Síða 1 af 1

Síminn gagnanotkun

Sent: Mið 25. Feb 2015 10:17
af isr
Var að skoða gagnanotkun mína hjá símanum og hún er eitthvað furðuleg,tvo daga í röð er ég með um 25 gig. Ég hef alltaf verið inna marka 120 til 140 gig á mánuði,svo koma 50 gig á tveimur dögum. hafa einhverjir séð svona rugl.

Re: Síminn gagnanotkun

Sent: Mið 25. Feb 2015 13:26
af AntiTrust
Þú veist væntanlega afþví að það er verið að mæla alla umferð hjá þér? Innlent/erlent, niðurhal/upphal.

Eftir þá breytingu er bara afskaplega auðvelt að fara í háar tölur ef það gleymist eitt torrent í seedi eða verið að dæla út backupi í skýið t.d.

Re: Síminn gagnanotkun

Sent: Mið 25. Feb 2015 14:10
af isr
Eins og sagði hér að ofan er meðalnotkunin hjá mér 120 til 140 gig á mánuði sem er um 4 til 5 á dag. Ég er ekki með neitt í geymslu í skýi, ég downloada reglulega myndum og stöku þáttum,hef gert það lengi,þannig að þar er ekki nýr póstur í gagnaeyðslu. Þessa tvo daga var þetta um 5 gig í upphal og 45 niður,ég náði mér í efni sem samsvarar um 10 gig þessa tvo daga,þannig að venjuleg netumferð hefur verið um 40 gig.
Lenti í svipuðu á lansdmóti á Sauðakróki í sumar,þar fóru 8 gig af ferðarauternum hjá mér á tveimur dögum og það var nánast ekkert 3g samband og varla hægt að hringja vegna fjölda fólks. 8 gig og tengdist nánast aldrei netinu,og þeir gátu enga skýringu gefið á þessu.

Re: Síminn gagnanotkun

Sent: Mið 25. Feb 2015 14:13
af Blackened
Windows update? getur verið fljótt að tikka ef að það eru margar tölvur á heimilinu.. það útskýrir kannski aldrei 50gíg.. en kannski eitthvað

Re: Síminn gagnanotkun

Sent: Mið 25. Feb 2015 14:19
af depill
isr skrifaði:ég downloada reglulega myndum og stöku þáttum.

Gerirðu það með Torrent ? Getur ekki verið að hreinlega ða yfirleitt ertu ekki að uploada frá þér. En í þessu tilfelli gerðiru það hvort sem það var innanlands eða erlendis ?

Ég er allavega hjá Símanum og það var ekkert óeðlilegt að gerast í gær í mælingunni minni.
Mynd

Re: Síminn gagnanotkun

Sent: Mið 25. Feb 2015 14:24
af isr
Ég er ekki með opið á autamatic uppdate.

Re: Síminn gagnanotkun

Sent: Mið 25. Feb 2015 14:28
af Viktor
Gjörðu svo vel og verði þér að góðu:

www.hringdu.is
www.hringidan.is
www.simafelagid.is

Re: Síminn gagnanotkun

Sent: Mið 25. Feb 2015 14:47
af isr
Þetta var nú nokkuð skondið eldri dóttir mín sagðist hafa náði í 5 eða 6 myndir og ég skoðaði það ekkert nánar,þannig að ég skoðaði rétt í þessu hvaða myndir þetta voru og hversu stórar,þá voru þessar myndir 6 seríur af modern family 36gig. :D