Síða 1 af 1

Locker v1.35 Vírus HJÁLP!!!

Sent: Mán 25. Maí 2015 12:08
af steinarth
Sælir,

Ég var að fá minn fyrsta allvöru vírus.

http://tinypic.com/r/jjmhxf/8

Þetta er bara fast uppi á desktopinu hjá mér og er búið að encrypta einhverja fæla.

Það er svosem engin gögn í þessari tölvu sem ég er hræddur við að missa þar sem þetta er bara leikjatölvan mín, en auðvitað leiðilegt að missa alla leikina og þurfa að downloada gta5 aftur etc.

Hefur einhver lennt í þessu og veit hvernig á að laga þetta.

Ég nota þessa tölvu bara í tölvuleiki og kíkja á facebook 9gag youtube og svona basic síður. Ekkert download!

Re: Locker v1.35 Vírus HJÁLP!!!

Sent: Mán 25. Maí 2015 13:07
af NumerusX
Startaðu tölvunni í safe-mode og vertu með tilbúið á usb lykil avast free ,avira og malwarebytes veldu deepscan og slökktu síðan á netinu eftir þessar aðgerðir veldu alltaf "delete".

Re: Locker v1.35 Vírus HJÁLP!!!

Sent: Mán 25. Maí 2015 13:09
af NumerusX
Þetta tekur um það bil 24 tíma en alveg þess virði. Hef lent í þessu áður, algjört bull þessir "wannabe vírus strumpar".

Re: Locker v1.35 Vírus HJÁLP!!!

Sent: Mán 25. Maí 2015 13:12
af Gunnar
frekar myndi ég formatta og setja allt aftur upp. tekur 2 tima max
og svo downloada backuppi af icetracker http://icetracker.org/details.php?id=196657

Re: Locker v1.35 Vírus HJÁLP!!!

Sent: Mán 25. Maí 2015 13:19
af steinarth
Avast losaði mig við þetta. En ég var ekki búinn að setja upp backup í tölvunni minni svo ég tapaði ca 6 myndum úr pictures sem ég á pottþétt í símanum mínum eða í dropbox svo ég græt það ekki neitt

En spurningin er bara með alla hina fælana sem ég get ekki restorað eins og t.d file-ar sem tengjast tölvuleikjum. Kannski hefur þetta engin áhrif á það en worst case scenario þá installa ég þeim leikjum bara aftur.

Re: Locker v1.35 Vírus HJÁLP!!!

Sent: Mán 25. Maí 2015 13:21
af NumerusX
ef þetta skeður aftur mundu bara eftir þessari aðferð https://www.youtube.com/watch?v=c85svjkP_bw

Re: Locker v1.35 Vírus HJÁLP!!!

Sent: Mán 25. Maí 2015 16:01
af Tesy
Fékk þetta líka, FML.
Þetta er líka leikjatölvan mín, eina sem ég geri í henni er FB, youtube, spotify og leikir. Líklegt að ég formatti bara.

Re: Locker v1.35 Vírus HJÁLP!!!

Sent: Mán 25. Maí 2015 16:36
af Hellfire
Bara smá pæling, hvaða vírusvarnir eru menn að nota?

Re: Locker v1.35 Vírus HJÁLP!!!

Sent: Mán 25. Maí 2015 16:50
af HalistaX
Önnur pæling, hvað þarf maður að gera til þess að fá þessa vírusa?

EDIT: MSE

Re: Locker v1.35 Vírus HJÁLP!!!

Sent: Mán 25. Maí 2015 22:53
af arons4
HalistaX skrifaði:Önnur pæling, hvað þarf maður að gera til þess að fá þessa vírusa?

EDIT: MSE

Alvarlegur skortur á common sense ætti að duga.

Re: Locker v1.35 Vírus HJÁLP!!!

Sent: Mán 25. Maí 2015 23:52
af Tesy
arons4 skrifaði:
HalistaX skrifaði:Önnur pæling, hvað þarf maður að gera til þess að fá þessa vírusa?

EDIT: MSE

Alvarlegur skortur á common sense ætti að duga.


Já, algjörlega. Eina sem ég gerði í tölvunni sem var affectuð var að fara inn á vaktin.is, fb, youtube, GTA5 og HoN síðan er ég með aðra tölvu sem ég geri allt í. Er að lacka common sense :fly

EDIT: Það eru greinilega mjög margir sem fengu þessa "vírus" (Sjá http://www.reddit.com/r/techsupport/com ... /?sort=new) þannig að þetta hlýtur að koma frá eh stóru síðu.

Re: Locker v1.35 Vírus HJÁLP!!!

Sent: Þri 26. Maí 2015 08:28
af Moldvarpan
Það er gríðarlega mikið af vírusum og sníkjudýrum inni á facebook.

Þarft að passa þig að klikka ekki á ákveðna hluti. Rétt eins og með tölvupóst, að opna ekki allt.

Þú færð ekki þennan viðbjóð bara við að opna vaktina, fb og youtube,,,,, notendurnir eru að gera eitthvað meira en það.

Re: Locker v1.35 Vírus HJÁLP!!!

Sent: Þri 26. Maí 2015 09:44
af AntiTrust
Geturu ennþá opnað skrárnar þínar? Documents/Myndir/skrárnar sem eru listaðar í Files glugganum?

Ef ekki, eða þær koma upp sem corrupted er þetta Cryptolocker, sem dulkóðar allar skrárnar þínar með allt að 2048 bit RSA dulkóðun. Hinsvegar er verið að biðja um svo fáránlega lága upphæð m.v. það sem flestir cryptolockers biðja um (1BTC) að þetta gæti allt eins bara verið fake cryptolocker og þá e-ð sem væri hægt að fjarlægja.

Prufaðu að keyra Malwarebytes, CCleaner (og þá sérstaklega Registry cleanerinn þar) ásamt MSE í safe mode og athugaðu hvort þetta hverfur.

Re: Locker v1.35 Vírus HJÁLP!!!

Sent: Þri 26. Maí 2015 11:08
af Tesy
Moldvarpan skrifaði:Það er gríðarlega mikið af vírusum og sníkjudýrum inni á facebook.

Þarft að passa þig að klikka ekki á ákveðna hluti. Rétt eins og með tölvupóst, að opna ekki allt.

Þú færð ekki þennan viðbjóð bara við að opna vaktina, fb og youtube,,,,, notendurnir eru að gera eitthvað meira en það.


Er með ad blocker og passa mig alltaf á að klikka ekki á eitthvað rugl, er ekki amateur tölvugaur.
Fór yfir historyið og það er ekkert annað. Þetta er tölva sem ég kveiki á 2x í viku eða svo. I dont know men, búinn að formatta og þetta er farið. Var hvorteð er ekkert mikilvægt þarna.


AntiTrust skrifaði:Hinsvegar er verið að biðja um svo fáránlega lága upphæð m.v. það sem flestir cryptolockers biðja um (1BTC) að þetta gæti allt eins bara verið fake cryptolocker og þá e-ð sem væri hægt að fjarlægja.


Þeir eru með countdown (eins og tímasprengja). Þeir biðja um 0.1BTC núna en þegar tíminn er runninn upp hækkar það upp í 1BTC hef ég heyrt/lesið.

Re: Locker v1.35 Vírus HJÁLP!!!

Sent: Þri 26. Maí 2015 11:53
af AntiTrust
Tesy skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Hinsvegar er verið að biðja um svo fáránlega lága upphæð m.v. það sem flestir cryptolockers biðja um (1BTC) að þetta gæti allt eins bara verið fake cryptolocker og þá e-ð sem væri hægt að fjarlægja.


Þeir eru með countdown (eins og tímasprengja). Þeir biðja um 0.1BTC núna en þegar tíminn er runninn upp hækkar það upp í 1BTC hef ég heyrt/lesið.


Já nema hvað þeir eru vanir að byrja í mikið hærri upphæð, þ.e. þeir lockerar sem ég hef verið að díla við hafa nær alltaf byrjað í 1BTC og hækkað þaðan af - en það eru svosem örugglega til variantar af þessu. Pointið er að þar sem upphæðin er svo lág þá gæti það frekar gefið til kynna að þetta væri bara e-ð cheap c/p og reyna að fá þig til að borga bara strax í staðinn fyrir að skoða hvort þú getir fjarlægt þetta öðruvísi.

Re: Locker v1.35 Vírus HJÁLP!!!

Sent: Fös 29. Maí 2015 22:23
af brain
Greinilegt að Locker er að láta á sér kræla.

http://www.neowin.net/news/sleeper-rans ... eds-of-pcs

Re: Locker v1.35 Vírus HJÁLP!!!

Sent: Fös 29. Maí 2015 23:09
af gutti
ég er með adblocker Kaspersky Internet Security CCleaner :happy virka fínt