Síða 1 af 1
Tölvupóststillingar @internet.is
Sent: Þri 18. Ágú 2015 18:09
af slapi
Ég er að græja hérna fyrir tengdamömmu mína stillingar fyrir @internet.is tölvupóstfangið hennar (Vodafone)
Þar sem hún er ekki með neina nettengingu hjá Vodafone hleypa þeir ekki tölvupóstfanginu í gegnum Outgoing serverinn hjá sér (mail.internet.is:587) og vísa á að Símann þar sem hún er með áskriftina á GSM-símanum sínum (er ekki með neitt annað á sínu nafni) og þeirra Outgoing server er postur.simnet.is sem gengur ekki (þarf ekki login).
Ég er búinn að tala við báða aðila og engin svör um hvernig þetta eigi að ganga upp , ég er búinn að prófa að hafa gmail sem outgoing server en þegar það er svoleiðis sendist ekki @internet.is emailið hennar með e-mailinu heldur kemur bara nafnið hennar og ekkert e-mail á bakvið það (strange?)
Einhver með einfalda laus á þessu hjá henni?
kv D
Re: Tölvupóststillingar @internet.is
Sent: Þri 18. Ágú 2015 18:47
af capteinninn
Eh þetta póstfang er náttúrulega hýst hjá Vodafone.
Þú þarft að spyrja þá hvort það sé ennþá virkt þetta netfang, mig minnir að þeir loki póstfanginu eftir einhvern tíma frá því að neti er sagt upp. Nokkuð viss um að Voda séu búnir að loka því fyrst hún er ekki með neinar þjónustur í gangi þar.
Síminn getur ekkert aðstoðað með þetta því að þetta er ekki hýst hjá þeim og þá virkar væntanlega ekki mail serverinn þeirra.
Getur örugglega verið með netfanið áfram en þarft þá að borga fyrir það.
Re: Tölvupóststillingar @internet.is
Sent: Þri 18. Ágú 2015 19:14
af beatmaster
Hvað forrit ertu að reyna að stilla?
Re: Tölvupóststillingar @internet.is
Sent: Þri 18. Ágú 2015 20:09
af slapi
capteinninn skrifaði:Eh þetta póstfang er náttúrulega hýst hjá Vodafone.
Þú þarft að spyrja þá hvort það sé ennþá virkt þetta netfang, mig minnir að þeir loki póstfanginu eftir einhvern tíma frá því að neti er sagt upp. Nokkuð viss um að Voda séu búnir að loka því fyrst hún er ekki með neinar þjónustur í gangi þar.
Síminn getur ekkert aðstoðað með þetta því að þetta er ekki hýst hjá þeim og þá virkar væntanlega ekki mail serverinn þeirra.
Getur örugglega verið með netfanið áfram en þarft þá að borga fyrir það.
Það er vel virkt netfangið og ég skrái mig inná það á
http://postur.internet.is og eins og kemur fram í leiðbeiningum frá þeim ef þú ert ekki með nettengingu frá þeim geturðu ekki notast við Outgoing serverinn þeirra.
https://vodafone.is/adstod/stillingar/Stillingar-tolvupostur/?tabid=1 skrifaði:Tölvan þín finnur ekki útfarandi póstþjón.Staðfestu að þú hafir skrifað mail.internet.is rétt. Önnur ástæða gæti verið að þú ert með netþjónustu hjá öðru fyrirtæki en Vodafone. Outgoing server þarf að vera sá sem netþjónustan þín notar.
beatmaster skrifaði:Hvað forrit ertu að reyna að stilla?
Android,, Galaxy S4
Re: Tölvupóststillingar @internet.is
Sent: Þri 18. Ágú 2015 21:01
af depill
Er Síminn tengdur við farsímanet Símans meðan þú ert að stilla þetta ?
Þá "á" mail.simnet.is að virka sem outgoing meðan Síminn er tengdur við netkerfi Símans.
Re: Tölvupóststillingar @internet.is
Sent: Þri 18. Ágú 2015 21:57
af Chokotoff
Einfaldasta lausnin á e-mail veseni er að stofna bara nýtt og láta það gamla áframsenda.
Á ekki annars að vera hægt að stilla gmail þannig að það sé einsskonar frontur fyrir annað póstfang?
Re: Tölvupóststillingar @internet.is
Sent: Mið 19. Ágú 2015 00:48
af capteinninn
slapi skrifaði:capteinninn skrifaði:Eh þetta póstfang er náttúrulega hýst hjá Vodafone.
Þú þarft að spyrja þá hvort það sé ennþá virkt þetta netfang, mig minnir að þeir loki póstfanginu eftir einhvern tíma frá því að neti er sagt upp. Nokkuð viss um að Voda séu búnir að loka því fyrst hún er ekki með neinar þjónustur í gangi þar.
Síminn getur ekkert aðstoðað með þetta því að þetta er ekki hýst hjá þeim og þá virkar væntanlega ekki mail serverinn þeirra.
Getur örugglega verið með netfanið áfram en þarft þá að borga fyrir það.
Það er vel virkt netfangið og ég skrái mig inná það á
http://postur.internet.is og eins og kemur fram í leiðbeiningum frá þeim ef þú ert ekki með nettengingu frá þeim geturðu ekki notast við Outgoing serverinn þeirra.
Okei, ertu örugglega að stilla?
Kóði: Velja allt
Account type: IMAP
Server: postur.simnet.is
Security type: Off (Ekki SSL, TLS eða neitt slíkt).
Incoming port: 143
Outgoing port: 25
Re: Tölvupóststillingar @internet.is
Sent: Mið 19. Ágú 2015 05:45
af Viktor
Getur notað outgoing server: vmail.c.is
Þá virkar pósthólfið á öllum netum, en þá verðurðu að nota user & pass authentication. Spurðu Vodafone nánar út í það.
hjalp@vodafone.is
Re: Tölvupóststillingar @internet.is
Sent: Mið 19. Ágú 2015 09:44
af beatmaster
Ég var að gramsa í þessu í gærkvöldi og fann ekkert útúr þessu (er með S4 og á @internet.is netfang) og mér finnst þetta fáranlegt, hins vegar gekk þetta fínt núna eftir aftir að ég sá póstin hér frá Sallarólegur.
Svona virkar þetta (hjá mér)
Incoming stillingar
Account type: IMAP
Server: mail.internet.is
Security type: Off (Ekki SSL, TLS eða neitt slíkt).
Incoming port: 143
Outgoing stillingar
Server: vmail.c.is
Security type: Off (Ekki SSL, TLS eða neitt slíkt)
Hakað í use sign-in (passaðu að sjálfkrafa kemur notendanafn sem netfangið en án @internet.is í endann þarf að bæta því við handvirkt )
Outgoing port: 587
Re: Tölvupóststillingar @internet.is
Sent: Mið 19. Ágú 2015 21:23
af slapi
Þessi vmail server virkaði, djöfulsins snillingar, takk