Síða 1 af 3

Afmælistilboð Hringiðunnar

Sent: Fim 01. Jan 2015 13:10
af viddi
Ótakmarkað Niðurhal á ljósleiðara!

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fim 01. Jan 2015 13:20
af Icarus
Fylgist vel með :)

Ég ætlaði einmitt að koma hingað inn og skrifa nokkra punkta um þetta. Við gerðum nokkrar breytingar núna um áramótin og langstærsta er internet með ótakmörkuðu niðurhali. Ljósleiðari, Ljósnet og ADSL á 6.990,-

Má lesa aðeins meira um það hér:

http://vortex.is/leidandi-a-markadi/

Full disclosure though

Þessar tengingar eru í boði fyrir viðskiptavini okkar sem hafa einnig hjá okkur heimasíma-, farsíma- eða hýsingarþjónustu.

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fim 01. Jan 2015 13:23
af viddi
Gildir þetta ekki fyrir núverandi viðskiptavini líka ?

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fim 01. Jan 2015 13:43
af Icarus
viddi skrifaði:Gildir þetta ekki fyrir núverandi viðskiptavini líka ?


Þetta er í boði fyrir alla, þarf bara að hafa samband við okkur með tölvupósti á info@vortex.is eða í síma 525 2400 og við breytum skráningunni þinni.

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fim 01. Jan 2015 14:14
af depill
Tek hattinn ofan fyrir ykkur. Flott tilboð.

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fim 01. Jan 2015 14:15
af Legolas
Æðislegt en með fullri virðingu DRULLIST til að troða ljósleiðara Í Mörkina... PLEASE :cry: :cry: :cry:

Úpps my bad, aðeins og fljótfær :oops:
suxxass Skrifaði:
Efnisveiturnar ráða því ekki hvar ljósleiðarinn er lagður, það er eitthvað sem Gagnaveiturnar sjá um...


beatmaster Skrifaði:
Eitthvað ertu að misskilja starfssvið Hringiðunnar held ég...


PS. Nú hef ég engann áhuga.
Þessar tengingar eru í boði fyrir viðskiptavini okkar sem hafa einnig hjá okkur heimasíma-, farsíma- eða hýsingarþjónustu.

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fim 01. Jan 2015 14:34
af beatmaster
Legolas skrifaði:Æðislegt en með fullri virðingu DRULLIST til að troða ljósleiðara Í Mörkina... PLEASE :cry: :cry: :cry:


Eitthvað ertu að misskilja starfssvið Hringiðunnar held ég...

Hringiðan á hrós skilið, markaðurinn sér um sig, eins og ég sagði í öðrum þræði hérna þá eru risaeðlurnar í dauðateygjunum og er þetta virkilega rökrétt framhald á þeim pælingum sem voru þar um hvernig mæling á öllu muni springa í andlitið í Símanum og eftirlíkingum þeirra

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fim 01. Jan 2015 14:36
af GuðjónR
Mjög flott tilboð!
Á sama tíma:

https://365.is/tilkynningar/nanar1

Verðbreytingar hjá 365, sem taka gildi 1. febrúar 2015
Ljóshraðatengingar og innifalið gagnamagn (allt gagnamagn talið)

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fim 01. Jan 2015 15:09
af suxxass
Legolas skrifaði:Æðislegt en með fullri virðingu DRULLIST til að troða ljósleiðara Í Mörkina... PLEASE :cry: :cry: :cry:



Efnisveiturnar ráða því ekki hvar ljósleiðarinn er lagður, það er eitthvað sem Gagnaveiturnar sjá um...

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fim 01. Jan 2015 15:29
af beatmaster
Fyrst að starfsmenn Hringiðunnar eru að svara hérna, eruð þið ekki örugglega tilbúnir að díla við stórnotendur, ég er ekki stórnotandi en að auglýsa ótakmarkað er ótakmarkað og þetta setti Hive næstum því á hausinn á sínum tíma, eruð þið reiðubúnir að taka á móti mörg hundruð notendum sem að eru beinlínis með niðurhalsfíkn og eru kanski að hala niður allt að TB á mánuði?

Eða er stefnan tekin á USA ISP style með DMCA notice og eftir að hafa sent viðskiptavini tölvupóst um að IP tala notanda hafi verið skráð í dreifingu á höfundarréttarvörðu efni verði lokað á aðganginn?

Þessar spurningar eru eitthvað sem brennur á mér, það er hvernig Netveitur ætla að bjóða upp á gott internetsamband með ótakmörkuðu niðurhali en samt díla við fjölskyldur sem eiga kanski 3 unglingsstráka sem eru að hala niður hver sínu eintakinu af öllu sem þeim dreymir um að horfa á, spila, hlusta o.s.frv. og eru væntanlega í fullum rétti til þess ef að það er verið að kaupa internetsamband með ótakmörkuðu niðurhali og ekki er verið að gera upp á milli notenda

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fim 01. Jan 2015 16:39
af worghal
Icarus skrifaði:Fylgist vel með :)

Ég ætlaði einmitt að koma hingað inn og skrifa nokkra punkta um þetta. Við gerðum nokkrar breytingar núna um áramótin og langstærsta er internet með ótakmörkuðu niðurhali. Ljósleiðari, Ljósnet og ADSL á 6.990,-

Má lesa aðeins meira um það hér:

http://vortex.is/leidandi-a-markadi/

Full disclosure though

Þessar tengingar eru í boði fyrir viðskiptavini okkar sem hafa einnig hjá okkur heimasíma-, farsíma- eða hýsingarþjónustu.

andskotinn! hef ekkert við heimasíma eða hýsingu að gera og hef ekkert of mikinn áhuga á að skipta um farsímaþjónustu :(

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fim 01. Jan 2015 16:43
af capteinninn
8300 fyrir 100mb tengingu á endalaust niðurhal hljómar bara nokkuð vel, færi mig líklega yfir í þessum mánuði.

Hef samt ekki verið með heimasíma áður, það verður spes

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fim 01. Jan 2015 17:01
af audiophile
Hljómar vel, en hver er hængurinn? Sé líka á síðunni að 100Mb / 200GB pakki er 500kr dýrari. Hver myndi taka það framyfir þetta tilboð?

Skil ekki alveg. :-k

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fim 01. Jan 2015 21:02
af capteinninn
audiophile skrifaði:Hljómar vel, en hver er hængurinn? Sé líka á síðunni að 100Mb / 200GB pakki er 500kr dýrari. Hver myndi taka það framyfir þetta tilboð?

Skil ekki alveg. :-k


Þetta er örugglega tímabundið tilboð

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fös 02. Jan 2015 07:57
af Kallikúla
Kemur bara heimislfang fanst ekki þegar ég reyndi að gá hvort ég gæti verið með ljósleiðara.

I take that as a no.

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fös 02. Jan 2015 09:21
af Xovius
Ég vona svo innilega að þetta takist vel hjá Hringiðunni. Það væri æðislegt fordæmi fyrir allar aðrar netveitur á landinu. Nú er bara að færa sig yfir og tala með veskinu því það er jú það sem hlustað er á.

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fös 02. Jan 2015 10:36
af Icarus
audiophile skrifaði:Hljómar vel, en hver er hængurinn? Sé líka á síðunni að 100Mb / 200GB pakki er 500kr dýrari. Hver myndi taka það framyfir þetta tilboð?

Skil ekki alveg. :-k


Sumir notendur gætu kosið að taka það og hafa enga aðra þjónustu hjá okkur, snýst allt um valkosti :)

Kallikúla skrifaði:Kemur bara heimislfang fanst ekki þegar ég reyndi að gá hvort ég gæti verið með ljósleiðara.

I take that as a no.


Ekki taka leitarvélina of bókstaflega, hún á það til að vera sérvitur á köflum, ef þú ert með ljósleiðara í dag eru 99% líkur á að við getum einnig veitt þér þjónustu yfir ljósleiðara.

beatmaster skrifaði:Fyrst að starfsmenn Hringiðunnar eru að svara hérna, eruð þið ekki örugglega tilbúnir að díla við stórnotendur, ég er ekki stórnotandi en að auglýsa ótakmarkað er ótakmarkað og þetta setti Hive næstum því á hausinn á sínum tíma, eruð þið reiðubúnir að taka á móti mörg hundruð notendum sem að eru beinlínis með niðurhalsfíkn og eru kanski að hala niður allt að TB á mánuði?

Eða er stefnan tekin á USA ISP style með DMCA notice og eftir að hafa sent viðskiptavini tölvupóst um að IP tala notanda hafi verið skráð í dreifingu á höfundarréttarvörðu efni verði lokað á aðganginn?

Þessar spurningar eru eitthvað sem brennur á mér, það er hvernig Netveitur ætla að bjóða upp á gott internetsamband með ótakmörkuðu niðurhali en samt díla við fjölskyldur sem eiga kanski 3 unglingsstráka sem eru að hala niður hver sínu eintakinu af öllu sem þeim dreymir um að horfa á, spila, hlusta o.s.frv. og eru væntanlega í fullum rétti til þess ef að það er verið að kaupa internetsamband með ótakmörkuðu niðurhali og ekki er verið að gera upp á milli notenda


Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan Hive var og hét :)

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fös 02. Jan 2015 11:21
af Plushy
capteinninn skrifaði:
audiophile skrifaði:Hljómar vel, en hver er hængurinn? Sé líka á síðunni að 100Mb / 200GB pakki er 500kr dýrari. Hver myndi taka það framyfir þetta tilboð?

Skil ekki alveg. :-k


Þetta er örugglega tímabundið tilboð


Hvað gerist þegar tilboðið rennur út; fólki boðið að fara í aðra áskriftarleið eða heldur það áfram með ótakmarkaða niðurhalið í óákveðinn tíma?

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fös 02. Jan 2015 11:25
af FriðrikH
Fyrst að hér eru starfsmenn Hringiðunnar þá vill ég benda á vandræðalega stafsetningavillu á heimasíðunni hjá ykkur, http://vortex.is/simi/gsm/ , þarna er talað um "Ýtarlegri verðskrá".... "Ý" á ekki heima þarna ;)

*On topic* Flott tilboð, hef verið ánægður með þjónustuna hjá ykkur og tel líklegt að ég fari með fleiri þjónustuþætti til ykkar.

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fös 02. Jan 2015 11:51
af Xovius
FriðrikH skrifaði:Fyrst að hér eru starfsmenn Hringiðunnar þá vill ég benda á vandræðalega stafsetningavillu á heimasíðunni hjá ykkur, http://vortex.is/simi/gsm/ , þarna er talað um "Ýtarlegri verðskrá".... "Ý" á ekki heima þarna ;)

*On topic* Flott tilboð, hef verið ánægður með þjónustuna hjá ykkur og tel líklegt að ég fari með fleiri þjónustuþætti til ykkar.

http://www.visindavefur.is/svar.php?id=55165
Samkvæmt þessu sýnist mér Ý vera réttara þó bæði virðist leyfileg.

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fös 02. Jan 2015 12:18
af Gúrú
Tók eftir því í morgun en hafði nú ekki fyrir því en svona fyrst umræðan er komin:

/internet/ljosleidari skrifaði:Verð innifala ekki aðgangsgjald Gagnaveitu Reykjavíkur.


Innifela ekki. :)

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fös 02. Jan 2015 13:53
af gardar
beatmaster skrifaði:Fyrst að starfsmenn Hringiðunnar eru að svara hérna, eruð þið ekki örugglega tilbúnir að díla við stórnotendur, ég er ekki stórnotandi en að auglýsa ótakmarkað er ótakmarkað og þetta setti Hive næstum því á hausinn á sínum tíma, eruð þið reiðubúnir að taka á móti mörg hundruð notendum sem að eru beinlínis með niðurhalsfíkn og eru kanski að hala niður allt að TB á mánuði?



:lol:

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fös 02. Jan 2015 15:11
af hfwf
Hljómar vel, ef tal ætlar að fara í að rukka allt gagnamagn, er þetta augljósasti kosturinn.

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fös 02. Jan 2015 15:32
af Hellfire
Hvernig hafa menn upplifað stöðugleika á netinu ásamt ping í leikjum?
Langar virkilega mikið að skipta úr Símanum út af aðferðum þeirra við gagnamagns mælingar

Re: Afmælistilboð Hringiðunar

Sent: Fös 02. Jan 2015 16:17
af J1nX
ég er búinn að vera með netið hjá þeim núna í 2 mánuði, hefur ekki dottið einu sinni út og alltaf með gott ping í cs:go