Síða 1 af 1

554 571 relay access denied tölvupóst villa hjá Símanum (simnet).

Sent: Sun 22. Mar 2015 21:00
af snaeji
Eftir að ég setti upp Office2013 pakka og setti upp tölvupóst stillingarnar þá hef ég verið að fá þessa villumeldingu:

554 571 relay access denied frá póstþjóni símans.

Talaði við einhvern í tækniverinu sem virtist ekkert geta hjálpað mér og sagði þetta hljómaði eins og vandamál mín megin.
Fylgdi leiðbeiningum í stillingum frá þeim og þetta er á 2 tölvum á sömu tengingu.

Serverinn acceptar login og ég get náð í póstinn en send-email testið er að skila þessu.

Einhverjar hugmyndir ?

Re: 554 571 relay access denied tölvupóst villa hjá Símanum (simnet).

Sent: Sun 22. Mar 2015 21:10
af Vaktari
Ekki að vera með leiðindi. En ef þú googlar þennan error að þá áttu eflaust eftir að fá fullt af lausnum upp.
Ert ekki sá fyrsti til að lenda í þessu

Re: 554 571 relay access denied tölvupóst villa hjá Símanum (simnet).

Sent: Sun 22. Mar 2015 21:26
af emmi
Ertu með internettengingu hjá Símanum og með @simnet.is póstfang og væntanlega þá að nota postur.simnet.is í incoming & outgoing server?

Re: 554 571 relay access denied tölvupóst villa hjá Símanum (simnet).

Sent: Sun 22. Mar 2015 21:30
af krat
taktu mynd af stillingum hjá þér settu hér inn og blurraðu user + pass :)

Re: 554 571 relay access denied tölvupóst villa hjá Símanum (simnet).

Sent: Sun 22. Mar 2015 21:35
af snaeji
Engar áhyggjur engin leiðindi áætluð en ég væri ekkert að standa í því að búa til póst hingað inn ef ég væri ekki búinn að gefast upp á google.

En Outlook2013 afhakar víst SMTP authentication í default setupi hjá mér sem mér yfirsást alltaf svo þar lá vandamálið, fór aulalega fram hjá mér ](*,)

edit viðbót:

Ég lenti ekki í neinu veseni með þetta á 2 tölvum þeim megin sem tenging frá símanum er, en lenti í þessu á ljósleiðaranum frá Vodafone. Kannski algjör tilviljun en ég er ekki viss.

Þakka samt hjálpina!

Re: 554 571 relay access denied tölvupóst villa hjá Símanum (simnet).

Sent: Mán 23. Mar 2015 00:43
af capteinninn
Mér skilst að ef þú ert á tengingu hjá Símanum þá tengistu default with mail serverinn hjá þeim, ef þú ferð á tengingu annarsstaðar þarftu að stilla póstforritin til að fara á réttan server. Er samt ekki viss með þetta