Síða 1 af 1

Besti VPN þitt mat .

Sent: Þri 14. Okt 2014 12:19
af jonsig
Sælir verð að viðurkenna að eftir að hafa sagt upp HMA hef ég prófað 2x aðrar þjónustur og báðar eru þær töluvert betri með Íslenska servera . Samt án þess að vera eitthvað hrikalega dýrar. Open VPN protocol er á 18mbps á þeim sem ég nota núna meðan HMA var að aulast í 3mbps eða í þeim kanntinum .

Ég vill heyra ykkar reynslu af hinum og þessum VPN þjónustum .

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Þri 14. Okt 2014 14:21
af hfwf
netsamskipti voru by far með bestu vpn þjónustna sem ég hafði prufað, (lokað núna)

núna er bara lokun.is með vpn sem ég veit um hérlendir, kannski greenqlod eða hvað þeir heita.

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Þri 14. Okt 2014 16:16
af jonsig
Lokun er samt töluvert dýrari og með takmarkað gagnamagn sbr 5$/mán þjónustur með íslenskan server . En ég efast ekki um að það sé deluxe útgáfan.

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Mið 15. Okt 2014 19:03
af nidur
jonsig hvaða tvær þjónustur eru betri?

Ég var að borga fyrir 6 mánuði hjá HMA eftir að hafa nýlega klárað 6 mánuði, get ekki kvartað yfir hraðanum þar sem mér er eiginlega alveg sama en hef verið með 1MB/s hjá þeim að meðaltali held ég, en fer oft hærra.

Hinsvegar treysti ég HMA ekki neitt fyrir því að halda mér anonymous og besta VPN þjónustan er Astrill.

Set eflaust upp double VPN þegar ég finn út hvernig og set þá astrill upp í gegnum hma

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Mið 15. Okt 2014 21:16
af BugsyB
ég er að fíla HMA ég er að fá allt að 20mbps speed frá þeim á íslenskum server

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Mið 15. Okt 2014 21:19
af BugsyB
en er að gera hraðatest nuna og það er ekki allveg að standast það sem ég sagði áðan - er að fá 6mbps og 108 í ping, HMA er líka orðið allt of vinnsælt og þessvegna er hraðinn orðinn mun hægari

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Fim 16. Okt 2014 00:43
af jonsig
Vandamál nr.1 hjá HMA er að maður veit ekkert hvaða hraða maður má búast við , oft var bara djös vandamál fyrir mig að tengjast . Ef ég tek dæmi um eitthvað sem fór óendanlega í taugarnar á mér var þegar ég var að keyra HOLA better internet og lét það linka mig við netflix úti (ótakmarkað niðurhal) þá voru myndir og annað slíkt ekkert að hlaðast nema á kvöldin kannski .

Að nota Vyprvpn og secureme minnir mig að heitir er svipað , báðar þessar þjónustur eru svipað dýrar og hma jafnvel ódýrari en um leið töluvert hraðari . Ég er er ekkert að detta í HMA aftur ! Ég sendi þeim amk 2x fyrirspurnir varðandi hraðan hjá mér og fékk ekkert svar nokkurntíman .

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Þri 04. Nóv 2014 22:37
af Oak
Ég er að fá alveg vonlausann hraða á HMA á kvöldin þessa dagana.
Sambandið er að detta inn og út.

Eru fleiri að lenda í þessu?

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Þri 04. Nóv 2014 22:58
af depill
Forvitni OAK, hvað er ip talan á serverunum sem þú ert að tengjast hjá HMA ? Veit að Advania hefur verið að breyta hvað þeir auglýsa út á RIX.

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Þri 04. Nóv 2014 23:28
af Oak
Ég er ekki að fá góðan hraða á Advania severnum en hinn hjá THOR er í yfir 30% notkunn og tengingin helst ekki inni þar.

193.107.85.129 = THOR

82.221.133.1 = Advania.

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Þri 04. Nóv 2014 23:34
af depill
Ég sé allavega hérna heima hjá mér af Símatengingu fer umferðin til UK og svo aftur til baka. Sem er í samræmi við það sem Advania hefur verið að gera fyrir data center viðskiptavini sína, örugglega í samræmi við samninga við Farice ( þetta dual price schema ).

Svo þessi umferð til(og líklegast frá, miðað við svartíma) HMA er greinilega orðin erlend :(

Kóði: Velja allt

Tracing route to 82.221.133.1 over a maximum of 30 hops

  1    61 ms    99 ms    98 ms  192.168.1.254
  2     *        *        *     Request timed out.
  3    17 ms    16 ms    17 ms  157.157.255.183
  4    17 ms    16 ms    17 ms  157.157.255.182
  5    58 ms    57 ms    55 ms  ae3-307.lon11.ip4.gtt.net [77.67.76.197]
  6    65 ms    67 ms    65 ms  xe-0-1-3.ams12.ip4.gtt.net [89.149.187.202]
  7    65 ms    64 ms    64 ms  pni-as3257-1-ams1.staminus.net [69.197.1.74]
  8     *        *        *     Request timed out.
  9    64 ms    63 ms    63 ms  . [72.8.137.10]
 10    64 ms    64 ms    63 ms  10.120.2.25
 11    64 ms    63 ms    78 ms  82.221.168.252
 12    63 ms    63 ms    65 ms  82.221.133.1

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Mið 05. Nóv 2014 00:13
af Oak
Ég þarf eitthvað að skoða það...það er eini tilgangurinn minn með að hafa þessa þjónustu er frítt niðurhal. :/

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Mið 05. Nóv 2014 00:29
af Oak
Svo eftir miðnætti þá er hraðinn orðinn eðlilegur og dett ekki út... :/

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Mið 05. Nóv 2014 10:46
af KristinnK
Sjálfur nota ég lokun.is. Hef verið ánægður með það.

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Mið 05. Nóv 2014 13:34
af Elmar-sa
KristinnK, hefur Lokun.is virkað alveg vandræðalaust hjá þér (og fleirum)? Minn ISP virðist ná 15% - 20% af gagnamagninu sem ég tek í gegnum Lokun.is annars er fínn hraði á þessu.

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Mið 05. Nóv 2014 14:05
af jonsig
Ég er amk ekki að fara aftur yfir í HMA, orðin virkilega slow og erfitt að tengjast eftir að hann varð vinsæll hérna . Sendi þeim póst og þeir nenntu ekki einu sinni að svara .

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Mið 05. Nóv 2014 20:32
af KristinnK
Elmar-sa skrifaði:KristinnK, hefur Lokun.is virkað alveg vandræðalaust hjá þér (og fleirum)? Minn ISP virðist ná 15% - 20% af gagnamagninu sem ég tek í gegnum Lokun.is annars er fínn hraði á þessu.


Ég hef ekki lennt í því nei. Jafnvel þó ég nái í nokkrar myndir á einum degi er ekkert erlent download á yfirlitssíðunni hjá Vodaphone.

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Sun 16. Nóv 2014 20:16
af braudrist
Jæja, nú crashar HMA Pro forritið um leið og það tengist server. Ég ætla að segja upp áskriftinni og fara eitthvert annað, mæli ekki með HMA.

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Mán 17. Nóv 2014 00:53
af missranny
Ég notaði HMA í 6 mánuði án nokkurra vandræða, en miðað við erlendar kannanir þá kemst hún ekki á blað hvorki miðað við þjónustu eða verð. Ætla að prófa eitthvað af þeim þjónustum sem mælt er með núna fljótlega, læt vita hvernig útkoman verður úr því

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Mán 17. Nóv 2014 17:39
af braudrist
Ég er með áskrift hjá Ipvanish núna og það virkar helvíti fínt. 10$ per mánuð eða 6$ fyrir eitt ár. VPN forritið er mjög svipað HMA og er mjög einfalt í notkun.

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Mán 17. Nóv 2014 20:33
af jonsig
Allar svona þjónustur sem ég hef prófað með server á íslandi eru allar hraðari en þetta HMA .

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Þri 18. Nóv 2014 01:12
af Elmar-sa
braudrist skrifaði:Ég er með áskrift hjá Ipvanish núna og það virkar helvíti fínt. 10$ per mánuð eða 6$ fyrir eitt ár. VPN forritið er mjög svipað HMA og er mjög einfalt í notkun.


Ef maður tengir sig við server t.d í UK eða USA með Ipvanish telst það ekki sem erlend traffic ? Þannig að þetta er ekki notað fyrir frítt erlent niðurhal ?

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Þri 18. Nóv 2014 02:59
af jonsig
þarft að tengjast íslenskum server .

Re: Besti VPN þitt mat .

Sent: Þri 18. Nóv 2014 17:11
af Elmar-sa
Crap hvað hraðinn á íslenska servernum hjá Ipvanish er lélegur, hætti snarlega hjá þessum.