Síða 1 af 1

Svíarnir... hel* svíarnir...

Sent: Fös 03. Des 2004 21:31
af Snorrmund
http://www.labs2.se/pr/press2004113001.html 1gbita tengingar! maður þarf reyndar ekkert að skilja sænsku til að skilja þetta.. og þetta er ekki eitthvað overprice.. þetta er á um 140$ per month..

Sent: Fös 03. Des 2004 21:54
af tms
Já eða eins og stendur þarna fyrir þá sem búa í Skáne kostar þetta 850SEK (rúmlega 8000kr) á mánuði með 6 mánaðar bindingstíma. Segið svo að Hive sé gott :P

Sent: Fös 03. Des 2004 22:08
af ParaNoiD
vá um að gera að bera hive við svía ... af hverju ekki bera símann eða voddafokk við svía

Hive eru þó að gera EITTHVAÐ jákvætt !

Sent: Lau 04. Des 2004 00:53
af tms
ParaNoiD skrifaði:vá um að gera að bera hive við svía ... af hverju ekki bera símann eða voddafokk við svía

Hive eru þó að gera EITTHVAÐ jákvætt !

ég var ekkert að segja að hive sé eitthvað lélegt, ég var bara að bera saman besta tilboðið á íslandi bið örugglega besta tilboðið í svíþjóð.

Sent: Lau 04. Des 2004 19:49
af mbh
Svona smá reynsla sem ég lenti í...............var á námskeiði í henni Stockholm fyrr á þessu ári. Var á hoteli í einhverju viðskipta hverfi sem heitir Kistan, sem er svo sem ekki frásögufærandi. Nema hvað að maður var auðvitað með lappann með sér og allt, og þegar ég sest við skrifborðið á herberginu, þá tek ég eftir RJ45 tengi í veggnum!! Maður náttlega pluggaði í samband og viti menn hviss hvass búmm, tenging komin á!! En ég download bældi íslendingur reif tengið úr sambandi strax, hélt kannski að þetta svona 1000 kall á bætið. En áhvað að fara niður í lobbý og tjekka á þessu, og stúlkan sem varð fyrir svörum hló nú bara að mér, og sagði AUÐVITAÐ!!! er Internetið frítt hér!

Bara svona smá reynslusaga

Sent: Lau 04. Des 2004 20:01
af skipio
Ég held að flest stóru hótelin á Íslandi hafi fyrir löngu síðan byrjað að bjóða upp á [ókeypis] netaðgang. Allavega eru bæði Holtið og Hótel Saga með þessháttar.

Sent: Lau 04. Des 2004 21:17
af mbh
Hvernig átti ég að vita það, aldrei gist á íslensku hóteli :oops:

Sent: Lau 04. Des 2004 21:32
af hahallur
Það eru mörg hotel í ameríku sem rukka formúðu fyrir netið.

Sent: Sun 05. Des 2004 23:27
af Bessi
skipio skrifaði:Ég held að flest stóru hótelin á Íslandi hafi fyrir löngu síðan byrjað að bjóða upp á [ókeypis] netaðgang. Allavega eru bæði Holtið og Hótel Saga með þessháttar.

Gæti þá verið að það borgaði sig að leyfa tölvunni að gista á hóteli eina nótt þegar maður ætlaði að fara að downloada einhverju stóru :roll:

Sent: Sun 05. Des 2004 23:45
af MezzUp
Bessi skrifaði:
skipio skrifaði:Ég held að flest stóru hótelin á Íslandi hafi fyrir löngu síðan byrjað að bjóða upp á [ókeypis] netaðgang. Allavega eru bæði Holtið og Hótel Saga með þessháttar.

Gæti þá verið að það borgaði sig að leyfa tölvunni að gista á hóteli eina nótt þegar maður ætlaði að fara að downloada einhverju stóru :roll:

Þyrfti að vera þónokkuð stórt til þess að það borgaði sig held ég :)

Sent: Mán 06. Des 2004 00:34
af djjason
hahallur skrifaði:Það eru mörg hotel í ameríku sem rukka formúðu fyrir netið.


Hef einmitt orðið vitni af því, gisti á hóteli hérna í USA einu sinni og þeir buðu upp á internet og auglýstu það alveg villt og galið bæði þráðlaust og í vegg. En svo kostaði það bara hvítuna úr augunum að ætla að kíkja aðeins á netið, auk þess sem að þetta var enginn heaví tenging. Það sem meira er, er að hótelið er nú svona í hópi þeirra sem eiga að vera frekar almennileg og virt meðal almennings.