Síða 1 af 1

Skoða gögn í síma úr tölvu utan heimanets ?

Sent: Fös 07. Ágú 2015 09:15
af andribolla
Góðan dag

er eithver með góða lausn á þessu ?

ég vil helst ekki nota online backup eins og dropbox, þar sem ég er ekki viss um að ég kæri mig um að öll gögnin séu geymd hjá þriðja aðila.
vil heldur ekki Desktop forrit eins og TeamViwer, þar sem þau geta verið hæg.

vil helst getað séð möppurnar bara og valið þær beint í síma eða spjaldtölvu.

kv. Andri

Re: Skoða gögn í síma úr tölvu utan heimanets ?

Sent: Fös 07. Ágú 2015 09:28
af slapi
Án þess að vera í FTP eða álíka lausnum myndi ownCloud örugglega henta þér best
https://owncloud.org/

Re: Skoða gögn í síma úr tölvu utan heimanets ?

Sent: Fös 07. Ágú 2015 09:38
af nidur
Owncloud pottþétt í síma og browser hvar sem er.

Re: Skoða gögn í síma úr tölvu utan heimanets ?

Sent: Fös 07. Ágú 2015 09:51
af andribolla
Líst vel á þetta owncloud

Þarf ég þá ekki að vera með tölvu/server sem er að keira á linux fyrir owncloud ?
öll gögnin eru inn á server sem er að keira win server.
gæti ég linkað owncloud inn á net-drif á win servernum ? :)

Re: Skoða gögn í síma úr tölvu utan heimanets ?

Sent: Fös 07. Ágú 2015 09:56
af slapi
Já getur gert það svoleiðis. Þarft bara að mounta það í linuxinu

Re: Skoða gögn í síma úr tölvu utan heimanets ?

Sent: Fös 07. Ágú 2015 09:58
af slapi
menn hafa líka runnað bara eitthvað létt kernel í virtual á win serverunum sínum

Re: Skoða gögn í síma úr tölvu utan heimanets ?

Sent: Fös 07. Ágú 2015 10:15
af Hvati
Af hverju seturu ekki bara upp FTP server?

Re: Skoða gögn í síma úr tölvu utan heimanets ?

Sent: Fös 07. Ágú 2015 14:12
af Tiger
Hvað með bittorrentsync?

https://www.getsync.com

Re: Skoða gögn í síma úr tölvu utan heimanets ?

Sent: Fös 07. Ágú 2015 14:17
af andribolla
Tiger skrifaði:Hvað með bittorrentsync?

https://www.getsync.com


nei ég held að þetta gangi ekki, þar sem þetta væri þá að dreifa öllum gögnunum yfir á mörg tæki sem eru sum með takmarkað geymslupláss.

Re: Skoða gögn í síma úr tölvu utan heimanets ?

Sent: Fös 07. Ágú 2015 14:35
af Tiger
andribolla skrifaði:
Tiger skrifaði:Hvað með bittorrentsync?

https://www.getsync.com


nei ég held að þetta gangi ekki, þar sem þetta væri þá að dreifa öllum gögnunum yfir á mörg tæki sem eru sum með takmarkað geymslupláss.


Don't want to sync the entire contents of a folder to your device? Turn off 'Sync all' to save space. You can choose to only sync files on-demand, when you need them.

Re: Skoða gögn í síma úr tölvu utan heimanets ?

Sent: Fös 07. Ágú 2015 15:41
af BugsyB
setja nara upp ftp og þá er málið leyst og ekkert vesen og aðgengilegt allstaðar og ef þú ert með áhyggjur af öruggi þá bara sftp

Re: Skoða gögn í síma úr tölvu utan heimanets ?

Sent: Fös 07. Ágú 2015 15:52
af Frantic
Bittorent Sync