Síða 1 af 1

Ljósleiðari í grafarholti out?

Sent: Fös 15. Jan 2016 22:41
af Squinchy
Dottinn út af internetinu í grafarholtinu, einhver annar hérna í holtinu sem er í sama vanda og kannski líka hjá hringiðunni?

Re: Ljósleiðari í grafarholti out?

Sent: Fös 15. Jan 2016 22:44
af Hellfire
Datt út af ljosneti í Garðabæ. Ertu hjá Hringiðunni? ég sé að heimasíðan þeirra er niðri.

Re: Ljósleiðari í grafarholti out?

Sent: Fös 15. Jan 2016 22:46
af einarth
Það er stór rafmagnsbilun í vesturbæ reykjavíkur og svo virðist sem það hafi áhrif á netgáttir Hringiðunar - bæði sambönd GR við Hringiðuna eru niðri síðan kl. 22:33

Vonast er til að viðgerð á rafmagnsbilun ljúki á næstu 15-20 mín.

Kv, Einar.

Re: Ljósleiðari í grafarholti out?

Sent: Fös 15. Jan 2016 23:00
af Hellfire
Ok, datt í hug að það væri eitthvað svona í gangi. Takk fyrir svarið

Re: Ljósleiðari í grafarholti out?

Sent: Fös 15. Jan 2016 23:00
af einarth
Rafmagn komið á aftur og sambönd Hringiðunar komin upp.

Kv, Einar.

Re: Ljósleiðari í grafarholti out?

Sent: Fös 15. Jan 2016 23:30
af Hellfire
Netið ekki enn komið upp hér

Re: Ljósleiðari í grafarholti out?

Sent: Fös 15. Jan 2016 23:35
af steinarorri
Ekki heldur í Kópavogi :-\

Re: Ljósleiðari í grafarholti out?

Sent: Fös 15. Jan 2016 23:48
af Farcry
Ekki komið i breiðholti

Re: Ljósleiðari í grafarholti out?

Sent: Lau 16. Jan 2016 00:04
af jonsig
Sorry strákar , vantaði smá multi-mode fiber til að klára ljósleiðarajólatréið sem ég ætla nota á næsta ári.

Re: Ljósleiðari í grafarholti out?

Sent: Lau 16. Jan 2016 00:11
af Icarus
Því miður orsakaði rafmagnsleysi hjá OR því að netmiðja okkar missti allt rafmagn nú í kvöld. Straumur komst á fyrir skömmu síðan og er nú að mestu lokið að ræsa allan búnað upp.

Ef þjónustur detta ekki inn sjálfkrafa er sniðugt að prófa að endurræsa búnað.

Við biðjumst innilegrar afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa ollið.

Með kærri kveðju,
Ingvar
Rekstrarstjóri
Hringiðan

Re: Ljósleiðari í grafarholti out?

Sent: Lau 16. Jan 2016 19:38
af Kristján Gerhard
Spurning hvort að það þurfi ekki að fjárfesta í ljósavél fyrir kjarnabúnað.

Re: Ljósleiðari í grafarholti out?

Sent: Lau 16. Jan 2016 19:57
af jonsig
Hver borgar það ? Think it over.

Re: Ljósleiðari í grafarholti out?

Sent: Sun 17. Jan 2016 14:08
af Kristján Gerhard
Tjah... ég meðal annars þar sem að ég er í viðskiptum við Hringiðuna.