Síða 1 af 1

Ljósnet og sjónvarp

Sent: Fös 06. Feb 2015 01:00
af gosi


við konan erum að flytja og fáum ljósnet á nýja staðnum og við vorum að spá hjá hverjum er best að vera.
Var að hugsa um 300gb, er með svoleiðis hjá Símanum, og það virðist vera nóg í bili (jafnvel ótakmarkað).
Vorum einnig að spá í að fá okkur einhverjar rásir líka. VIljum engan heimasíma.

Eer búinn að vera að skoða Hringdu en veit ekki alveg. Erum svosem sátt með Símann.
Hvað segið þið um það?

Re: Ljósnet og sjónvarp

Sent: Fös 06. Feb 2015 01:44
af Viktor
Hringdu, engin spurning. Getur þá verið með sjónvarp Símans eða Vodafone.

Re: Ljósnet og sjónvarp

Sent: Fös 06. Feb 2015 10:30
af depill
Ég mæli aðallega með því að þú fáir þér Sjónvarp Símans. Himin og haf á milli platformanna.

Nettengingar
Hringdu - Ótakmarkað
Hringiðan - til Ótakmarkað, en þarft aðra þjónustuleið líka
Símafélagið
Síminn
365 ( ef þeir eru að afhenda myndlykla Tal með Sjónvarpi Símans geturðu ekki fengið Sjónvarp Símans appið )
Tal ( var/er ekki hægt að fá Sjónvarp Símans appið í gegnum þá )

Vodafone ( held þú getir þá ekki verið með sjónvarp símans )

Re: Ljósnet og sjónvarp

Sent: Lau 07. Feb 2015 23:52
af gosi
Ok en ég skil ekki alveg. Nú hef ég lesið aðeins um Hringdu hérna og
þeir sem segja eitthvað eru ekki sáttir við þá. Hvað skal gera?
En hvað eru menn að græða hjá Hringdu sem þeir fá ekki hjá Símanum?

Re: Re: Ljósnet og sjónvarp

Sent: Sun 08. Feb 2015 00:26
af KermitTheFrog
gosi skrifaði:En hvað eru menn að græða hjá Hringdu sem þeir fá ekki hjá Símanum?


Hringdu = ótakmarkað gagnamagn

Síminn = allt gagnamagn talið

Re: Ljósnet og sjónvarp

Sent: Sun 08. Feb 2015 00:30
af Snorrivk
http://vortex.is/ ótakmarkað niðurhal + heimasími á 9400 kr

Re: Ljósnet og sjónvarp

Sent: Sun 08. Feb 2015 00:39
af BugsyB
EF þú ert ekki að torrenta þá skiptir þetta allt talið ekki miklu máli - Síminn er með hröðustu utanlandsgáttina og bestu þjónustuna og besta sjónvarpskerfið - mæli með þeim