Síða 1 af 1

Finnið stærsta prímtöluþátt heiltölu- Java

Sent: Mið 10. Sep 2014 15:09
af gingij4
Er að gera verkefni í skólanum þarf sem ég að að finna stærsta prímtöluþátt heiltölu og mér gengur ekkert sérstaklega vel að gera það.

fyrirmælin eru þessi:

Í þessu verkefni á að skrifa Java forrit sem les eina heiltölu (int) frá aðalinntaki og skrifar stærsta prímtöluþátt tölunnar á aðalúttak.
Munið að prímtala er heiltala stærri en 1 þ.a. engin heiltala stærri en 1 gengur upp í henni nema talan sjálf.
Þið megið gera ráð fyrir að lesna talan sé stærri en 1 og megi tákna sem int.
Til dæmis ætti inntakið

6

að gefa úttakið
3

Einnig ætti inntakið
15

að gefa úttakið
5

Inntakið
27

ætti að gefa úttakið
3

Inntakið
17

ætti að gefa úttakið
17


Er einhver hér sem gæti gefið mér einhverja hugmynd hvernig ég á að gera þetta?

Re: Finnið stærsta prímtöluþátt heiltölu- Java

Sent: Mið 10. Sep 2014 15:31
af Klemmi
Ertu í vandræðum með forritunina sjálfa eða að útbúa algrím sem finnur stærsta prímtöluþátt?

Ef þig vantar bara algrímin, þá eru nokkur postuð hér:
http://stackoverflow.com/questions/2328 ... f-a-number

Ef þig vantar aðstoð við hvernig á að forrita algrímin í Java, þá er það annar handleggur (þó einfaldur).

Re: Finnið stærsta prímtöluþátt heiltölu- Java

Sent: Mið 10. Sep 2014 15:38
af Lunesta
visbendingar:
ef 15 er deilanlegt með 5 þá
15%5=0.
notaðu
int staerst =2 og
í hvert skipti sem þu færð stærri frumtölu rot þá mattu
setja staerst = su tala.

ætti að vera allt sem þu þarft

Re: Finnið stærsta prímtöluþátt heiltölu- Java

Sent: Mið 10. Sep 2014 15:40
af tlord
byrjaðu að gera fall sem finnur hvort tala er prímtala.. niðurstaðan ætti að vera true/false

Re: Finnið stærsta prímtöluþátt heiltölu- Java

Sent: Mið 10. Sep 2014 15:56
af Viktor

Kóði: Velja allt

        int i;
        for (i = 2; i <= number; i++) {
        if (number % i == 0) {
            number /= i;
            i--;
        }
        }
        System.out.println(i);

Re: Finnið stærsta prímtöluþátt heiltölu- Java

Sent: Mið 10. Sep 2014 16:15
af Lunesta
"ekkert sem skipti máli var skrifað hér"

mátt samt ekki gefa honum allt dæmið..
oh well

Re: Finnið stærsta prímtöluþátt heiltölu- Java

Sent: Mið 10. Sep 2014 23:26
af rickyhien
Sallarólegur skrifaði:

Kóði: Velja allt

        int i;
        for (i = 2; i <= number; i++) {
        if (number % i == 0) {
            number /= i;
            i--;
        }
        }
        System.out.println(i);


og ég held að það þarf ekki að láta "i" fara alla leið upp að "number" heldur bara Math.sqrt(number)

edit: ah nevermind sorry sá ekki að það er hægt að gefa sama tölu ef talan væri prímtala..my bad

Re: Finnið stærsta prímtöluþátt heiltölu- Java

Sent: Mið 10. Sep 2014 23:43
af Lunesta
rickyhien skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:

Kóði: Velja allt

        int i;
        for (i = 2; i <= number; i++) {
        if (number % i == 0) {
            number /= i;
            i--;
        }
        }
        System.out.println(i);


og ég held að það þarf ekki að láta "i" fara alla leið upp að "number" heldur bara Math.sqrt(number)

edit: ah nevermind sorry sá ekki að það er hægt að gefa sama tölu ef talan væri prímtala..my bad


það væri samt betra forrit. Keyrir á færri lykkjur og færri aðgerðir í hverri lykkju -> fljótlegra og skemmtilegra.