Síða 1 af 1

Vesen við að tengjast Twitch, hjálp?

Sent: Þri 18. Nóv 2014 23:54
af J1nX
góða kvöldið, ég fékk mér ljósleiðara hjá Hringiðunni og eftir að ég fékk hann hef ég lent í eilífðarveseni með að tengjast twitch.tv

eru einhverjir hérna hjá hringiðunni sem eru að lenda í sama veseni eða einhver esm veit hvernig á að laga þetta?

ég tek eftir því að twitch segir alltaf "waiting for cdn-jtvnw.net" þegar ég er að reynað tengjast síðunni.. horfi frekar mikið á streams þannig þetta er að bögga mig endalaust mikið

Re: Vesen við að tengjast Twitch, hjálp?

Sent: Mið 19. Nóv 2014 00:23
af Hvati
Lendi líka í þessu, frekar pirrandi. Ég var að senda þeim tölvupóst um þetta.

Re: Vesen við að tengjast Twitch, hjálp?

Sent: Mið 19. Nóv 2014 01:19
af J1nX
okey, mátt endilega láta mig vita á morgun ef þeir svara, annars hringi ég á fimmtudaginn ;)

Re: Vesen við að tengjast Twitch, hjálp?

Sent: Mið 19. Nóv 2014 01:24
af hkr
Er hjá Vodafone og twitch hefur ekki virkað almennilega síðustu 1-2 vikurnar.

Þeir eru víst að "vinna í málinu" en mér skilst að vandamálið liggi hjá Telia en ekki þeim (amk svo var mér sagt).

Spurning hvort að Hringiðan sé að lenda í sama veseni.

edit: hef verið að lesa að það séu frekar stór DDoS í gangi t.d. á CS:GO og Dota 2 http://blog.dota2.com/2014/11/network-update/
Spurning hvort að það sé eitthvað að spila inn í.

T.d. virkar twitch fínt seint á kvöldin en á milli 18 og 01 er það oftast no go.

Re: Vesen við að tengjast Twitch, hjálp?

Sent: Mið 19. Nóv 2014 04:00
af J1nX
þetta hefur verið svona í rúmar 2 vikur hjá mér eða síðan ég fékk ljósleiðarann :( hef einstaka sinnum náð að tengjast Twitch og þá hefur það tekið heillangan tíma.

Re: Vesen við að tengjast Twitch, hjálp?

Sent: Mið 19. Nóv 2014 09:10
af Hvati
Ég fékk svar um að það sé verið að vinna í að færa samband við aðila sem þeir tengjast við erlendis, gerist líklega í þessari viku.

Re: Vesen við að tengjast Twitch, hjálp?

Sent: Mið 19. Nóv 2014 16:27
af Joi
Þegar twitch loadast ekki hjá mér þá kveikji ég bara á hotspot shield og þá loadast síðan fullkomlega :D

Re: Vesen við að tengjast Twitch, hjálp?

Sent: Mið 19. Nóv 2014 20:52
af J1nX
fékk þetta svar frá þeim áðan á fésbókinni:

Hringiðan Internetþjónusta: Sælir! Þetta er vandamál með erlendan provider hjá okkur, við erum fullmeðvitaður um þetta og vinnum örum höndum að viðgerð. Búumst við góðum fréttum mjög fljótlega, annars hafa litlir fuglar hvíslað að okkur að hægt sé að komast inn á þessar síður í gegnum TOR.
Unlike · Reply · 1 · 1 hr

ætlað prófa þetta TOR eftir vinnu í kvöld

Joi, ertu hjá Hringiðunni?

Re: Vesen við að tengjast Twitch, hjálp?

Sent: Mið 19. Nóv 2014 21:05
af rimor
vá ég hélt að ég væri einn með þetta vandamál . En já þetta er ekki bara twitch heldur eru sumar síður sem gera það sama hjá mér margir serverar í leikjum sem eru staðsettir á ýmsum stöðum í heimninum með sama vandamál.

Vonandi verður þetta lagað sem fyrst. Ég er bara að nota Twitch appið á ipad, sem er btw tengdur við þráðlausa netið heima (hjá hringiðuni) og það virkar mjög fínt :) sem ég skil ekki allveg, twitch er greinilega ekki með appið og síðuna í gegnum sama server.

Re: Vesen við að tengjast Twitch, hjálp?

Sent: Mið 19. Nóv 2014 23:25
af J1nX
já sama hjá mér.. Twitch virkar fínt í símanum.. en ég nenni takmarkað að horfa á t.d. Rollplay í símanum.. yfirleitt 4tíma session sem þau taka í einu

Re: Vesen við að tengjast Twitch, hjálp?

Sent: Fös 21. Nóv 2014 21:24
af Sucre
einhver að lenda í veseni með Twitch núna ?

Re: Vesen við að tengjast Twitch, hjálp?

Sent: Sun 23. Nóv 2014 21:30
af J1nX
ég er ennþá í bölvuðu veseni með þetta

Re: Vesen við að tengjast Twitch, hjálp?

Sent: Sun 23. Nóv 2014 21:57
af Mencius
Veit ekki hvort þetta hjálpi ykkur, en ég er með adsl hjá hringdu og var að lenda í því að geta horft i 5-10 sec og þá fór streamið að bufferast, þá prufaði ég að setja extension í chrome sem heitir zenmate og þá hætti buffering vesenið hjá mér.

Re: Vesen við að tengjast Twitch, hjálp?

Sent: Mán 24. Nóv 2014 00:42
af J1nX
ég næ ekki einu sinni að loada síðuna :P

Re: Vesen við að tengjast Twitch, hjálp?

Sent: Fim 04. Des 2014 14:07
af Throstur
Þeir eru búnir að vera að "vinna í þessu" síðan 4. september ef miðað er við fyrstu kvörtunina á Facebook hjá þeim. Þá átti þetta að detta í lag "innan skamms". Síðan eru liðnir 3 mánuðir og ekkert hefur lagast. Hvað er eiginlega í gangi? Er þetta ásættanleg þjónusta af ISP, að eitt stærsta streaming site í heimi sé ekki aðgengilegt viðskiptavinum þeirra í 3 MÁNUÐI ??? :)

PS það mega alveg fleiri Hringiðukúnnar kvarta á FB hjá þeim ;) https://www.facebook.com/hringidan/post ... 7298787338

Re: Vesen við að tengjast Twitch, hjálp?

Sent: Fim 18. Des 2014 00:07
af Hvati
Þetta er loksins komið í lag hjá mér!

Re: Vesen við að tengjast Twitch, hjálp?

Sent: Fös 19. Des 2014 00:14
af viddi
Hvati skrifaði:Þetta er loksins komið í lag hjá mér!


Yep sýnist þetta vera komið í lag =D>

Re: Vesen við að tengjast Twitch, hjálp?

Sent: Fös 19. Des 2014 01:37
af J1nX
líka komið í lag hjá mér, whoop whoop

Re: Vesen við að tengjast Twitch, hjálp?

Sent: Fös 19. Des 2014 20:44
af billythemule
Kominn tími á þetta. Ég var orðinn þreyttur á að nota proxy til að tengjast twitch. Ég vona að ég þurfi ekki að færa mig í annað skiptið.