Síða 1 af 1

Ljósleiðarinn 500/500

Sent: Fös 18. Des 2015 19:11
af einarth
Kvöldið..

Ákvað að henda inn einu skjáskoti þar sem það kemur oft upp í umræðunni að fólk hafi ekkert við 500Mb hraða að gera.

Ég ákvað að skella mér á GTA-5 í steam í dag þar sem hann var á afslætti..

Kom heim og skellti þessu í gang í þeirri von að geta prófað leikinn á eftir þegar börnin væru komin í rúmið.

65GB takk fyrir - ETA s.k. Steam 18 klukkutímar...

En með 500/500 tengingu lítur út fyrir að ég fái að prófa leikinn í kvöld eftir allt saman :)

http://imgur.com/bWItEsV

Kv, Einar.

Re: Ljósleiðarinn 500/500

Sent: Fös 18. Des 2015 19:37
af GuðjónR
Flottur!!

59.7 MB/s og 65GB þú ert þá 18.5 mínútur að sækja leikinn, hugsanlega fljótari þar sem þú ættir að geta maxað tenginguna á 63MB/s
Þetta er lúxus! Ekki spurning. Mér þætti gaman að sjá einhvern á Ljósneti gera þetta. :)

Re: Ljósleiðarinn 500/500

Sent: Fös 18. Des 2015 20:01
af Skippó
Ég bjó út á landi með ADSL tengingu var að ná max 1mb/s í steam downloads var samt ekki steady, ég flutti í borgina og er með ljósnet, er að ná allt að 6,5 mb/s á Steam downloads, þetta var bara algjört sjokk, finnst eins og ég hafi sigrað heiminn haha. En þetta er algjör snilldar tenging hjá þér en eftir að ég er búinn að vera með ADSL síðan ég byrjaði að nota netið þá er maður sáttur við allt betra. :)

Re: Ljósleiðarinn 500/500

Sent: Fös 18. Des 2015 20:55
af worghal
er með 500/500 hjá hringdu en er ekki að fá fullann hraða :(

Mynd

en þetta er samt meira en nægur hraði xD

Re: Ljósleiðarinn 500/500

Sent: Fös 18. Des 2015 20:58
af einarth
Worghal - hentu á mig PM með Kt og ég skal skoða..

Kv, Einar.

Re: Ljósleiðarinn 500/500

Sent: Lau 19. Des 2015 10:25
af audiophile
60mb/s niðurhal er svakalegt. Þegar komið er í svona hraða fer ekki skrifhraði harðadisks (ekki SSD) að verða flöskuháls?

Re: Ljósleiðarinn 500/500

Sent: Lau 19. Des 2015 17:57
af KermitTheFrog
audiophile skrifaði:60mb/s niðurhal er svakalegt. Þegar komið er í svona hraða fer ekki skrifhraði harðadisks (ekki SSD) að verða flöskuháls?


Þú nærð leikandi 100+ MB/s með SATA3.

Edit: Upprunalega svarið var bara byggt á minni + giski, en eftir smá gúgl sýnist mér SATA1 jafnvel styðja það.