Sælir nú er svolítið síðan að win 10 kom út og ég var að velta því fyrir mig hvort að það sé búið að taka mestu böggana úr og er einhver rosalegur munur varðandi vinnslu (er með win 7) og ég nota tölvuna aðallega í tölvuleiki og hefðbundið heimilisvinnslu?
kv Einar
Re: ? með uppfærslu í win 10
Sent: Mið 20. Jan 2016 22:50
af nidur
Hef ekki séð neina bugga, og kerfið er frekar stabilt bara.
Myndi samt mæla með nýju install frá grunni en ekki bara upgrade.
Re: ? með uppfærslu í win 10
Sent: Mið 20. Jan 2016 22:56
af GuðjónR
einarbjorn skrifaði:Sælir nú er svolítið síðan að win 10 kom út og ég var að velta því fyrir mig hvort að það sé búið að taka mestu böggana úr og er einhver rosalegur munur varðandi vinnslu (er með win 7) og ég nota tölvuna aðallega í tölvuleiki og hefðbundið heimilisvinnslu?
kv Einar
Já, ég skellti mínu upp aftur í desember og allt annað líf en í júlí/ágúst .. Reyndar ekki alveg 100% sambærilegt því í þetta sinn sótti ég ISO fæl og gerði clean install. Upgrade hefur aldrei verið sterkasta hlið Microsoft.
Eina sem böggar mig er windows update, fyrir 15 dögum þá heimtaði tölvan restart, ég er búinn að fresta ítrekað alveg þangað til í dag að ég fékk ekki að fresta lengur, tölvan fór í restart þó ég væri með skjöl í notepad og excel sem átti eftir að vista. Ekki cool. Ég ákvað að disable update með öllu, sjá youtube hér að neðan:
Re: ? með uppfærslu í win 10
Sent: Fim 21. Jan 2016 09:39
af einarbjorn
Hvernig setur maður inn clean install ef þú ert með win 7, notar maður þá win 7 kóðann eða þarf að keyra eithvað fyrst í gegn?
Re: ? með uppfærslu í win 10
Sent: Fim 21. Jan 2016 09:45
af Njall_L
einarbjorn skrifaði:Hvernig setur maður inn clean install ef þú ert með win 7, notar maður þá win 7 kóðann eða þarf að keyra eithvað fyrst í gegn?
Þú setur strax Windows 10 Build 1511 og þá getur þú notað WIN7 kóðann. Svo ef þú ert ekki kominn með SSD disk í vélina þá er þetta tíminn til að bæta slíkum við fyrir stýrikerfið