Síða 1 af 14
Samkeppni við Símann og Vodafone?
Sent: Mán 22. Nóv 2004 20:52
af Fletch
kíkið á þetta
http://signup.hive.is
Segja frítt download og allt að 20mb tengingar!?
veit ekkert meira um þetta en það sem stendur þarna
Fletch
Sent: Mán 22. Nóv 2004 20:57
af dabb
Vás
Sent: Mán 22. Nóv 2004 21:01
af zaiLex
FRÍTT DOWNLOAD FRÍTT DOWNLOAD FRÍTT DOWNLOAD, þeir segja ekki EINU sinni frítt ERLENT download. Stórskrítið
Sent: Mán 22. Nóv 2004 21:04
af everdark
-
Sent: Mán 22. Nóv 2004 21:38
af MezzUp
Huh, þessi Firstmile kerfi eru að spretta upp hægri vinstri
Sent: Mán 22. Nóv 2004 21:41
af hahallur
Þetta er alltof dýrt.
Svo er 2mb tengingin mín allveg nógu góð fyrir mig.
Ég væri til í þetta ef þetta væri.
4mb/s á 3990kr mán.
Sent: Mán 22. Nóv 2004 22:02
af kemiztry
6k fyrir 8Mbps og frítt download (ef inni í því er erlent download) þá er þetta nánast ókeypis miðað við hvað hin fyrirtækin eru að bjóða
Sent: Mán 22. Nóv 2004 22:05
af emmi
Amm, en þeir segja að þetta séu kynningar tilboð þannig að það má búast við að þetta hækki eitthvað. En mér er sama , ég er alveg til í að borga aðeins meira fyrir tenginguna til að fá frítt download.
Sent: Mán 22. Nóv 2004 22:07
af einarsig
En hraðinn er bara byrjunin því Hive sameinar allt það besta sem breiðbandið hefur upp á að bjóða
er þetta þá ekki í gegnum breiðbandið ?
og ég er ekki með breiðbandið
það er hinumegin við götuna en ekki hjá mér urrgg
Sent: Mán 22. Nóv 2004 22:20
af emmi
Þetta eru ADSL2+ tengingar. ADSL2+ ræður mest við 25mbit niður og 3mbit upp ef ég man rétt.
Sent: Mán 22. Nóv 2004 22:25
af GuðjónR
Ég er hjá vodafone með 6Mb/s 832Kb/s 1GB .... borga 8.490kr á mán.
Sent: Mán 22. Nóv 2004 23:37
af gumol
Þetta virðist nota símalínurnar.
Er það bara afþví símafyrirtækin eiga alla fjölmiðla landsins sem maður hefur ekki heyrt af þessu?
Þetta er alltof gott til að vera satt, en ef þetta er satt þá jibbí
Edit: Þeir segja að maður geti haldið e-mailinu sínu (sem er varla hægt ef maður er með það hjá ISP'inum)?
Sent: Mán 22. Nóv 2004 23:47
af MezzUp
gumol skrifaði:Þetta virðist nota símalínurnar.
Er það bara afþví símafyrirtækin eiga alla fjölmiðla landsins sem maður hefur ekki heyrt af þessu?
Þetta er alltof gott til að vera satt, en ef þetta er satt þá jibbí
Edit: Þeir segja að maður geti haldið e-mailinu sínu (sem er varla hægt ef maður er með það hjá ISP'inum)?
Þetta er náttla flest nýkomið upp. Þetta sýnist mér líka nota Firstmile kerfið, þótt að ég sjái ekki að það standi á síðunni þá er dreifisvæðið þeirra alveg einsog hjá
http://www.son.is
Ég þori
næstum að fullyrða að maður getur ekki haldið e-mail'inu sínu ef að það er hjá ISP'num manns. Nema að þeir hafi gert einhvern samning? (stórefa það)
Sent: Þri 23. Nóv 2004 00:09
af Dagur
þetta er svo nýtt að mér sýnist þeir vera að vinna að síðunni í þessum skrifuðu orðum.
Sent: Þri 23. Nóv 2004 01:06
af skipio
Ég á afskaplega erfitt með að trúa því að þeir geti boðið upp á *ókeypis* niðurhal frá útlöndum (enda er það svosem hvergi tekið fram á síðunni þeirra). Bara 155Mbit tenging í gegnum Farice til Skotlands kostar litlar 100 millur á ári (skv. verðskránni frá því í haust - gæti hafa lækkað eitthvað síðan).
En það er auðvitað gaman að fá meiri hraða á ADSL-ið.
EDIT: „Fyrirtækið” er allavega staðsett á nákvæmlega sama stað og Firstmile, Hlíðasmára 12 svo þetta virðist vera eitthvað tengt. Símanúmerið er líka svotil það sama, 4141700 hjá Firstmile og 4141600 hjá Hive (eða eigum við að kalla það ITMobile.NET á Íslandi ehf?).
Son.is er hinsvegar eitthvað tengt Omega sjónvarpsstöðinni, sýnist mér. Þeir vilja auðvitað ekki vera eftirbátar Stöðvar 2 og Skjás 1.
Sent: Þri 23. Nóv 2004 02:44
af kaktus
fyrirgefið ef ég spyr eins og sá sem ekkert veit en er ekki bt-net með firstmile dæmi líka?
ég er tengdur í gegnum þá aðalega vegna fýlu út í símann og voddafuck
og þetta virkar ágætlega eftir að marr fór að hringja bara beint í netheim frekar en bt ef eitthvað var að
staffið hjá bt gat aldrei svarað neinu þeir myndu varla þekkja tölvu frá bréfapressu
Sent: Þri 23. Nóv 2004 08:08
af MezzUp
kaktus skrifaði::oops: fyrirgefið ef ég spyr eins og sá sem ekkert veit en er ekki bt-net með firstmile dæmi líka?
júbb
Sent: Þri 23. Nóv 2004 08:49
af gumol
Er ekki 10 Gb/sek hraði á farice?
Sent: Þri 23. Nóv 2004 09:08
af emmi
Jú, rétt er það en hann ræður við allt að 172Gb/s.
Sent: Þri 23. Nóv 2004 09:15
af skipio
gumol skrifaði:Er ekki 10 Gb/sek hraði á farice?
10Gbit/s eru virk núna en Farice hefur heildarflutningsgetu upp á 720Gbit/s (ekki 172Gbit/s eins og einhver sagði að ofan).
Þessi 10Gbit eru ekki einu sinni notuð að fullu núna (ég held meira að segja það sé bara brot af þessu notað).
Síðast þegar ég vissi var Og Vodafone t.a.m. bara með 155Mbit/s tengingu í gegnum Farice (spurði þá síðasta haust) og svo aftur 155MBit/s til BNA í gegnum Cantat-3.
Landssíminn er svo með eitthvað meira og svo nokkur önnur fyrirtæki og stofnanir; líklega HÍ og kannski bankarnir.
Svo nota Færeyingar líka Farice (þeir borga 20% af kostnaðinum).
Sent: Þri 23. Nóv 2004 09:18
af ParaNoiD
fyrst þeir segja frítt download ... þá varla geta þeir rukkað fyrir eitthvað download?
Sent: Þri 23. Nóv 2004 09:30
af skipio
ParaNoiD skrifaði:fyrst þeir segja frítt download ... þá varla geta þeir rukkað fyrir eitthvað download?
Ef þeir geta framkvæmt slíkt kraftaverk án þess að fara á hausinn verð ég að taka ofan af fyrir þeim!
Annars væri svosem hægt að lækka bandvíddargjöldin talsvert ef t.d. 500 manns tækju sig saman og stofnuðu sína eigin netveitu bara fyrir eigin notkun. Þeir gætu þá leigt 155Mbit tengingu til Bretlands og hver fengi þá því sem næmi fastri 317Kbit tengingu til útlanda fyrir kannski 400.000 kr. á ári (Farice tengingin sjálf myndi kosta 200k á mann og svo er einhver auka rekstrarkostnaður). Með hámarksnýtingu fengju þeir 1193 GB í niðurhal á ári sem útleggst sem 335 krónur per GB. En þetta er auðvitað með hámarksnýtingu og afar ólíklegt að slíkt myndi nást. En ef notkunin væri kannski 1/3 af hámarksnýtingu værum við að tala um 1000 kr. per GB.
Það væri kannski hægt að hafa eitthvað minni pakka svoseem, 2000 manns gætu kannski fengið 100GB hver fyrir 100 þúsund á ári hver.
En það er auðvitað slatti dýrt ennþá!
Sent: Þri 23. Nóv 2004 09:39
af ParaNoiD
Endilega ef einhver nær að fara á staðinn og ræða við þessa menn segja okkur það þá hérna ... ´svoldið takmarkaðar upplýsingar á þessarri vefsíðu enda líklega bara rétt að detta í gang og virðist vera að breytast stöðugt.
Sent: Þri 23. Nóv 2004 09:45
af Sup3rfly
Já þeir segja manni eiginlega ekki neitt, það kom auglýsing í Fréttablaðið i dag og stóð þar bara það sama og á heimasíðunni. Þótt svo að þetta sé girnilegt þá held ég að það sé eitthvað sem hangir á spýtunni. Annars er ég ekkert að fara að skipta um netþjón á næstunni.
Sent: Þri 23. Nóv 2004 10:14
af emmi
Þeir leigja hluta af sæstrengnum eins og Vodafone, Síminn og fleiri gera er mér sagt og borga bara fast verð fyrir það.