Síða 1 af 2
Flottur nethraði - mont!
Sent: Fös 11. Mar 2016 14:06
af GuðjónR
Smá mont!
Ákvað að setja upp leik sem tekur 54.4GB en áður en ég ýtti á INSTALL þá kom upp að áætlaður tími væri um 18. klukkutímar.
Það tók innan við 13 mínútur að klára ferlið, þetta er hálf óraunverulegt.
Gæti ekki verið ánægðari með nettenginguna, takk
Hringdu og
Gagnaveita
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Fös 11. Mar 2016 14:28
af zetor
sæll
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Fös 11. Mar 2016 15:20
af braudrist
Fór leikurinn á SSD disk?
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Fös 11. Mar 2016 16:18
af GuðjónR
braudrist skrifaði:Fór leikurinn á SSD disk?
Já
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Fös 11. Mar 2016 16:52
af vesley
Bíð spenntur eftir að prófa þetta sjálfur, var að fá bara í dag nýtt gagnaveitubox til að geta tekið á móti 500mb
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Fös 11. Mar 2016 17:49
af kjartanbj
500Mbit er æði, tengdur gegnum Hringdu og er að fá full speed bara
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Fös 11. Mar 2016 18:35
af KermitTheFrog
braudrist skrifaði:Fór leikurinn á SSD disk?
Þú nærð auðveldlega upp í 100+ MB/s með venjulegum hörðum disk.
Just sayin'...
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Fös 11. Mar 2016 20:13
af snaeji
Kannski var hann bara forvitinn
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Fös 11. Mar 2016 20:24
af GuðjónR
Og af því að ég er að deyja úr hamingju þá skal ég láta fylgja með að ég var tengdur með WI-FI.
Pælið líka í einu, venjulegur DVD diskur er 4.7GB þannig að þetta væri um það bil 12 stappfullir DVD diskar, ég hugsa að það tæki lengri
tíma að lesa 12 DVD diska í uppsetningu en með svona súpertengingu. HDD í gamla 27" iMac 2009 sem ég átti var að maxa 82MBs R/W og USB2 drifið á TV tölunni gefur mér max 30MBs, að sækja forrit að utan með allt að 64MBs er bara geggjun. Hugsið ykkur hvernig þetta verður með 1000/1000. Þá fer búnaðurinn ykkar að verða flöskuhálsinn en ekki tengingin.
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Fös 11. Mar 2016 23:15
af Tiger
GuðjónR skrifaði:Og af því að ég er að deyja úr hamingju þá skal ég láta fylgja með að ég var tengdur með WI-FI.
Pælið líka í einu, venjulegur DVD diskur er 4.7GB þannig að þetta væri um það bil 12 stappfullir DVD diskar, ég hugsa að það tæki lengri
tíma að lesa 12 DVD diska í uppsetningu en með svona súpertengingu. HDD í gamla 27" iMac 2009 sem ég átti var að maxa 82MBs R/W og USB2 drifið á TV tölunni gefur mér max 30MBs, að sækja forrit að utan með allt að 64MBs er bara geggjun. Hugsið ykkur hvernig þetta verður með 1000/1000. Þá fer búnaðurinn ykkar að verða flöskuhálsinn en ekki tengingin.
Það er nú kominn tími á að búnaðurinn fari að vera flöskuháls....buinn að vera með sömu tölvu í meira en 2 ár og það hefur ALDREI gerst áður
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Lau 12. Mar 2016 04:11
af Viktor
GuðjónR skrifaði:Og af því að ég er að deyja úr hamingju þá skal ég láta fylgja með að ég var tengdur með WI-FI.
Nýji routerinn að gera góða hluti
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Lau 12. Mar 2016 13:11
af Danni V8
Aaandskotinn! Og ég sem hef verið hæstánægður með Ljósnet sem er 10 sinnum hægara en þetta.. og er að fara að flytja á svæði sem nær ekki meira en ADSL djööö
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Lau 12. Mar 2016 13:28
af GuðjónR
Danni V8 skrifaði:Aaandskotinn! Og ég sem hef verið hæstánægður með Ljósnet sem er 10 sinnum hægara en þetta.. og er að fara að flytja á svæði sem nær ekki meira en ADSL djööö
Ekki vildi þjónustufulltrúi Símans meina það þegar ég skilaði inn IPTV lyklinum fyrir nokkkrum mánuðum, hún sagði án þessa að blikkna að ljósleiðari væri hvorki hraðari né betri en ljósnetið.
Ég svaraði kurteysislega og sagðist myndi koma aftur ef ljóseiðarinn ylli mér vonbrigðum, hehehehe.
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Lau 12. Mar 2016 13:35
af Danni V8
GuðjónR skrifaði:Danni V8 skrifaði:Aaandskotinn! Og ég sem hef verið hæstánægður með Ljósnet sem er 10 sinnum hægara en þetta.. og er að fara að flytja á svæði sem nær ekki meira en ADSL djööö
Ekki vildi þjónustufulltrúi Símans meina það þegar ég skilaði inn IPTV lyklinum fyrir nokkkrum mánuðum, hún sagði án þessa að blikkna að ljósleiðari væri hvorki hraðari né betri en ljósnetið.
Ég svaraði kurteysislega og sagðist myndi koma aftur ef ljóseiðarinn ylli mér vonbrigðum, hehehehe.
Haha kannski notar þessi þjónustufulltrúi netið bara fyrir facebook og Youtube. Þar finnurðu engan stórmun á ljósneti og ljósleiðara.
En þetta Steam screenshot segir allt. Þú ert að peak-a í 62,2 MB/s á meðan ég peak-a í 6,2 MB/s. Og eftir tvo mánuði verður það svona 1,2 MB/s hjá mér
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Lau 12. Mar 2016 14:23
af emmi
Hvert ertu að flytja Danni? Ef þú ert að fara uppá Ásbrú þá er Míla að vinna í Ljósnetsvæðingu þar.
https://www.mila.is/framkvaemdir/aaetlanir-ljosnets/
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Lau 12. Mar 2016 15:59
af emmi
Ég er með DSL-AC68U fyrir Ljósnetið og er ágætlega sáttur við hann fyrir utan þráðlausanetið, það er mjög inconsistant á tímum, þá sérstaklega á 5GHz. Ég var áður með 1st gen Apple Airport Extreme og var gríðarlega sáttur með það, það er kannski ekki pakkað af fítusum en mjög stable og consistant merki.
Ég er ekki viss hvort maður eigi að splæsa í svona úber græju og vona að það sé betra en á 68U eða kaupa nýjan Airport Extreme.
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Sun 13. Mar 2016 03:44
af Danni V8
Oh wow! Þvílík snilld! Bróðir minn er þarna með eitthvað dót frá Kapalvæðingu í Kef sem nær í netið í gegnum sjónvarpskapalinn. Nær ca helmingnum af Ljósnets hraðanum en latancy í leikjum er víst algjört drasl. Það gengur ekki upp fyrir mig.
Algjör snilld að það sé verið að vinna að Ljósneti uppá Ásbrú á þessu ári. Þá er ég klárlega að fara að halda mig hjá Símanum og fá Ljósnetið þegar það kemur
U just made my night
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Sun 13. Mar 2016 18:07
af GuðjónR
emmi skrifaði:Ég er ekki viss hvort maður eigi að splæsa í svona úber græju og vona að það sé betra en á 68U eða kaupa nýjan Airport Extreme.
Ég er/var með 3.d gen af Airport Time Capsule, valið stóð á milli þess að fara í nýju útgáfuna (sem er reyndar orðin tveggja ára) eða þennan Asus, eftir vandlega yfirlegu þá varð Asus fyrir valinu, sé ekki eftir þeirri ákvörðun.
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Sun 13. Mar 2016 18:46
af Tiger
GuðjónR skrifaði:emmi skrifaði:Ég er ekki viss hvort maður eigi að splæsa í svona úber græju og vona að það sé betra en á 68U eða kaupa nýjan Airport Extreme.
Ég er/var með 3.d gen af Airport Time Capsule, valið stóð á milli þess að fara í nýju útgáfuna (sem er reyndar orðin tveggja ára) eða þennan Asus, eftir vandlega yfirlegu þá varð Asus fyrir valinu, sé ekki eftir þeirri ákvörðun.
Það er per se ekkert að hraðanum í nýjasta Airport Exrtreme 800.11ac, en það er hugbúnaðurin og stjórnuni sem ræður baggamun á milli þessara tveggja, er það eina ástæðan fyrir að ég seldi minn og fæ þennan Asus á morgun.
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Sun 13. Mar 2016 19:09
af kjartanbj
Þetta er á Netgear R7000 AC1900 router sem ég er með , reyndar með Asuswrt-merlin firmware
og 500Mbit hjá Hringdu, fæ fullan 500Mbit í báðar áttir með ethernet kappli, þetta er Wifi hjá mér á speedtest.net
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Sun 13. Mar 2016 19:17
af Tiger
Örugglega fullt af routers sem ná góðum hraða fyrir eina vél......en hvað þegar það eru komin 14 wifi tæki eins og er t.d. heima hjá mér, hvernig fer það með hraðan hjá ykkur?
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Sun 13. Mar 2016 19:20
af emmi
Þá mun þessi Asus örugglega virka vel fyrir þig, ég er hinsvegar með allt wired nema símana og iPad þannig að ég á mjög erfitt að réttláta svona útgjöld í wifi router. :p
MU-MIMO er reyndar í Alpha stage hjá Asus og ekki von á því í final útgáfu fyrr en seint á árinu las ég á smallnetbuilderforums.
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Sun 13. Mar 2016 19:50
af GuðjónR
Tiger skrifaði:Örugglega fullt af routers sem ná góðum hraða fyrir eina vél......en hvað þegar það eru komin 14 wifi tæki eins og er t.d. heima hjá mér, hvernig fer það með hraðan hjá ykkur?
Sama hérna, er með á annan tug wi-fi tækja þegar allt er talið og einn sendir er ekki að ráða við það, ASUS er með þrjá senda, en nánast eins og að vera með þrjá routera, er búinn að deilja tækjunum á milli senda og allir ná frábærum hraða.
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Mán 14. Mar 2016 21:09
af emmi
Hefur einhver verslað af superkaup.is? Tók eftir þessu þar,
http://superkaup.is/product/asus-rt-ac5 ... er-ac-5300
Re: Flottur nethraði - mont!
Sent: Mán 14. Mar 2016 21:13
af Tiger
Ég pantaði minn bara beint frá B&H í bandaríkjunum, 3 virkir dagar og kostaði 71þús.