Síða 1 af 3
Hvaða distro notið þið og útafhverju
Sent: Sun 27. Apr 2003 12:45
af elv
Ég nota helst Slackware.Finnst það hraðvirkast á vélunum mínum og stór plús að það sé á EINUM CDROM.
Sent: Sun 27. Apr 2003 13:02
af MezzUp
Ég er að notað RH9
Sent: Sun 27. Apr 2003 13:06
af elv
Hvernig finnst þér Blucurve
En ahverju Red Hat?
Sent: Sun 27. Apr 2003 13:25
af Voffinn
ég er nú ekki að nota linux núna, en hef notað mandrake 9.1 eitthvað, valdi það útaf því að ég hafði heyrt að það væri n00ba vænast
Sent: Sun 27. Apr 2003 13:25
af MezzUp
Bara RedHat af því að það er vinsælt og einfalt.
Ég er búinn að breyta look'inu á KDE þannig að ég nota ekki Bluecurve lengur. Ég gafst upp á Gnome. Síðan fann ég síðuna
www.kde-look.org, þar eru fullt af útlitsbreytingum fyrir KDE.
Sent: Sun 27. Apr 2003 13:43
af Voffinn
En ein spurning til ykkar allra... hvar lærðuði á þetta ? bók ? heimasíða ? bara fikt ? ég hef prufað linux, skil ekki rass í því
Sent: Sun 27. Apr 2003 13:45
af elv
Console er ekki svo slæmt.Það er líka X á Slackware
Sent: Sun 27. Apr 2003 14:53
af MezzUp
Voffinn: ég keypti bókina "Linux - á eigin spýtur" þegar ég var að byrja í þessu sem að er gulls-í-gildi. Svo er maður aðeins búinn að skoða tutorials á netinu og spurja á IRC og Usenet(mmm......, tha ol' days :) Síðan verða menn náttla líka að fikta :)
elv, rétt, console er alls ekki svo slæmt. Ég nota opna frekar Konsole og nota vi frekar heldur en að fara í file-manager'inn og opna skránna þar. Ég er miklu sneggri í console(ég elska líka þetta file-name completion(ýta á TAB :) )
ps. ég breytti öllum bréfum sem að snérust um misskiling minn á einum CD en ekki einum HD :)
Sent: Sun 27. Apr 2003 14:59
af halanegri
ömm... það eina sem ég gerði var fikt+irc+google
ég nota mandrake 9.1 svolítið, það er ágætt, þar sem það er svona desktop distró, sem er einmitt það sem ég nota tölvuna mína í.
Sent: Sun 27. Apr 2003 17:16
af elv
Ég lærði nú Freebsd fyrst þá fó ég að skilja Linux betur.
Sent: Sun 27. Apr 2003 17:45
af Voffinn
Er eitthvað X í freebsd?
Sent: Sun 27. Apr 2003 17:49
af elv
Já, það er gallinn og kosturinn við nix.Flest forrit sem eru til fyrir linux eru til fyrir Freebsd.Kostir Freebsd eru að það er bara eitt distro og pakkakerfið er gott hjá þeim, Gento er með svipað.En gallar eru að það eru ekki jafn margir driverar til.Ef þú vilt læra Freebsd þá er handbókin á síðunni þeirra mjög fín.
Sent: Sun 27. Apr 2003 17:52
af Voffinn
þannig að eftir að ég er búin að kaupa "Linux á eigin spýtur"... þá á mar að fara í freebsd ?
eða kannski mar byrji á botninum, "Linux for idiots"
Sent: Sun 27. Apr 2003 17:54
af elv
Byrjaðu á Freebsd.Ef þú vilt eitthvað annað en mandrake,lindow og svoleiðis.
Sent: Sun 27. Apr 2003 18:08
af MezzUp
þetta linux á eigin spýtur er sko sona basic stöffið einsog pwd, ls, cd og síðan að kenna að unpack'a tar skrám og síðan er aðeins líka kennt basic á shell scripting og program flow
Sent: Sun 27. Apr 2003 18:17
af Voffinn
Þakka ykkur báðum, kíki á þetta þegar ég er búin í prófum
Sent: Sun 27. Apr 2003 19:18
af halanegri
það er ekkert bara eitt distro í bsd. það er líka netbsd og openbsd(og eflaust eitthvað annað sem ég veit ekki um)
Sent: Sun 27. Apr 2003 19:37
af elv
En það er bara eitt Freebsd.Netbsd og Openbsd eru ólík hvort öðru.
Sent: Sun 27. Apr 2003 19:48
af MezzUp
hver er munurinn á þessum BSD distro'um?
Sent: Sun 27. Apr 2003 19:59
af elv
Netbsd er auðflytjalegast þ.e.a.s að það er til fyrir 50 örgörva tegundir.
Openbsd Reyna mest hvað þeir geta að vera með mesta öryggið, á að vera öruggasta os á plánetunni
.
Freebsd er svona allaround ,server,workstation og fleira og er eina BSD að ég held sem er smp.
Sent: Mán 28. Apr 2003 01:10
af Zaphod
ég hef notað RH en er núna að prufa mandrake 9.1 . Sem er bara að plumma sig fínt.
Td. í RH7 þurfti að vesenast slatta til að komast á netið í gegnum winxp vélina en í MD bara network wizardinn í XP og tengja og trylla í MD.
Sent: Mán 28. Apr 2003 08:06
af Spirou
Ég hef notað RedHat síðan version 5 og hef aldrei kynns neinu öðru. Það hefur alltaf verið á stefnuskránni að prófa nýtt distro en RedHat gefur út nýjar útgáfur hraðar en ég nenni að innstalla
Nú er RedHat komið á sex diska svo maður er hættur að nenna að downloada þessu og skrifa.
Ég hef reyndar aldrei NOTAÐ linux sem vinnustöð nema bara til að prufa og ég gerði heiðarlega tilraun á version 7.2 til að breyta frá Windows yfir í Linux en það misstókst því mér tókst ekki að keyra Windows forritin á Linux-inum og þar sem ég þurfti á mjög mörgum forritum að halda sem ekki voru til fyrir Linux , þá gafst ég upp.
Red Hat diskar til sölu
Version History:
Red Hat 5: sökkaði feitan, hardware support var lélegt
Red Hat 6 bara fínt en það var augljóslega eitthvað að miðað við allar sexurnar sem komu á eftir
Red Hat 6.1
Red Hat 6.2 Besta Red Hat sem ég hef notað
Red Hat 6.3
Red Hat 7
Red Hat 7.1
Red Hat 7.2 Pretty good
Red Hat 7.3 Næst besta Red Hat sem ég hef notað
Red Hat 8 Er að nota þetta núna, buggy but nice
Eftir próf þá ætla ég að prufa RH9 og aldrei að vita nema að maður prófi eitthvað annað distro...
Sent: Mán 28. Apr 2003 09:26
af Tinker
Sjálft kerfið er á 3 CD, restin eru source CD. Þú þarft þá ekki
nema til að þýða upp þennan aragrúa forrita sem fylgja.
Spirou skrifaði:... Nú er RedHat komið á sex diska svo maður er hættur að nenna að downloada þessu og skrifa...
Sent: Mán 28. Apr 2003 09:53
af Spirou
Ég veit það alveg en maður verður sko að hafa complete seríuna, annars er það bara frat
Sent: Mán 28. Apr 2003 12:22
af Voffinn
Spirou skrifaði:Ég hef notað RedHat síðan version 5
And you must be like 80 or sum