Síða 1 af 1
GSM repeater
Sent: Lau 02. Jan 2016 22:08
af BugsyB
Sælir er e-h hér með reynslu af því að boosta upp GSM samband á heimilum - er í bölvuðubasli með GSM samband heima hjá mér samahvað fyrirtæki það er, þarf alltaf að vera út í horni við gluggan til að tala í síman, er búinn að vera skoða svona repeters á ali en er e-h mál að stilla þetta og annað til að þetta virki hérna heima.
Re: GSM repeater
Sent: Lau 02. Jan 2016 22:16
af sveik
Tæknilega séð ekki löglegt. Þar sem þú ert að "senda út" á frátekinni tíðni með repeater. Sögðu að það myndi enginn skipta sér af því ég var að setja þetta upp í sveitinni.
Fékk þessi svör frá Elnet þegar ég var að skoða þetta fyrir löngu. Veit ekki hvort þeir eru enn að selja svona búnað.
Re: GSM repeater
Sent: Lau 02. Jan 2016 23:28
af capteinninn
Helst kannski að prófa að kaupa bara loftnet og skella upp á húsið eins og fólk er að gera í sumarbústöðum.
Svona repeater er held ég ekkert sniðugur
Re: GSM repeater
Sent: Fös 29. Júl 2016 14:35
af bjartman
Ég pantaði mér einmitt svona gsm repeater á Ali til að hafa upp í sveit, og viti menn þetta virkar hahahahaha. Sé pínu eftir að hafa
ekki keypt 4g útgáfuna af þessu dóti. Range-ið er samt ekkert neitt svakalegt en það er kannski eitthvað hægt að vinna með það.
Bara pæla í tíðninni sem þú vilt repeata.
Re: GSM repeater
Sent: Fös 29. Júl 2016 14:46
af sveik
Geðveikt! Ertu með link á hvað þú keyptir? var uppsetningin ekkert mál?
Spá í að prófa að setja svona upp sjálfur hjá foreldrum mínum(lengst út sveit).
Re: GSM repeater
Sent: Fös 29. Júl 2016 17:09
af arons4
þarf alls ekkert að vera ólöglegt ef þú ert með leyfi fyrir þessu, þetta er alveg stundum gert í húsum þar sem samband er lítið og álag mikið.
Re: GSM repeater
Sent: Fös 29. Júl 2016 20:53
af bjartman
ég keypti svona pakka bara, er reyndar ekki til sölu lengur en það er alveg til bunch af þessu. Bara hugleiða hvaða tíðnir þú vilt repeata.
Re: GSM repeater
Sent: Fös 29. Júl 2016 23:01
af DJOli
Mér skilst að 2G á íslandi sé keyrt á GSM 900 & GSM 1800, 3G sé keyrt á UMTS 900 & UMTS 2100, og 4G sé keyrt á LTE 800 & LTE 1800.
http://www.aliexpress.com/wholesale?cat ... 0+repeaterN.B. Ég tek enga ábyrgð á því að LTE 1800 virki í þínu tilfelli. Þú verður bara að hringja í mílu, eða ISP-ann þinn og spyrja tæknilega aðstoð hvaða tíðni sendirinn sem þér næstur er á.
Re: GSM repeater
Sent: Mið 03. Ágú 2016 12:05
af Benz
DJOli skrifaði:Mér skilst að 2G á íslandi sé keyrt á GSM 900 & GSM 1800, 3G sé keyrt á UMTS 900 & UMTS 2100, og 4G sé keyrt á LTE 800 & LTE 1800.
http://www.aliexpress.com/wholesale?cat ... 0+repeaterN.B. Ég tek enga ábyrgð á því að LTE 1800 virki í þínu tilfelli.
Þú verður bara að hringja í mílu, eða ISP-ann þinn og spyrja tæknilega aðstoð hvaða tíðni sendirinn sem þér næstur er á.
Míla hefur ekkert með farsíma að gera, þýðir ekkert að spyrja þá um tíðnimál farsíma
Re: GSM repeater
Sent: Mið 03. Ágú 2016 12:13
af emmi
Re: GSM repeater
Sent: Mið 03. Ágú 2016 15:39
af russi
sveik skrifaði:Tæknilega séð ekki löglegt. Þar sem þú ert að "senda út" á frátekinni tíðni með repeater. Sögðu að það myndi enginn skipta sér af því ég var að setja þetta upp í sveitinni.
Fékk þessi svör frá Elnet þegar ég var að skoða þetta fyrir löngu. Veit ekki hvort þeir eru enn að selja svona búnað.
Með því hvort það sé löglegt eður ei fer allt eftir því hversu sterkur sendirinn og hvers eðlis hann er. ÞEAS að þetta trufli ekki senda sem fyrir eru, þá er horft framhjá þessu og er í raun löglegt, því það er leyfilegt að bæta fjarskipti en það er óleyfilegt að trufla þau.
AÐ þessu sögðu ef þú setur hann upp í afmörkuðu rými, sem er lokað þá e rþetta í lagi. Hef sett fjöldan allaf af svona sendum upp.
Btw Kjarri, þá er þetta ekkert mál
Re: GSM repeater
Sent: Mið 03. Ágú 2016 16:11
af russi
emmi skrifaði:http://feris.is/vara.aspx?id=539
Þetta er eingöngu loftnet, ætlað til að tengja beint í tæki sem þurfa GSM samband
Aftur á móti gæturu tengt repeater beint í það
Re: GSM repeater
Sent: Mið 03. Ágú 2016 17:36
af Arnarr
bjartman skrifaði:Ég pantaði mér einmitt svona gsm repeater á Ali til að hafa upp í sveit, og viti menn þetta virkar hahahahaha. Sé pínu eftir að hafa
ekki keypt 4g útgáfuna af þessu dóti. Range-ið er samt ekkert neitt svakalegt en það er kannski eitthvað hægt að vinna með það.
Bara pæla í tíðninni sem þú vilt repeata.
Ég veit um dæmi þar sem að ódýrir repeater-ar frá Ali hafi verið að trufla og póst og fjar mætt á svæðið. Hins vegar eru til repeater-ar sem virka og eru löglegir hér á landi. Held að IceCom séu t.d. að selja slíka.