Síða 1 af 1

ADSL í vDSL/Ljósnet, nákvæmlega sami hraði.

Sent: Fös 11. Des 2015 19:58
af jonr
Sæl,

Ég var með ADSL hjá Símanum hérna í íbúð, og var með um 9-11Mbps og 1Mbps í hraða. Þegar ég uppgötvaði að farsíminn minn var að ná meiri hraða, ákvað ég að gefa mér jólagjöf, Ljósnet (ekki ljósleiðari inn í þessa blokk) og pakka frá internetþjónustu. En málið er að ég er að fá nákvæmlega sama hraða og áður, 9/1 Mbps.

Þetta er nú ekki alveg normal. Áður en ég hringi í þá á morgun, getur verið að sé eitthvað sem sem ég gæti gert til að laga þetta? Getur 'gamla' adslið verið að trufla? Mér finnst þetta alveg fáránlegt, á maður virkilega að fá sér LTE router hérna í miðri borginni?

J.

Re: ADSL í vDSL/Ljósnet, nákvæmlega sami hraði.

Sent: Fös 11. Des 2015 20:09
af appel
Það getur verið eitthvað stórkostlega mikið að innanhúslögninni hjá þér, mjög oft þannig í gömlum húsum í borginni.

Re: ADSL í vDSL/Ljósnet, nákvæmlega sami hraði.

Sent: Fös 11. Des 2015 20:13
af jonr
Það er annað sem mig grunar... hvort það hafi verið notaður gaddavír í símalagnirnar hérna.

Re: ADSL í vDSL/Ljósnet, nákvæmlega sami hraði.

Sent: Fös 11. Des 2015 20:19
af appel
jonr skrifaði:Það er annað sem mig grunar... hvort það hafi verið notaður gaddavír í símalagnirnar hérna.


Líklega slæmar línur, og MIKIÐ af truflunum á línunni, þannig að þú droppar niður í hraða-prófíl sjálfvirkt þar sem línan ber ekki meira.

Re: ADSL í vDSL/Ljósnet, nákvæmlega sami hraði.

Sent: Fös 11. Des 2015 20:42
af KermitTheFrog
Ertu viss um að það sé búið að breyta tengingunni? Þetta gerist ekki bara einn tveir og bingó.

Ertu kominn með annan router? Ertu að nota sömu ADSL smásíur og áður?

Re: ADSL í vDSL/Ljósnet, nákvæmlega sami hraði.

Sent: Fös 11. Des 2015 20:47
af jonr
KermitTheFrog skrifaði:Ertu viss um að það sé búið að breyta tengingunni? Þetta gerist ekki bara einn tveir og bingó.

Ertu kominn með annan router? Ertu að nota sömu ADSL smásíur og áður?


Nýr router, annar ISP. Routerinn er reyndar með ADSl/vDSL bæði í gangi. Er séns að hann sé að nota ADSLið default?

Re: ADSL í vDSL/Ljósnet, nákvæmlega sami hraði.

Sent: Fös 11. Des 2015 21:05
af kizi86
ertu með vdsl síu eða adsl?

Re: ADSL í vDSL/Ljósnet, nákvæmlega sami hraði.

Sent: Fös 11. Des 2015 21:08
af jonr
kizi86 skrifaði:ertu með vdsl síu eða adsl?

Hef ekki græna. Gamli routerinn var bara tengdur beint í vegginn. Fékk svona line/phone/router stykki, það stendur ekkert á því.

Re: ADSL í vDSL/Ljósnet, nákvæmlega sami hraði.

Sent: Fös 11. Des 2015 21:17
af jonr
Ég er enn á ADSL virðist vera. Ef ég set up http routing fyrir utanaðkomandi traffík virkar það bara fyrir ADSL, en ekki VDSL.

Re: ADSL í vDSL/Ljósnet, nákvæmlega sami hraði.

Sent: Fös 11. Des 2015 21:22
af jonr
Komið í lag, tuðaði í þeim og er núna að fá 40/20Mbps... hefði átt að anda rólegar. :)

Re: ADSL í vDSL/Ljósnet, nákvæmlega sami hraði.

Sent: Lau 12. Des 2015 03:57
af DJOli
jonr skrifaði:Komið í lag, tuðaði í þeim og er núna að fá 40/20Mbps... hefði átt að anda rólegar. :)

Hringdu aftur og spurðu hvort búnaðurinn þeirra styðji Vectoring, og hvort þú getir nýtt þér það :P