Síða 1 af 1

Tekur Steam erlent gagnamagn

Sent: Mið 29. Apr 2015 20:34
af Kallikúla
Hæ, var að fá GTA V á steam, ef ég er með stillt á Greenland & Iceland í download tekur það þá erlend gagnamagn?

Er nefnilega bara með 50gb eftir af erlendu en leikurinn er 60.

Re: Tekur Steam erlent gagnamagn

Sent: Mið 29. Apr 2015 20:36
af goatboy
það gerði það ekki í den, þ.e.a.s. áður en allt upp/niður var mælt. Ég er hjá símanum og get bara svarað fyrir hvernig það var þar.

Re: Tekur Steam erlent gagnamagn

Sent: Mið 29. Apr 2015 20:37
af Kallikúla
Er hjá vodafone, þar er ekki tekið innlent, hef bara áhyggjur að þurfa að borga fyrir þennan rándýra aukapakka.

Re: Tekur Steam erlent gagnamagn

Sent: Mið 29. Apr 2015 20:48
af Orri
Er með Ljósnet hjá Vodafone. GTA V downloadið af Steam virðist hafa talið svona 10gb erlent, restin taldi ekki :)
Spurði einmitt út í þetta á GTA V þræðinum og þar var annar hjá Vodafone sem sagði sömu sögu, 10gb af 60 voru erlend.

Re: Tekur Steam erlent gagnamagn

Sent: Mið 29. Apr 2015 20:50
af HalistaX
Það er rosalega misjafnt. Það er samt GTA V Steam Backup inná deildu.net!

Re: Tekur Steam erlent gagnamagn

Sent: Mið 29. Apr 2015 20:53
af Kallikúla
Orri skrifaði:Er með Ljósnet hjá Vodafone. GTA V downloadið af Steam virðist hafa talið svona 10gb erlent, restin taldi ekki :)
Spurði einmitt út í þetta á GTA V þræðinum og þar var annar hjá Vodafone sem sagði sömu sögu, 10gb af 60 voru erlend.

Með link?

nvm fann þetta

Re: Tekur Steam erlent gagnamagn

Sent: Mið 29. Apr 2015 22:26
af J1nX
backupið er líka á deildu.. getur dlað því þar

Re: Tekur Steam erlent gagnamagn

Sent: Mið 29. Apr 2015 23:48
af suxxass
Vinsælasta efni internetsins hverju sinni er hýst á svokölluðum speglum og flest íslensk fyrirtæki rukka ekki þar fyrir sem erlent niðurhal. Það er því ómögulegt að vera 100% viss um hvað þetta telji mikið. En ég hef heyrt ca 10GB af 60 hjá Voda hjá fleiri en einum.

Re: Tekur Steam erlent gagnamagn

Sent: Fim 30. Apr 2015 11:22
af darkppl
síðast þegar ég vissi taldi vodafone fyrir speglana allanvegana fyrir akamai.

Re: Tekur Steam erlent gagnamagn

Sent: Fim 30. Apr 2015 18:55
af Yawnk
Ég náði nú í GTA V á Steam og er með ljósnet símans, það taldi hvert einasta GB af downloadi

Re: Tekur Steam erlent gagnamagn

Sent: Fim 30. Apr 2015 18:59
af Blackened
Yawnk skrifaði:Ég náði nú í GTA V á Steam og er með ljósnet símans, það taldi hvert einasta GB af downloadi


En það er nú sennilega vegna þess að Síminn rukkar þig fyrir hvert einasta GB af efni sem bæði kemur til þín og fer frá þér ;) bæði innanlands og utan!

Re: Tekur Steam erlent gagnamagn

Sent: Fim 30. Apr 2015 18:59
af worghal
Yawnk skrifaði:Ég náði nú í GTA V á Steam og er með ljósnet símans, það taldi hvert einasta GB af downloadi

af því að síminn telur allt?