Síða 1 af 1

Mismunandi ping - sami server, sami sviss

Sent: Sun 28. Des 2014 16:59
af Viktor
Sælir.

Vorum þrír að lana í CS:GO áðan.

Tveir voru með 130ms í latency, en einn með 40ms.
Hvað getur orsakað þetta?

Reyndar eldgamall switch. Furðulegt þó.

Re: Mismunandi ping - sami server, sami sviss

Sent: Sun 28. Des 2014 17:02
af GullMoli
Einhvernir þeirra með vpn í gangi?

Re: Mismunandi ping - sami server, sami sviss

Sent: Sun 28. Des 2014 17:04
af rapport
Einn á linux?

Svo spurning um hvort þið hafið verið að nota CAT5 og hann CAT5e eða e-h stillingaratriði á netkortunum hjá ykkur.

Re: Mismunandi ping - sami server, sami sviss

Sent: Sun 28. Des 2014 17:33
af beggi90
Var einmitt að lenda í þessu áðan.
vorum 5 í cs:go og 4 með 140 einn með 40.
Prófaði að restarta swissinum og þá breyttist hver var með 40 í ping. (ljósleiðari, pingið var fínt í dota).

3 með win, 2 með mac.

Re: Mismunandi ping - sami server, sami sviss

Sent: Mán 29. Des 2014 06:38
af Danni V8
Miðað við þetta: http://forums.steampowered.com/forums/s ... ?t=3207283

Er ekki bara vandamálið að routerinn er bara að opna rétt port fyrir einn í einu? Man að ég lenti í því í MW2 á sínum tíma þegar við bræðurnir bjuggu ennþá báðir í foreldrahúsum að ég gat opnað portin til að fá NAT open í þeim leik bara fyrir eina tölvu, þannig annar okkar var alltaf strict (bróðir minn :) )