Síða 1 af 2

Enginn stolinn hugbúnaður?

Sent: Lau 06. Nóv 2004 15:13
af MezzUp
Sælir,

Ég fékk þessa hugdettur áðan. Var að spá í hvort að einhver hérna geti státað af því að vera bara með hugbúnað á tölvunni sem að viðkomandi hefur borgað fyrir eða er freeware. Athugið að stýrikerfið fellur líka undir þetta.

Athugið líka að stolinn tónlist, bíómyndir o.þ.h. fellur ekki undir þetta, bara uppsettur hugbúnaður.

Kv. Gummi

Sent: Lau 06. Nóv 2004 15:29
af Mysingur
ég er eingöngu með "stolinn" hugbúnað og freeware á minni tölvu :twisted:

Sent: Lau 06. Nóv 2004 16:31
af Voffinn
Ekki ögn.

Sent: Lau 06. Nóv 2004 16:49
af Vilezhout
Voffinn skrifaði:Ekki ögn.


dual boot á acer lappa ?

Sent: Lau 06. Nóv 2004 17:44
af Dagur
ég hef það í algjöru lágmarki. Ef það er til freeware/open source valmöguleiki þá nota ég hann.

Sent: Lau 06. Nóv 2004 18:46
af djjason
Dagur skrifaði:ég hef það í aljgöru lágmarki. Ef það er til freeware/open source valmöguleiki þá nota ég hann.


Sama hér, er reyndar bara með eitt stk sem er stolið en ég reyni alltaf að finna eitthvað freeware/open source fyrir það sem ég þarf að gera.

Sent: Lau 06. Nóv 2004 19:44
af gnarr
sama hér. ég er með mjög lítið af stolnu :) ég nota alltaf freeware frekar en að stela hugbúnaði ef það er fyrir hendi. annars er e´g ekki nógu duglegur við að kaupa hugbúnað ;( aðalega vegna þess að ég er ekkert gífurlega ríkur.

Sent: Lau 06. Nóv 2004 21:00
af gumol
Ég bara trúi því ekki að það sé ekki neitt ólöglegt á windows hlutanum hjá þér Voffinn ;)

Annars er ég með alltof mikið af pirated hugbúnaði :(

Sent: Lau 06. Nóv 2004 21:59
af elv
Dagur skrifaði:ég hef það í aljgöru lágmarki. Ef það er til freeware/open source valmöguleiki þá nota ég hann.



Sama

Sent: Lau 06. Nóv 2004 22:05
af Birkir
Ef ég ætlaði ekki að nota neinn stolinn hugbúnað þá væri ég að nota Linux núna :wink:

Sent: Lau 06. Nóv 2004 22:18
af Pandemic
Ég er nú með mest allt stolið samt vel ég nú yfirleitt open source hugbúnað yfir stolið dót þar sem það er yfirleitt betra og meira uppfært

Sent: Lau 06. Nóv 2004 23:04
af ErectuZ
Hvað á "Annað" kosturinn að merkja? :? Kannski með svona helming af einu forriti stolnum, og hinn keyptann, eða?

Sent: Lau 06. Nóv 2004 23:25
af Snorrmund
hmm, ég er með eitthvað stolið jú en ekki það mikið af forritum :)

Sent: Lau 06. Nóv 2004 23:29
af MezzUp
ErectuZ skrifaði:Hvað á "Annað" kosturinn að merkja? :? Kannski með svona helming af einu forriti stolnum, og hinn keyptann, eða?

Ekkert sérstak, kannski ef menn eru ekki vissir, eða t.d. eru núna með shareware en búast við að crack'a það áður en það rennur út.

Annars gert ráð fyrir að menn commenti ef að þeir merkja við ,,Annað"

Sent: Lau 06. Nóv 2004 23:32
af BlitZ3r
eg er með stolið windows en nota samt cd-keyinn sem kom með tölvunni en er með aðeins stolin forrit

Sent: Lau 06. Nóv 2004 23:47
af ICM
Pandemic skrifaði:Ég er nú með mest allt stolið samt vel ég nú yfirleitt open source hugbúnað yfir stolið dót þar sem það er yfirleitt betra og meira uppfært

Nú þú meinar þá semsagt að Open Office sé betra en Office 2003 og að Gimp sé betra en Adobe Photoshop. Þetta "yfirleitt" sem þú segir á nær nær eingöngu yfir Linux vs. Windows.
Nefndu Open Source hugbúnað annan en Linux sem er betri en seldur hugbúnaður, þar sem freeware getur ekki verið stolið.

Sent: Sun 07. Nóv 2004 00:09
af Sup3rfly
Eins furðulegt og það getur verið, þá er ég ekki með neinn stolinn hugbúnað í tölvunni. Ætli það sé ekki bara utaf ég er nýbúinn að formatta, svo er mér ótrúlega illa við að cracka dæmi og svoleiðis. Fæ svona smá samviskubit :wink:

Sent: Sun 07. Nóv 2004 01:28
af Zaphod
Er nú búinn að vera að vinna því að gera tölvunna mína "löglega" á síðustu árum , alltaf að leita að einhverju freeware í staðinn fyrir þessi forrit sem maður hefur nota ...

núna eru bara 2 sem gætu talist illa fenginn inná þessari vél . .

Persónulega finnst mér að ef maður finnur eitthvað forrit sem er gott og maður ætlar sér að nota þá er varla forsvaranlegt að verðlauna ekki þá vinnu sem liggur að baki .

En samt eru náttúrulega forrit sem kosta mörg hundruð þúsund hvert , maður gerir varla ráð fyrir að þeir sem gera þessi forrit geri ráð fyrir því að fólk sé að kaupa þetta til einkanota þeas heimilisnota ........

Sent: Sun 07. Nóv 2004 01:33
af Pandemic
Ég sagði nú ekki allur hugbúnaður en t.d DVD ripparar sem ég hef notað eru yfirleitt miklu betri opensource heldur en þessir sem maður þarf að borga fyrir

Sent: Sun 07. Nóv 2004 01:36
af Voffinn
Vilezhout skrifaði:
Voffinn skrifaði:Ekki ögn.


dual boot á acer lappa ?


Nei, hættur að dualboota! ;-)

gumol skrifaði:Ég bara trúi því ekki að það sé ekki neitt ólöglegt á windows hlutanum hjá þér Voffinn :Wink:

Annars er ég með alltof mikið af pirated hugbúnaði :Sad:


Hvaða windows hluta ert þú að tala um? :-)

Sent: Sun 07. Nóv 2004 12:10
af ICM
Pandemic skrifaði:Ég sagði nú ekki allur hugbúnaður en t.d DVD ripparar sem ég hef notað eru yfirleitt miklu betri opensource heldur en þessir sem maður þarf að borga fyrir

Sýndu mér þá open source forrit sem er fljótlegara í notkun en Dr. DivX, það er einmitt kostur ef svona forrit eru ekki uppfærð reglulega þar sem það á að reyna að búa til staðla, t.d. eru nokkrir unofficial DivX staðlar í gangi, hversu marga sér maður af XVID?

Sent: Sun 07. Nóv 2004 13:20
af Pandemic
Xvid er miklu vinsælla en Divx.
Divx eru byrjaðir að brenna merki í myndirnar og rugl enda eru tökmörk á myndinni í þeim staðli.
Þú sérð varla Releasa í dag í Divx lang flestir nota Xvid

Sent: Sun 07. Nóv 2004 13:29
af ICM
Pandemic DivX er næstum því staðall en Xvid er stöðugt verið að breyta, DVD spilarar, Lófatölvur, ferða video spilarar og þessháttar styðja DivX en ég veit ekki um marga sem styðja Xvid enda er stöðugt verið að breyta því.
DivX brennimerkir ekki myndirnar ef þú hefur keypt DivX encoder og þessi decoder sem flestir nota brennimerkir þær ekki heldur lætur yfir watermark sem ER HÆGT AÐ SLÖKKVA Á ef þú RTFM!!!

Sent: Sun 07. Nóv 2004 13:34
af Pandemic
Philips-spilarinn hjá bróa getur spilað Xvid virkar bara fínt

Sent: Sun 07. Nóv 2004 14:13
af pjesi
Ég rakst óvart í 'Já' þó ég sé ekki með neitt stolið :l