Síða 1 af 1
Loftlína milli tveggja húsa
Sent: Mið 08. Des 2004 12:52
af MuGGz
Halló.
Mér vantar smá ráð frá ykkur..
þannig er mál með vexti að við ætlum að tengja 2 hús saman og á milli þeirra eru ca 200m í loftlínu.
það er ekkert hús á milli og þau eru beint á móti hvoru öðru ..
Hvernig búnað ætti ég að fá mér og myndi ég vera tapa einhverjum hraða á þessu ?
Sent: Mið 08. Des 2004 13:12
af Emizter
Ef þú villt missa sem minnstu gæðin fyrir sem minnstan pening mæli ég með að þú kaupir eitthvað af þessu þrenna neðsta á
Þessari síðu.
Setja það síðan bara utan á húsið sem er með upprunalegu tenginguna.
Sent: Mið 08. Des 2004 13:14
af MezzUp
Þið ættuð að geta notað 802.11g WiFi kerfi. Fengið ykkur netkort sem bíður uppá external lofnet og
kaupið eða
útbúið Cantenna (stefnuvirkt 802.11b/g loftnet gert úr (pringles) dósum). Veit reyndar ekki alveg með drægnina á þessu, en þeir náðu að tengja saman evrópu og afríku með svona tæki(á sterum vitaskuld) minnir mig.
Re: Loftlína milli tveggja húsa
Sent: Fös 27. Júl 2012 07:16
af SIKO
ég er einmitt lika að pæla í þessu með félaga mínum við búum í blokkum á móti hvor öðrum og erum á sömu hæð það er kannski 80-120m á milli okkar í beinni línu. og okkur langar að senda netið á milli okkar...
Það er ljósleiðari í blokk A og viljum geta tegnst því í blokk B geri mér alveg grein fyrir bandvíddar tapi, þó ég hafi ekki hugmynd um það í raun, hef ekkert vit á netbúnaðar málum... langar eiginlega bara að vita hvað ég þarf til þess að láta það ganga upp, s.s hvaða búnað ætti ég að kaupa og þess háttar..
Muggs hvernig leistir þú þetta mál ?
Re: Loftlína milli tveggja húsa
Sent: Fös 27. Júl 2012 07:21
af rango
SIKO skrifaði:ég er einmitt lika að pæla í þessu með félaga mínum við búum í blokkum á móti hvor öðrum og erum á sömu hæð það er kannski 80-120m á milli okkar í beinni línu. og okkur langar að senda netið á milli okkar...
Það er ljósleiðari í blokk A og viljum geta tegnst því í blokk B geri mér alveg grein fyrir bandvíddar tapi, þó ég hafi ekki hugmynd um það í raun, hef ekkert vit á netbúnaðar málum... langar eiginlega bara að vita hvað ég þarf til þess að láta það ganga upp, s.s hvaða búnað ætti ég að kaupa og þess háttar..
Muggs hvernig leistir þú þetta mál ?
Hó
Mið 08. Des 2004
Re: Loftlína milli tveggja húsa
Sent: Fös 27. Júl 2012 07:57
af SIKO
bara finna gamla umræðu og vekja hana
en ég er eflaust buinn að finna mér búnaðinn...
og takk fyrir að gefa þér tima til að hæðast af hvað þetta er gamall póstur..
gaman samt að vita að það er hægt að finna svona gamla pósta