Síða 1 af 1

Windows keyrir bara eitt forrit í einu

Sent: Fim 16. Des 2004 17:18
af Dagur
Kannast einhver við vandamál með windows sem er þannig að það vill bara keyra eitt forrit í einu? Ég hef ekki skoðað þetta sjálfur en sá sem ég talaði við sagði mér að ef hann reyndi að opna önnur forrit þá gerist bara ekki neitt. :?:

Sent: Fim 16. Des 2004 20:55
af gumol
Þetta var einhver stilling minnir mig. Man það kannski seinna ef enginn annar veit það :?

Sent: Fim 16. Des 2004 21:32
af kristjanm
http://www.microsoft.com

Farðu í hjálpina og leitaðu þar.

Sent: Fim 16. Des 2004 23:23
af Dagur
kristjanm skrifaði:www.microsoft.com

Farðu í hjálpina og leitaðu þar.


Hefur þú prófað það einhvern tíman? Ég mundi örugglega leita þar síðast.

Sent: Fös 17. Des 2004 00:55
af halanegri
Ef þú færir þangað síðast þá þýddi það að þú hefðir fundið lausnina þar. :)

Sent: Fös 17. Des 2004 09:25
af Stutturdreki
Well.. tæknilega séð þá keyra allar ekki-HT (HyperThreading) tölvur bara eitt forrit í einu.. og allar HT tölvur mestalagi tvö.

Sé þetta eiginlega ekki gerast.. nema kannski í tölvu með alltof lítið minni.

En ótrúlegt en satt þá er www.microsoft.com yfirleitt besti staðurinn til að finna lausnir á Microsoft-tengdum vandamálum. Td. eru þar community sites fyrir allar þeirra vörur og ýmislegt fleirra.

Sent: Fös 17. Des 2004 17:18
af MezzUp
Stutturdreki skrifaði:Well.. tæknilega séð þá keyra allar ekki-HT (HyperThreading) tölvur bara eitt forrit í einu.. og allar HT tölvur mestalagi tvö.

Jú, allar nema HT og SMP keyra bara eitt forrit í einu :)
Stutturdreki skrifaði:En ótrúlegt en satt þá er www.microsoft.com yfirleitt besti staðurinn til að finna lausnir á Microsoft-tengdum vandamálum........

Sammála. KB getur verið snilld ef að maður kann aðeins að leita

Sent: Fös 17. Des 2004 17:25
af Dagur
Ég er greinilega vonlaus í að leita þar :?

Sent: Fös 17. Des 2004 19:10
af gnarr
MezzUp skrifaði:Jú, allar nema HT og SMP keyra bara eitt forrit í einu :)


SMP ?

Sent: Fös 17. Des 2004 19:57
af MezzUp
gnarr skrifaði:
MezzUp skrifaði:Jú, allar nema HT og SMP keyra bara eitt forrit í einu :)

SMP ?
Symmetric Multiprocessing. Tölvunördanafnið á 2 eða fleiri örgjörvum í einni vél :P

Sent: Fös 17. Des 2004 23:22
af Stutturdreki
Symetric.. er það ekki bara ein útfærsla af multiprocessing?

Minnir að þegar ég lærði þetta var alltaf talað um 'single instruction per <eitthvað>' og 'multiple instructions per <eitthvað>' tölvur.. fjöl-örgjörva tölvunum var síðan skipt upp í mismunandi útfærslur.. hvernig processum var dreift á milli þeirra, hvort þær hefðu sameiginlegt minni eða ekki og fleirra áhugavert..

Sent: Lau 18. Des 2004 00:00
af MezzUp
Stutturdreki skrifaði:Symetric.. er það ekki bara ein útfærsla af multiprocessing?

Minnir að þegar ég lærði þetta var alltaf talað um 'single instruction per <eitthvað>' og 'multiple instructions per <eitthvað>' tölvur.. fjöl-örgjörva tölvunum var síðan skipt upp í mismunandi útfærslur.. hvernig processum var dreift á milli þeirra, hvort þær hefðu sameiginlegt minni eða ekki og fleirra áhugavert..

Þekki þetta nú ekki nógu vel til þess að vera að tala eitthvað um þetta, en veit að það er líka til „Massively Parallel Processing“ (MPP) sem að er eitthvað svipað og SMP, nema hvað hver örgjörvi hefur sitt eigið minni.

Stutturdreki skrifaði:Minnir að þegar ég lærði þetta var alltaf talað um 'single instruction per <eitthvað>' og 'multiple instructions per <eitthvað>'
Þú ert ekki að tala um CISC og RISC eða eitthvað svoleiðis?