Síða 1 af 1
Internet tenging í gegnum rafmagn?
Sent: Sun 28. Sep 2014 20:15
af aggibeip
Gott kvöld vaktarar.
Hafið þið einhverja reynslu á því að tengjast netinu í gegnum rafmagnið hjá ykkur?
Var að spá í að fjárfesta í
þessu apparati. Hafið þið einhverja reynslu af þessu? Er þetta að svínvirka eða?
Re: Internet tenging í gegnum rafmagn?
Sent: Sun 28. Sep 2014 20:17
af Plushy
Get ekki mælt með þessu, óstöðugt ef eitthvað er, sérstaklega ef fólk notar þetta til að tengja myndlykla.
Re: Internet tenging í gegnum rafmagn?
Sent: Sun 28. Sep 2014 20:27
af KermitTheFrog
Fer alfarið eftir húslögnum og álagi á rafmagnið. Lykilatriði er bara að tengja þetta ekki í fjöltengi.
Ég nota þetta heima til að tengja myndlykil. Lenti í bölvuðu myndbrengli og tækið var alltaf að frjósa. Færði þá kubbinn úr fjöltengi og í stakan tengil og það hefur svínvirkað síðan.
Re: Internet tenging í gegnum rafmagn?
Sent: Sun 28. Sep 2014 20:28
af rapport
Ég reyndi þetta um árið þá kom í ljós að fyrst að stofan og svefnherbergið voru ekki á sama örygginu þá virkaði það ekki...
Einhver sagði mér að þetta væri orðið betra í dag en ég spyr þá bara HOW?
Re: Internet tenging í gegnum rafmagn?
Sent: Sun 28. Sep 2014 20:39
af Viktor
Ég myndi gera ráð fyrir því að það séu 50% líkur á því að þetta sé að fara að virka - og svo 50% líkur á því að þetta haldist stöðugt ef það virkar.
Langbest að leggja kapal.
Re: Internet tenging í gegnum rafmagn?
Sent: Sun 28. Sep 2014 21:49
af BugsyB
þetta er fínt fyrir interne þar sem það er í lagi að pakkar tapist en ekki fyrir sjónvarp þar sem við viljum ekkert pakkatap
Re: Internet tenging í gegnum rafmagn?
Sent: Sun 28. Sep 2014 22:13
af Viktor
BugsyB skrifaði:þetta er fínt fyrir interne þar sem það er í lagi að pakkar tapist en ekki fyrir sjónvarp þar sem við viljum ekkert pakkatap
Það fer eftir því í hvað þú nota internettenginguna
Ef þú notar hana til að skoða MBL og Facebook þá sleppur það. Ef þú notar hana til þess að horfa á stream er það ekki gott.
Re: Internet tenging í gegnum rafmagn?
Sent: Sun 28. Sep 2014 22:21
af aggibeip
Ég ætla að nota þetta til að spila leiki á við Blops2 og WoW
*Edit* Jú og youtube
Re: Internet tenging í gegnum rafmagn?
Sent: Mán 29. Sep 2014 00:06
af jonsig
rapport skrifaði:Ég reyndi þetta um árið þá kom í ljós að fyrst að stofan og svefnherbergið voru ekki á sama örygginu þá virkaði það ekki...
Einhver sagði mér að þetta væri orðið betra í dag en ég spyr þá bara HOW?
öryggi á sitthvorum fasanum?
Re: Internet tenging í gegnum rafmagn?
Sent: Mán 29. Sep 2014 11:40
af Jón Ragnar
Ég var með svona fyrir TV í gömlu íbúðinni minni.
Virkaði mjög vel, Var meira að segja farinn að prufa að tengja í fjöltengi og tengja allskonar við það.
Re: Internet tenging í gegnum rafmagn?
Sent: Mán 29. Sep 2014 11:41
af Viktor
aggibeip skrifaði:Ég ætla að nota þetta til að spila leiki á við Blops2 og WoW
*Edit* Jú og youtube
Þú notar ekki Powerline í leiki, leggur Cat5e kapal.
Re: Internet tenging í gegnum rafmagn?
Sent: Mán 29. Sep 2014 12:25
af Perks
Ég var að nota akkúrat þennan trendline powerline búnað og var að lenda í veseni. Tölvan missti samband við gateway (router) Þurfti að rífa úr sambandi og setja aftur í samband ca 1-2 í viku. Var með ping tíma 2-4 ms frá tölvu - í gegnum powerline - í router. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum þá tók ég bara eftir þessu á meðan ég var að streama yfir í sjónvarp en ekki við leikjaspilun eða þvíumlíkt. Grunaði alltaf að eitthvað væri að hibernate-a en svo virtist ekki vera.
Svo var ég að skipta í PLA5215 frá Zyxel og hefur hann ekki klikkað í ca mánuð (7-9-13 knock on wood og allt það). Er með ping 2ms frá tölvu - í gegnum powerline - í router. Er á leiðinni að fara stinga ryksugu í gang í þennan gaur og vera með ping í gangi sjá hvaða áhrif það hefur
Rafmagnsinnstungurnar sem ég er að nota eru einmitt ekki á sama fasa og er ekki að fara leggja kapal í leiguíbúð.
Hef ekki verið að streama eða spila á meðan ég ryksuga eða með eitthvað tæki sem tekur mikið rafmagn nema þvottavél en það er á öðru öryggi(fasa) líka.
Ég mæli alveg með þessu svo framarlega að þú sért ekki í fps leik eða spá í frama í leikjaspilun. Myndi samt sjálfur leggja kapal ef ég ætti íbúðina.
Re: Internet tenging í gegnum rafmagn?
Sent: Mán 29. Sep 2014 12:32
af Morphy
Perks skrifaði:Svo var ég að skipta í PLA5215 frá Zyxel og hefur hann ekki klikkað í ca mánuð.
Ég er búinn að vera með PLA5215 í marga mánuði án nokkurra vandræða. Tek sjónvarpið í gegnum þetta og meira að segja HD virkar vel (sem það gerði ekki með 200Mbps búnaðinum sem ég var með áður). Það munar miklu að vera með 600Mbps frekar en 200Mbps.
Re: Internet tenging í gegnum rafmagn?
Sent: Mán 29. Sep 2014 17:59
af Eiiki
Fékk þetta einhverra hluta vegna ekki til að virka á borðtölvunni minni sem keyrði windows, en þetta virkaði hinsvegar á fartölvunni minni sem keyrir linux.
En ég verslaði mér þetta á sama tíma og ég einmitt ætlaði mér að uppfæra borðtölvuna í linux, gerði það og allt virkaði sem skyldi.. Veit ekki alveg skýringuna á því en það virkaði og er ég búinn að vera nota þetta núna í einhverja mánuði með mjög góðum árangri.
Routerinn hjá mér er inni í stofu og þar af leiðandi á öðru öryggi en borðtölvan mín sem er inni í tölvuherbergi. Svo er netið úr routernum tengt í kubbinn sem er í fjöltengi sem og netið í borðtölvunni, þannig að fjöltengin höfðu ekkert um þetta að segja í mínu tilfelli.
Ég er btw með 500mb útgáfuna af apparatinu sem þú linkaðir á..
Re: Internet tenging í gegnum rafmagn?
Sent: Mán 29. Sep 2014 18:11
af CendenZ
Miðað við útlagðan kostnað, myndi ég frekar draga cat5 eða 6. Þú færð bara einhvern með þér sem kann þetta og græjar þetta 100%.
Re: Internet tenging í gegnum rafmagn?
Sent: Sun 12. Okt 2014 14:10
af aggibeip
rapport skrifaði:Ég reyndi þetta um árið þá kom í ljós að fyrst að stofan og svefnherbergið voru ekki á sama örygginu þá virkaði það ekki...
Einhver sagði mér að þetta væri orðið betra í dag en ég spyr þá bara HOW?
Get ég á auðveldan hátt komist að því hvort að innstungan í herberginu mínu sé á sama öryggi og routerinn sem er í stofunni? Eða eru kanski bara tvö rými aldrei á sama örygginu?
Re: Internet tenging í gegnum rafmagn?
Sent: Sun 12. Okt 2014 14:17
af Oak
Fer eftir því hversu stórt húsið/íbúðin er og svona.
Sláðu bara út einu og einu öryggi og þá sérðu hvort að routerinn fer út á sama tíma og það sem er í sambandi inní herbergi.
Mjög ólíklegt að þetta sé á sama örygginu.
Re: Internet tenging í gegnum rafmagn?
Sent: Sun 12. Okt 2014 16:43
af Blackened
Ætti ekki að skipta neinu máli á hvaða öryggi þetta er svo lengi sem það er á sama fasanum. og tilfellið er að í mörgum "eldri" húsum er oft bara einn fasi.
Síðan ef að þetta hittir á sitthvorn fasann þá er rafvirki 3mínútur að kippa því í liðinn og færa bara rýmin í húsinu á milli fasa
Re: Internet tenging í gegnum rafmagn?
Sent: Sun 12. Okt 2014 16:57
af Viktor
Blackened skrifaði:Ætti ekki að skipta neinu máli á hvaða öryggi þetta er svo lengi sem það er á sama fasanum. og tilfellið er að í mörgum "eldri" húsum er oft bara einn fasi.
Síðan ef að þetta hittir á sitthvorn fasann þá er rafvirki 3mínútur að kippa því í liðinn og færa bara rýmin í húsinu á milli fasa
Ef allt húsið er á sama fasa þá geta öll raftækin brenglað merkið... ekki nota powerline ef þú hefur tök á því að leggja Cat5e.