Síða 1 af 1
innlendar skrár til að prófa download hraða
Sent: Fös 07. Nóv 2014 13:51
af braudrist
Sælir,
Vitið þið um einhverja innlenda síðu sem hýsir svona ágætlega stórar skrár svo að ég geti testað download hraðann minn? Þá er ég að tala um eitthvað svona frítt eins og linux distro eða eitthvað.
Man fyrir löngu síðan að það var til
www.hugi.is/files en það virðist ekki vera lengur til
Re: innlendar skrár til að prófa download hraða
Sent: Fös 07. Nóv 2014 14:06
af ponzer
Re: innlendar skrár til að prófa download hraða
Sent: Fös 07. Nóv 2014 14:17
af GuðjónR
ponzer skrifaði:http://speglar.simnet.is/
Ljósnetið hjá Hringdu alveg að gera sig
Re: innlendar skrár til að prófa download hraða
Sent: Fös 07. Nóv 2014 14:31
af braudrist
Er þetta eitthvað djók? Ekki það að ég sé að kvarta — þvert á móti er ég himinlifandi — ég var að fá ljósleiðara og er að mælast frekar hátt held ég. Kannski er ég í einhverjum test hópi eða eitthvað, en ég skráði mig ekkert sérstaklega í það.
Ég reyndi að taka screenshot þegar ég var að downlaoda 1000 MB/s skránni en það kláraðist of fljótt
Re: innlendar skrár til að prófa download hraða
Sent: Fös 07. Nóv 2014 15:19
af einarth
Njóttu meðan varir - þú ert tengdur nýjum búnaði og ég á eftir að laga aðeins rate-limitera...þú ert s.s. ótakmarkaður í aðra áttina
Þú sérð allavegana hvað tæknin getur afkastað
Kv, Einar.
Re: innlendar skrár til að prófa download hraða
Sent: Fös 07. Nóv 2014 15:59
af gardar
einarth skrifaði:Njóttu meðan varir - þú ert tengdur nýjum búnaði og ég á eftir að laga aðeins rate-limitera...þú ert s.s. ótakmarkaður í aðra áttina
Þú sérð allavegana hvað tæknin getur afkastað
Kv, Einar.
Hvernig væri nú að hætta þessum takmörkuðum og leyfa viðskiptavinum að njóta þess sem tæknin hefur upp á ad bjóða?
Re: innlendar skrár til að prófa download hraða
Sent: Fös 07. Nóv 2014 16:00
af hfwf
gardar skrifaði:einarth skrifaði:Njóttu meðan varir - þú ert tengdur nýjum búnaði og ég á eftir að laga aðeins rate-limitera...þú ert s.s. ótakmarkaður í aðra áttina
Þú sérð allavegana hvað tæknin getur afkastað
Kv, Einar.
Hvernig væri nú að hætta þessum takmörkuðum og leyfa viðskiptavinum að njóta þess sem tæknin hefur upp á ad bjóða?
Yeah, látt'ann heyra það!!
Re: innlendar skrár til að prófa download hraða
Sent: Fös 07. Nóv 2014 16:25
af hagur
einarth skrifaði:Njóttu meðan varir - þú ert tengdur nýjum búnaði og ég á eftir að laga aðeins rate-limitera...þú ert s.s. ótakmarkaður í aðra áttina
Þú sérð allavegana hvað tæknin getur afkastað
Kv, Einar.
Hvern þarf maður að sweet-talka til að fá smá slaka í rate limiterinn hjá sér?
Re: innlendar skrár til að prófa download hraða
Sent: Fös 07. Nóv 2014 17:15
af einarth
gardar skrifaði:einarth skrifaði:Njóttu meðan varir - þú ert tengdur nýjum búnaði og ég á eftir að laga aðeins rate-limitera...þú ert s.s. ótakmarkaður í aðra áttina
Þú sérð allavegana hvað tæknin getur afkastað
Kv, Einar.
Hvernig væri nú að hætta þessum takmörkuðum og leyfa viðskiptavinum að njóta þess sem tæknin hefur upp á ad bjóða?
Það væri næs - en því fylgir kostnaður sem þú væntanlega áttar þig á...
Við erum byrjaðir að bjóða uppá 200 og 400Mb tengingar - en sjáum ekki tilgang í að bjóða stærri pakka miðað við eftirspurn..
Kv, Einar.
Re: innlendar skrár til að prófa download hraða
Sent: Fös 07. Nóv 2014 18:01
af gardar
einarth skrifaði:gardar skrifaði:einarth skrifaði:Njóttu meðan varir - þú ert tengdur nýjum búnaði og ég á eftir að laga aðeins rate-limitera...þú ert s.s. ótakmarkaður í aðra áttina

Væri ekki bara hægt að láta markaðinn ráða því? Bjóða upp á dýrari pakka með stærri tengingar fyrir þá sem það vilja?
Re: innlendar skrár til að prófa download hraða
Sent: Fös 07. Nóv 2014 18:33
af hkr
einarth skrifaði:gardar skrifaði:einarth skrifaði:Njóttu meðan varir - þú ert tengdur nýjum búnaði og ég á eftir að laga aðeins rate-limitera...þú ert s.s. ótakmarkaður í aðra áttina
Þú sérð allavegana hvað tæknin getur afkastað
Kv, Einar.
Hvernig væri nú að hætta þessum takmörkuðum og leyfa viðskiptavinum að njóta þess sem tæknin hefur upp á ad bjóða?
Það væri næs - en því fylgir kostnaður sem þú væntanlega áttar þig á...
Við erum byrjaðir að bjóða uppá 200 og 400Mb tengingar - en sjáum ekki tilgang í að bjóða stærri pakka miðað við eftirspurn..
Kv, Einar.
Er kannski ekki alveg að marka þessa eftirspurn hjá ykkur þar sem aðeins tvö fyrirtæki bjóða upp á +100 tengingar (365 og Hringiðan) - svo best sem ég veit.
Væru eflaust meiri eftirspurn ef það væri í boði hjá t.d. Hringdu og Vodafone.
Einnig er þessi auka 20 þús. kr. sem þarf að greiða fyrir nýtt ljósleiðarabox ekkert svakalega heillandi.
Re: innlendar skrár til að prófa download hraða
Sent: Fös 07. Nóv 2014 19:04
af einarth
Einmitt - við stjórnum ekki hvað þjónustuveiturnar gera - við neyðum þær ekki til að bjóða 200/400..
Væntanlega ef þær finna fyrir meiri áhuga þá eykst pressan á þær að bjóða þetta.
Sumir þurfa vissulega að uppfæra netaðgangstæki með þessum kostnaði - þessvegna er þetta premium vara.
Við erum að láta markaðinn ráða þessu...getum ekki farið í enn frekari uppbyggingu á miðjukerfum með það í huga að bjóða t.d. 1Gb - ef aðeins nokkrar hræður ætla að kaupa það..
Við tökum þetta þessvegna í skrefum...fáum meiri massa í 200/400 - og tökum þá næstu skref..
Kv, Einar.