Síða 1 af 1

Hringiðan Vs. Hringdu.

Sent: Sun 15. Nóv 2015 06:59
af littli-Jake
Er logsins að flitja og ætla því að nota tækifærið og fara í alvöru nettengingu.

Ætla mér í ljósleiðara með ótakmörkuðu gagnamagni. Sennilega er það owerkill fyrir mig en screw it.

Eina pælinginn er í rauninni hvor aðilinn bíður upp á betri þjónustu og stöðugri tengingu. Væri gott að fá reynslusögur.

Re: Hringiðan Vs. Hringdu.

Sent: Sun 15. Nóv 2015 08:53
af flottur
Ég er einmitt í sömu pælingum og litli-jake, konan og ég erum búin að fá nóg að því að vera hjá símanum og það er kominn tími til að færa sig og valið stendur á milli þessara 2 fyrirtækja.

Re: Hringiðan Vs. Hringdu.

Sent: Sun 15. Nóv 2015 11:49
af nidur
Ætlið þið í ljósleiðara eða net?

Re: Hringiðan Vs. Hringdu.

Sent: Sun 15. Nóv 2015 12:56
af littli-Jake
nidur skrifaði:Ætlið þið í ljósleiðara eða net?



littli-Jake skrifaði:Ætla mér í ljósleiðara með ótakmörkuðu gagnamagni. Sennilega er það owerkill fyrir mig en screw it.

Re: Hringiðan Vs. Hringdu.

Sent: Sun 15. Nóv 2015 13:34
af fannar82
Ef þú ert að spila net leiki eitthvað. Þá myndi ég ekki taka Hringiðuna. En ef þú ert ekkert í því þá eru þeir líklegast fínir. Þeir fá +1 fyrir að vera með virka netflix\hulu tengingu.

Re: Hringiðan Vs. Hringdu.

Sent: Sun 15. Nóv 2015 13:40
af pepsico
Þetta er með fullri virðingu eins og að bera saman poka af rusli og poka af matvörum.

Ég sit hér hjá Hringiðunni netlaus í 15-20 mínútur og svo þegar netið kemur loksins inn er það einungis íslenskar síður.

Ég gat varla farið inn á þeirra eigin heimasíðu, því hún festist á því að hlaða fonts.googleapis.com

Ég vil líka bæta því við að þetta er allra óstöðugasta tenging sem ég hef nokkurn tímann notað. Slóð

Árið 2013 notaðist ég við 3G tengingu tetherað með iPhone sem var með stöðugu 120 pingi til Evrópu og aldrei fór það yfir 130.

Núna er ég hjá Hringiðunni og síðustu 10 vikur hefur pingið mitt rokið yfir 160 oftar en 160 sinnum...

Auk þess hefur erlenda netið dottið út í 3+ mínútur oftar en tvisvar á síðustu tvem vikum og þá er ég ekki að taka með þetta skipti núna.

Símaverið er ekki einu sinni opið hjá þeim.

Re: Hringiðan Vs. Hringdu.

Sent: Sun 15. Nóv 2015 14:20
af GuðjónR
Ég get ekki borið saman "Hringiðan vs Hringdu" þar sem ég hef bara reynsu af Hringdu.
En ég er búinn að hafa ljósleiðara frá þeim síðan í ágúst og ef frá eru talin tvö skipti þar sem heimasíminn datt óvænt út þá stenst ljósleiðarinn allar væntingar og vel það. Er með veikustu tenginguna 50/50 og hún svínvirkar.

Re: Hringiðan Vs. Hringdu.

Sent: Sun 15. Nóv 2015 15:07
af hallihg
Ég fór frá voda og yfir til Hringdu fyrir ári síðan. Ekkert vesen, ekkert ping eða routing vandamál, sem var ástæða flutningsins.

Og að vera með ljósleiðara ótakmarkað niðurhal og þurfa aldrei að spá í vandamálinu sem er gagnamagn eru forréttindi. Freistingin er síðan auðvitað að uppfæra 100 mb/s ljósið í 500 mb/s :D

Þekki annars ekki Hringiðuna en sýnist aðrir hafa svarað því.

Re: Hringiðan Vs. Hringdu.

Sent: Sun 15. Nóv 2015 15:22
af hfwf
Er hjá Hringiðunni, og aldrei eitt einasta vesen á tengingunni, en ég er nokkuð viss um að torrent uploadið sé throttlað hjá þeim, skiptir ekki alveg öllu, en hef ekki mikið út á þa að setja annars.

Re: Hringiðan Vs. Hringdu.

Sent: Sun 15. Nóv 2015 16:05
af Snorrivk
Er hjá Hringiðunni, og aldrei neitt vesen á tengingunni.Horfi mikið á IPTV,er lítið í leikjum en það eru spilaðir net leikir á heimilinu og aldrei neitt vesen.Og frábær þjónusta ;)

Re: Hringiðan Vs. Hringdu.

Sent: Sun 15. Nóv 2015 16:52
af darkppl
bæði fyrirtækin hafa haft ömurlega tíma... bæði fyritækin hafa misst netþjónustu osf.

man eftir því að ég fór á lan og vinur minn sem var hjá hringdu við vorum netlausir í eina viku því hringdu var bara ekki að hondla neitt... það var ekki bara ein vika þetta var í svoldinn tíma hjá þeim ... veit ekki hvernig þetta er hjá þeim núna.

hringiðan virðist vera með einhver routing issues stundum en ég hef núna í þessari viku einusinni að netið datt út og kanski 2 að pingið fari uppfyrir 120