Síða 1 af 1

Myndavélar Mílu erlent Download?

Sent: Mán 08. Sep 2014 18:16
af Elmar-sa
Sæl(ir), vitið þið hvort vélarnar telja sem erlent DL? Það eru komin 45 Gb hjá mér erlent á 8 dögum og Míla kemur sterklega til greina, komu 850 á klukkutíma áðan og bara Bárðabunguvélarnar opnar. Fékk svar til baka frá Mílu að þetta ætti að vera Íslenskt svo ég er alvegt lost hérna..........

Re: Myndavélar Mílu erlent Download?

Sent: Mán 08. Sep 2014 18:22
af worghal
ertu hjá símanum ?

Re: Myndavélar Mílu erlent Download?

Sent: Mán 08. Sep 2014 18:34
af Elmar-sa
Nei Tal, er að bíða eftir einhverri útskrift frá þeim, tekur 2-3 daga.

Re: Myndavélar Mílu erlent Download?

Sent: Mán 08. Sep 2014 18:41
af urban
Prufaðu að slökkva á browsinu á mílu vélunum og skoða það aftur eftir 12 tíma

Re: Myndavélar Mílu erlent Download?

Sent: Mán 08. Sep 2014 18:55
af depill
Ja þegar ég loada load.netvarp.is sem load tengipunktinum sem þú tengist við fæ ég oftast upp 178.62.42.57 frá tenginunni minni hérna hjá Símanum sem er hjá Digital Ocean í London er erlent niðurhal. Einu sinni fékk ég 213.167.154.50 sem er innlent niðurhal.

Svo ég myndi segja að það séu svona 90% líkur að þú sért að fara fá vefmyndavélina frá London

Re: Myndavélar Mílu erlent Download?

Sent: Mán 08. Sep 2014 19:18
af Elmar-sa
Urban, gerði það frá 00.00 til 12.00 í dag og ekkert erlent Dl, kveikti svo á myndavél Mílu milli 16-17 þá loggaði það sem erlent. Varð bara að spyrja af þessu þar sem það kemur hvergi fram hjá Mílu að þetta sé möguleiki og gagnamagn mánaðarins farið :-)

Re: Myndavélar Mílu erlent Download?

Sent: Þri 09. Sep 2014 14:06
af Elmar-sa
Fékk annað svar frá Mílu, það fyrsta var (netþjónninn sem Míla notar undir myndavélarnar er íslenskur.)
Seinna svarið.
(Streymið er innanlands fyrir íbúa íslands en þegar álagið verður það mikið að innanlands serverar þjóna ekki eftirspurn þá beinist streymisumferðin í gegnum streymisþjóna sem eru hýstir erlendis. Viðkomandi helst þá tengdur við erlendu streymisþjónana þangað til að hann opnar síðuna aftur þ.e. það þarf að rjúfa sambandið.)

Ok hefði verið gott að vita það, svo fékk ég athugasemd frá þeim að ég hefði bara horft of MIKIÐ á myndavélina haha.

Re: Myndavélar Mílu erlent Download?

Sent: Mið 10. Sep 2014 13:57
af benediktkr

Re: Myndavélar Mílu erlent Download?

Sent: Mán 15. Sep 2014 17:19
af Elmar-sa
Getur fólk treyst því að .is lén sé alltaf íslensk traffic ? Eru til einhverjar reglur um þetta ?

Re: Myndavélar Mílu erlent Download?

Sent: Mán 15. Sep 2014 17:24
af svensven
Elmar-sa skrifaði:Getur fólk treyst því að .is lén sé alltaf íslensk traffic ? Eru til einhverjar reglur um þetta ?


Engan vegin - það er alfarið undir eiganda lénsins að ákveða hvar hann hýsir lénið.

Re: Myndavélar Mílu erlent Download?

Sent: Mán 15. Sep 2014 23:24
af kizi86
svensven skrifaði:
Elmar-sa skrifaði:Getur fólk treyst því að .is lén sé alltaf íslensk traffic ? Eru til einhverjar reglur um þetta ?


Engan vegin - það er alfarið undir eiganda lénsins að ákveða hvar hann hýsir lénið.

en virkilega lélegt af fyrirtæki sem rekur eitt stærsta fjarskiptanet á landinu, að geta ekki sett upp þjóna á íslandi sem gætu annað svona álagi, að þurfa að beina traffíkinni erlendis er ekki góður sölupunktur fyrir þetta fyrirtæki, sem segist vera í fararbroddi á íslenskum fjarskiptamarkaði

Míla byggir upp og rekur fullkomnasta fjarskiptanet á Íslandi. Míla sér fjarskipta-, síma- og afþreyingarfyrirtækjum fyrir aðstöðu og dreifileiðum um net ljósleiðara og koparstrengja sem tengja byggðir landsins við umheiminn. Míla er mikilvægur hlekkur í öryggisfjarskiptum landsins á sjó, landi og lofti.


greinilega mjög svo ekki fullkomið kerfi ef getur ekki höndlað svona traffík og þurfi að senda hana úr landi...

Re: Myndavélar Mílu erlent Download?

Sent: Mið 17. Sep 2014 09:00
af depill
Sýnist netvarpið.is sjá um þetta fyrir þá og gæti trúað því að ákvörðunin sé frekar tekin með tilliti til þess að bara 18,3% heimsókna eru innlendar

Re: Myndavélar Mílu erlent Download?

Sent: Mið 17. Sep 2014 12:09
af Squinchy
Það útskýrir að ég sé kominn í 90GB+, þá veit ég það.


Takk Míla.