Síða 1 af 1

Wan port is unplugged!

Sent: Sun 20. Mar 2016 22:08
af Njall_L
Sælir vaktarar

Lenti í því núna í kvöld að allt internet hætti að virka hjá mér. Prófaði þetta klassíska, endurræsa router og ljósleiðarabox en án árangurs. Öll tækin hjá mér virðast ná tengingu við router svo að ég loggaði mig inná hann og þá blasir villan Wan port is unplugged fyrir mér. Ég prófaði að skipta um snúru á milli routers og ljósleiðarabox en það lagaði ekki vandamálið. Er búinn að prófa að gera factory reset á router en lagar það heldur ekki vandamálið.

Nú spyr ég bara hvort að einhver viti hvað gæti verið í gangi. Routerinn er þessi klassíski TP Link frá Hringdu og ljósleiðaraboxið frá Gagnaveitu Reykjavíkur

Re: Wan port is unplugged!

Sent: Sun 20. Mar 2016 22:12
af einarth
Sæll.

Næsta skref væri mjög einföld bilana-greining:

Ef þú tengir eitthvað tæki með net-porti (fartölvu/sviss) við wan port á router - kemur ljós?
Sömuleiðis - ef þú tengir viðkomandi tæki við port 1 á ljósleiðaraboxinu - kemur ljós?

Kv, Einar.

Re: Wan port is unplugged!

Sent: Sun 20. Mar 2016 22:22
af Njall_L
einarth skrifaði:Sæll.

Næsta skref væri mjög einföld bilana-greining:

Ef þú tengir eitthvað tæki með net-porti (fartölvu/sviss) við wan port á router - kemur ljós?
Sömuleiðis - ef þú tengir viðkomandi tæki við port 1 á ljósleiðaraboxinu - kemur ljós?

Kv, Einar.

Sæll og takk fyrir skjót svör

Ef að ég tengi tölvuna hjá mér beint í boxið með nýrri snúru þá segir Windows mér að Network Cable sé unplugged og vill ekki tengast í gegnum Ethernet. Einnig breytast ljósin á boxinu ekki neitt en það lítur svona út

20160320_222102.jpg
20160320_222102.jpg (2.13 MiB) Skoðað 1188 sinnum

Re: Wan port is unplugged!

Sent: Sun 20. Mar 2016 22:24
af KermitTheFrog
En ef þú pluggar í port 2? En 3 eða 4?

Re: Wan port is unplugged!

Sent: Sun 20. Mar 2016 22:26
af Njall_L
KermitTheFrog skrifaði:En ef þú pluggar í port 2? En 3 eða 4?

Sama sagan. Skiptir engu máli hvaða plögg ég nota

Re: Wan port is unplugged!

Sent: Sun 20. Mar 2016 22:30
af einarth
Sæll.

Hljómar eins og bilað ljósleiðarabox - gætir þó staðfest það endanlega með nokkrum aðgerðum:

Færðu "link" á fartölvuna ef þú tengir hana í WAN port á router?

Á ljósleiðaraboxinu eru ljósin fyrir portin á portunum sjálfum svo það ættu ekki að breytast ljós framan á tækinu - heldur undir því (litil led ljós við hvert port) - getur prófað að staðfesta að það komið ekki ljós á portið sjálft (ef þú nærð að sjá það með einhverjum hætti þarna við gólfið).

Ef það er staðfest að það kemur ekki link móti ljósleiðaraboxinu en kemur móti wan port á router - þá gætir þú prófað að smella frontinum af ljósleiðaraboxinu og smella honum á aftur (togar neðst í tækið þar sem net snúrur tengjast). Það gæti mögulega verið ekki nógu vel smellt á sem orsakar sambandsleysi.

Kv, Einar.

Re: Wan port is unplugged!

Sent: Sun 20. Mar 2016 22:33

Mér sýnist því bara ekki hafa verið smellt nógu vel saman. Fór og ýtti á framhlutann og þá heyrðust klikk og samskiptaljós í kringum portið fóru í gang. Næ núna eðlilegu sambandi eins og áður fyrr. Mér finnst samt skrýtið að svona gerist því að það var ekkert verið að eiga við boxið, verð bara í sambandi við GR ef að þetta verður langvarandi vandamál.

Annars færð þú stórt kúdos Einar sem starfsmaður GR að aðstoða fólk svona á öllum tímum sólahrings. Þakka kærlega fyrir framúrskarandi þjónustu.

Re: Wan port is unplugged!

Sent: Sun 20. Mar 2016 22:42
af einarth
Flott að heyra.

Þetta er yfirleitt ekki viðvarandi vandamál - oftast hefur tækinu ekki verið smellt nógu vel á í byrjun eða þá að einhver hefur rekið sig í það.

Kv, Einar.