Síða 1 af 2
500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 20. Ágú 2015 18:44
af kizi86
http://vortex.is/holdum-afram-ad-auka-h ... ina-okkar/hvernig lýst ykkur á? auka hraðann úr 400 í 500Mbit og auka gagnamagnið um 100GB, OG LÆKKA verðið..
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 20. Ágú 2015 19:03
af MuGGz
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 20. Ágú 2015 19:11
af kizi86
whohoo... samkeppni, me like.. spurning um að skella sér á þetta...
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 20. Ágú 2015 19:29
af GuðjónR
500/500 woohooo hoooo .... 62.5MBs gamlir HDD's eru orðnir flöskuhálsar hahahaha...
Ég fæ hálfgerða minnimáttarkennd með mína 50/50 hjá Hringdu
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 20. Ágú 2015 19:33
af Andri Þór H.
Mig langar í ljós núna!!!
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 20. Ágú 2015 19:35
af nidur
Virkilega flott, en ég sé ekki persónlega tilganginn að borga meira en helmingi meira til að fá meiri hraða.
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 20. Ágú 2015 20:42
af wicket
Þetta er auðvitað frábært, allur þessi hraði.
En ég hef bara ekkert við hann að gera... þannig að ég ætla ekki að stökkva á þetta. En þetta er fín og eðlileg þróun.
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 20. Ágú 2015 21:11
af GuðjónR
Ég á ekki von á því að margir séu tilbúnir til að borga auka 60k á ári fyrir svona úber hraða, ég væri samt alveg til í að prófa svona í einn mánuð eða svo...
Bara spurning hvort það væri ekki skrítið að fara aftiur í "venjulega" tengingu eftir að hafa prófað svona lagað.
Hraðinn er flottur en verðið er allt of hátt.
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 20. Ágú 2015 21:18
af krat
er að borga þetta á mánuði í dag eða 10-14þús bara fyrir net. sótti um þetta strax og hef lengi verið að væla í þeim að stækka tenginguna eða bjóða upp á það.
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 20. Ágú 2015 21:22
af GuðjónR
krat skrifaði:er að borga þetta á mánuði í dag eða 10-14þús bara fyrir net. sótti um þetta strax og hef lengi verið að væla í þeim að stækka tenginguna eða bjóða upp á það.
Þú sýnir okkur speedtest þegar þú færð þetta nammi til þín!
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 20. Ágú 2015 21:22
af BugsyB
ég er með svona box og ac router og allt ready fyrir þetta - ætti maður
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 20. Ágú 2015 21:45
af GuðjónR
BugsyB skrifaði:ég er með svona box og ac router og allt ready fyrir þetta - ætti maður
Getur prófað í einn mánuð
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 20. Ágú 2015 23:27
af BugsyB
já en ég kann svo vel voð hringiðjuna
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 27. Ágú 2015 17:55
af GunniH
Sælir,
Vill bara benda á að við hjá Hringdu erum einnig að bjóða upp á 500/500 í forsölu frá og með deginum í dag.
Við erum ekki komnir með AC routerana með Gbit tengjum og er það eina ástæðan fyrir því að þetta er "forsala". Þeir ættu að koma mjög fljótlega en ef þú átt sjálfur góðan router þá geturðu tengst 500/500 í dag*.
Verðið á ótakmörkuðum pakka verður 11.490 kr.
Einnig er í boði 200/200 ótakmarkað á 9.990 kr.
* Þú verður að vera með Genexis box og tengdur við Gbit port í switch hjá GR, ef ekki þá geturðu samt pantað en gætir þurft að bíða eftir uppfærslu á boxi/tengingu í stöð.
Kveðja,
Gunnar
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 27. Ágú 2015 20:12
af Andri Þór H.
er engin kominn með 500/500 ? langar allveg mikið að sjá speed test frá einhverjum.
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 27. Ágú 2015 20:24
af Viggi
Mikið væri gaman að fá svona hraða á vesturlandinu en gerist varla næstu 15 árin eða svo
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 27. Ágú 2015 20:45
af GuðjónR
GunniH skrifaði:Sælir,
Vill bara benda á að við hjá Hringdu erum einnig að bjóða upp á 500/500 í forsölu frá og með deginum í dag.
Við erum ekki komnir með AC routerana með Gbit tengjum og er það eina ástæðan fyrir því að þetta er "forsala". Þeir ættu að koma mjög fljótlega en ef þú átt sjálfur góðan router þá geturðu tengst 500/500 í dag*.
Verðið á ótakmörkuðum pakka verður 11.490 kr.
Einnig er í boði 200/200 ótakmarkað á 9.990 kr.
* Þú verður að vera með Genexis box og tengdur við Gbit port í switch hjá GR, ef ekki þá geturðu samt pantað en gætir þurft að bíða eftir uppfærslu á boxi/tengingu í stöð.
Kveðja,
Gunnar
Flottir!
Þið eruð með besta verðið á 500/500 en í ykkar sporum þá myndi ég "decluttera" verðskrána aðeins.
Til dæmis þá er 77% verðmunur á 50/50 og 500/500 en hraðamunurinn er 1000%
Þið ættuð að henda út 50/50 og 75/75 og hafa 100/100 sem lágmark og "jafna" eða toppa Hringiðuna í verði sem býður uppá 100/100 á 6.990.-
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 27. Ágú 2015 22:22
af chaplin
Sammála með 100, 200 og 500 þrep.
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 27. Ágú 2015 22:36
af Prags9
GunniH skrifaði:Sælir,
Vill bara benda á að við hjá Hringdu erum einnig að bjóða upp á 500/500 í forsölu frá og með deginum í dag.
Við erum ekki komnir með AC routerana með Gbit tengjum og er það eina ástæðan fyrir því að þetta er "forsala". Þeir ættu að koma mjög fljótlega en ef þú átt sjálfur góðan router þá geturðu tengst 500/500 í dag*.
Verðið á ótakmörkuðum pakka verður 11.490 kr.
Einnig er í boði 200/200 ótakmarkað á 9.990 kr.
* Þú verður að vera með Genexis box og tengdur við Gbit port í switch hjá GR, ef ekki þá geturðu samt pantað en gætir þurft að bíða eftir uppfærslu á boxi/tengingu í stöð.
Kveðja,
Gunnar
Hvað þarf ég að borga mikið til að vera ekki með hræðilegt ping í CSGO ? Því mér finnst ég vera borga alveg slatta i miða við hversu slappt það er.
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 27. Ágú 2015 22:44
af pepsico
Prags9 skrifaði:Hvað þarf ég að borga mikið til að vera ekki með hræðilegt ping í CSGO ? Því mér finnst ég vera borga alveg slatta i miða við hversu slappt það er.
http://csgo.gamebanana.com/tools/5684Notaðu þetta forrit til að taka út allt nema EU West. Vonlaust að spila á hinum serverunum ef maður er hjá Hringdu eða Hringiðunni.
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fim 27. Ágú 2015 22:51
af GuðjónR
chaplin skrifaði:Sammála með 100, 200 og 500 þrep.
Akkúrat.
Minnsta ljósleiðaratengingin ætti að vera að minnsta kosti jafn hrðð og ljósnet Símans, helst hraðari en ekki helmingi veikari.
Þetta gefur Símanum færi á að snúa út úr og segja að ljósnetið sé á pari og jafnvel öflugra en ljósleiðari.
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fös 28. Ágú 2015 00:14
af chaplin
Góður punktur, finnst svo ekki ólíklegt að það sé langt í að 500/500 verði standard-inn, spurning þó hvort það verði stökkvi yfir það skref og fari beint í 1000/1000.
Ég man ekki hversu mikill hraði það var né hvað það kostaði nákvæmlega, en mig minnir að 400/400 hafi verið í boði fyrir 30.-40.000 kr fyrir aðeins 2-3 árum, núna er 500/500 á rúmlega 10.000 Kr.
Væri frábært ef Hringdu gæti promote-að 500/500 tenginguna sína og auðveldað aðgengi að Netflix og öðrum þjónustum. (veit þó ekki hvort það sé hægt)
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fös 28. Ágú 2015 09:34
af GunniH
GuðjónR skrifaði:Flottir!
Þið eruð með besta verðið á 500/500 en í ykkar sporum þá myndi ég "decluttera" verðskrána aðeins.
Til dæmis þá er 77% verðmunur á 50/50 og 500/500 en hraðamunurinn er 1000%
Þið ættuð að henda út 50/50 og 75/75 og hafa 100/100 sem lágmark og "jafna" eða toppa Hringiðuna í verði sem býður uppá 100/100 á 6.990.-
chaplin skrifaði:Sammála með 100, 200 og 500 þrep.
Kem þessu á rétta menn, get alveg sagt að við munum ekki lækka verðið á 100/100 en það gæti vel verið að það sé hægt að endurskoða pakkana. Lofa engu.
Prags9 skrifaði:Hvað þarf ég að borga mikið til að vera ekki með hræðilegt ping í CSGO ? Því mér finnst ég vera borga alveg slatta i miða við hversu slappt það er.
Viðurkenni að ég er hissa á því, hvað ertu að fá í ping á evrópsku serverunum? Minnir að flestir séu með 60-80 ping sem eru í þjónustu hjá okkur, sem telst ansi eðlilegt þar sem við nýtumst ekki við DanIce. Þ.a.l. rútumst við alltaf í gegnum Bretland en þar er standard 50-55 ping straight up, að það bætist við 10-30 ms að leikjaþjónunum er alls ekki óeðlilegt.
Getur sent mér email á gunnar hjá hringdu með screenshotum og við getum séð hvort við getum eitthvað breytt rútuninni til Lúx/Vienna þar sem CS:GO serverarnir eru.
chaplin skrifaði:Væri frábært ef Hringdu gæti promote-að 500/500 tenginguna sína og auðveldað aðgengi að Netflix og öðrum þjónustum. (veit þó ekki hvort það sé hægt)
Við munum promota eitthvað, veit ekki í hversu miklu magni. Varðandi Netflix þá höfum við lengi skoðað það og erum ekki vissir um hvort það sé þess virði, við munum halda áfram að skoða það, það eru ýmis downside sem þarf að vega upp á móti.
Ef einhver hér á vaktinni hefur áhuga á að setja upp fría eða ódýra Netflix nafnaþjóna fyrir vaktara þá er ágætis guide hér:
https://joodle.nl/setup-your-own-dns-an ... lu-tunnel/Kveðja,
Gunnar
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fös 28. Ágú 2015 09:47
af GuðjónR
GunniH skrifaði:GuðjónR skrifaði:Þið eruð með besta verðið á 500/500 en í ykkar sporum þá myndi ég "decluttera" verðskrána aðeins.
Til dæmis þá er 77% verðmunur á 50/50 og 500/500 en hraðamunurinn er 1000%
Þið ættuð að henda út 50/50 og 75/75 og hafa 100/100 sem lágmark og "jafna" eða toppa Hringiðuna í verði sem býður uppá 100/100 á 6.990.-
Kem þessu á rétta menn, get alveg sagt að við munum ekki lækka verðið á 100/100 en það gæti vel verið að það sé hægt að endurskoða pakkana. Lofa engu.
Orð eru til alls fyrst
En þið haldið áfram að gera ykkar besta og vera flottastir!
Re: 500Mbit fiber hjá hringiðunni
Sent: Fös 28. Ágú 2015 14:24
af gardar
Prags9 skrifaði:Hvað þarf ég að borga mikið til að vera ekki með hræðilegt ping í CSGO ? Því mér finnst ég vera borga alveg slatta i miða við hversu slappt það er.
Skipta yfir í annan ISP sem er að rúta almennilega úr landi