50
af gutti
Virkar fínt hjá mér er líka hjá hringdu vísu ljósnet en ekkert slow nota netflix wow
allt kvöld ekkert slow net
Re: Utanlandstraffík hæg ??
Sent: Fös 25. Mar 2016 21:00
af teitan
Ég er líka hjá Hringdu og ég hef verið að lenda í að netflix, hulu og annað streymi er að hökta undanfarið og núna áðan datt internetið út í 15-20 mín (hefur líka gert það nokkrum sinnum undanfarnar vikur.).
Ég prófaði að gera hraðapróf núna eftir að það kom inn aftur og ég er að ná fullum hraða innanlands og fullum upload hraða til útlanda en eftir því hvaða server ég prófa þá er ég að ná 15-40% hraða í utanlandsdownloadi.
Re: Utanlandstraffík hæg ??
Sent: Fös 25. Mar 2016 22:31
af gutti
það er eitthvað vesen með netflix miða hjá mér núna nær ekki að loada video link samband við netflix vesen
http://downdetector.com/status/netflixps virkar smá í kvöld svo ekkert meir eins og er
Re: Utanlandstraffík hæg ??
Sent: Lau 26. Mar 2016 00:08
af HringduEgill
Útlandasambandið hefur verið í toppmálum en við höfum heyrt af vandamálum í tengslum við Netflix. Það virðist hafa byrjað á svipuðum tíma og Netflix tilkynnti að það myndi leitast við að skerða aðgengi í gegnum VPN og DNS þjónustur. Ef þið eruð að nota slíkar þjónustur megiði endilega prufa að slökkva á þeim til að sjá hvort vandamálið lagist.
Re: Utanlandstraffík hæg ??
Sent: Lau 26. Mar 2016 18:36
af Tiger
Er hjá Símanum og ekki hægt að stream-a Sky Now nema í 2sec í einu.
Re: Utanlandstraffík hæg ??
Sent: Lau 26. Mar 2016 21:54
af kizi86
ég er hjá hringiðunni, og utanlandstraffíkin er búin að vera skelfileg síðustu dagana.. er kannski að fá svona 1MB/sek..
Re: Utanlandstraffík hæg ??
Sent: Mán 28. Mar 2016 11:21
af Danni V8
Er hjá Símanum og netið er komið í algjört rugl í dag. Sumar síður virka en eru slow, aðrar virka ekki neitt. Íslenskar síður virðast virka, og YouTube (bara í sd og mjög slow samt). Facebook virkar ekkert. Síður sem ég nota fyrir vinnuna eru óaðgengilegar.
Þetta er alveg óþolandi!
Re: Utanlandstraffík hæg ??
Sent: Mán 28. Mar 2016 12:51
af emmi
Allt í góðu lagi hjá Símafélaginu.
Re: Utanlandstraffík hæg ??
Sent: Mán 28. Mar 2016 12:52
af Viggi
ljósnet hjá hringdu og í góðu lagi með hana hér
Re: Utanlandstraffík hæg ??
Sent: Mán 28. Mar 2016 16:23
af depill
Allt í góðu hjá mér hjá Símanum ( VDSL 100 meg )
Re: Utanlandstraffík hæg ??
Sent: Mán 28. Mar 2016 22:27
af wicket
Er hjá Símanum og allt í húrrandi næsheitum yfir páskana, bæði niðurhal, streymi og online spilun.