Síða 1 af 1

Að færa netfangaskrá?

Sent: Fim 25. Nóv 2004 21:31
af so
Sælir nú, er í smá vandræðum.

Er að reyna a færa netfangaskrána (Contacts) úr outlook express í einni tölvu í outlook í annari vél og gengur brösuglega. (XP pro á báðum)

Er búinn að exporta skránni sem .csv fæl úr fyrri vélinni en gengur illa að inporta í þá seinni. :cry: Eitthvað að gera vitlaust.
Fællinn lítur hins vega mjög vel út í exel í tveimur dálkum.

Var líka búinn að prufa Files and settings transfer Wizard en gekk engu betur því ég gat ekki einangrað út þennan eina fæl til að exporta.

Þetta eru bara nöfn og netföng

Er ég kannski á villigötum og er hægt að gera þetta á miklu einfaldari máta? :oops:

Sent: Lau 27. Nóv 2004 00:34
af Zaphod
Exportar þú hana ekki sem .txt fæl ?

Hef gert þetta ansi oft , hefur aldrei verið neitt mál .

Sent: Sun 28. Nóv 2004 22:04
af so
.csv (comma separated value) er í rauninni bara hrein textaskrá og er eina formatið sem OE býður mér til að exporta úr og gengur það fínt, en það gengur ekki eins vel að inporta aftur í outlook í hinni vélinni.

Það virðist renna ljúft í gegnum wizardin en ekkert gerist og ég næ ekki að koma fælnum inn í outlookinn. Er búinn að breyta skránni í .txt og .xls en ekkert gengur :cry: Allar hugmyndir vel þegnar.

Ps, vitið þið hvar þessi skrá (contacts-address book ?) eða sú skrá sem hýsir nöfn og netföng í outlook er geymd.

Sent: Mið 01. Des 2004 00:40
af icemob
Þetta er sjálfgefna slóðin fyrir netfangaskrána í outlook.

C:\Program Files\Outlook Express

Skráin heitir svo að öllum líkindum "wab" :roll:

Sent: Mið 01. Des 2004 00:54
af scoop
Þú átt að geta importað .csv skrána með því að fara í Import... -> Other address book. Þar áttu að geta valið 'from text file (comma seperated values)' og vísað á .csv skrána.

Annars minnir mig að addressubókin (.wab skrá) sé í C:\Documents and Settings\Notendanafn\Application Data\Microsoft\Outlook Express eða einhversstaðar á þeim slóðum. Hana geturðu flutt yfir með Import... -> Address book.

Sent: Mið 01. Des 2004 00:55
af Pandemic
Nabbjabbar :D

Sent: Fim 02. Des 2004 21:58
af so
Takk scoop, seinna ráðið hjá þér virkaði. Gat inportað þá leiðina en ekki hina. :wink: