Síða 1 af 1

Að tengja Windows 2000 við Windows XP

Sent: Fös 26. Nóv 2004 14:04
af drapskind
Ég var að setja upp windows 2000 professional á tölvuna mína. Til þess að tengjast internetinu þá þarf ég að tengjast við tölvu bróður míns í gegnum workgroup. Hans tölva er með Windows XP... Hvernig kemst ég í þennan workgroup með windows 2000 stýrikerfinu? Gæti einhver skrifað einhvers konar leiðbeiningar hérna?

Sent: Fös 26. Nóv 2004 14:35
af MezzUp
Til þess að breyta workgroup á Windows 2000:
Control Panel -> System -> Network Identification -> Change og þar sérðu workgroup

Sent: Fös 26. Nóv 2004 23:59
af drapskind
Ok. Ég gerði þetta, en það virðist eins og tölvan finni ekki lansnúruna sem er tengd í hubbinn(var að formatta og er í vandræðum með þetta). Veistu hvernig ég finn tengið svo ég geti tengst hinum tölvunum?

Sent: Lau 27. Nóv 2004 13:24
af gnarr
ef þú ert í vandræðum með að finna tengið, þá lítur það svoan út:

Mynd

þetta er oftast aftaná tölvunni.

ég efast stórlega um að tölvan þín geti fundið snúruna sjálf, þar sem að flestar tölvur eru ekki konar með nóg öflug gervigreind til að leita að snúrum útum allt.

annars geturu hjálpað tölvunni með því að finna svona snúru sem kemur úr höbbnum/switchinum:
Mynd

og stungið henni á samband við "tengið" sem er á fyrri myndinni.