Síða 1 af 1

enn eitt WIFI vesenið

Sent: Fim 06. Nóv 2014 16:13
af gufan
Sælir

Ég er í smá basli með Wifi hjá mér. Er í gömlu hús með þykkum veggjum og Wifi næst illa(og varla) í tveimur herbergjum

Er með svona router http://att.is/product/asus-rt-n56u-router

Er að spá í að fá mér Access Point og ætlaði að athuga hvort eitthverjir hérna hefðu reynslu af þessu? http://att.is/product/asus-tp-ac52-access-point

Og þar sem annað herbergið er niðri og hitt upp ... vitið hvort það hefur áhrif að hafa tvö svona ?

Eða getur eitthver mælt með eitthverju öðru ? annað en að tengja snúru ... ég nenni ekki að vera með snúru uppí rúmi ;Þ

Re: enn eitt WIFI vesenið

Sent: Fim 06. Nóv 2014 17:07
af arons4
Hef ekki reynslu af þessum access punkti, en það eru 3 rásir á 2.4ghz netinu sem trufla ekkert rásirnar í kring, þannig að router og tveir access punktar ættu að vera í lagi. Getur skoðað rásirnar sem eru í kring tildæmis með wifi analyzer appinu. Hreinu rásirnar eru 1, 6 og 11

Re: enn eitt WIFI vesenið

Sent: Fim 06. Nóv 2014 17:42
af krat
Já virkar fínt myndi samt sem áður frekar fara í snúru tengt
http://tolvutek.is/vara/trendnet-200mbp ... r-einingar

Re: enn eitt WIFI vesenið

Sent: Fös 07. Nóv 2014 01:43
af capteinninn
krat skrifaði:Já virkar fínt myndi samt sem áður frekar fara í snúru tengt
http://tolvutek.is/vara/trendnet-200mbp ... r-einingar


Þetta getur virkað illa, fer mikið eftir lögnum í húsinu. Færð líka minni hraða með þessu.

Ég setti upp extender hjá mér og það svínvirkaði fyrir iPadana á heimilinu, ætti að virka vel fyrir vefráp og svoleiðis.

Re: enn eitt WIFI vesenið

Sent: Mán 10. Nóv 2014 18:47
af gufan
Ég endaði á að fá mér svona http://att.is/product/asus-tp-ac52-access-point virkar fínt ... er að ná svona 35-40 á þessum erfiðu punktum EN

Þarf ég alltaf að skipta handvirkt yfir á Access Point þegar ég fer í þessi erfiðu rými ?

Aðal wi-fi heitir semsagt XXX en Access Point XXX_RPT ...

Re: enn eitt WIFI vesenið

Sent: Mán 10. Nóv 2014 19:01
af fallen
Græjaðu bara wifi roaming.

Re: enn eitt WIFI vesenið

Sent: Mán 10. Nóv 2014 19:17
af BugsyB
þú þarft að vera með sama SSID og WPA lo á router og acces point og gott að vera með á sömu rás líka

Re: enn eitt WIFI vesenið

Sent: Mán 10. Nóv 2014 19:22
af einarth
BugsyB skrifaði:þú þarft að vera með sama SSID og WPA lo á router og acces point og gott að vera með á sömu rás líka

Nei - helst ekki á sömu rás! Annað eins..

Re: enn eitt WIFI vesenið

Sent: Mán 10. Nóv 2014 21:09
af gufan
okey snilld takk fyrir hjálpina ...