Síða 1 af 1

Hvernig slekk ég á forritum sem eru að vinna í bakgrunni

Sent: Fös 01. Ágú 2014 13:18
af jardel
Nú er ég bara með 4gb af rami í minni tölvu þarf ég að fara í hvert og eitt forrit til að sjá hvaða forrit eru að vinna í bakgrunni er ekki einhver fídus
Ég er með windows 7.

Einnig væri gaman að heyra í ykkur sem notið avast hvort þið vitið hvernig ég slekk á að avast svo það vinnur ekki í bakgrunni.

Ef þið vitið um eitthvað gott forrit sem hraðar tölvunni annað en defraggler væri það einnig vel þegið

Re: Hvernig slekk ég á forritum sem eru að vinna í bakgrunni

Sent: Fös 01. Ágú 2014 13:24
af DarkSabre
CTRL+ALT+DELETE : Task manager - Processes - End Process.
En þú vilt ekki drepa allt of mikið þar. Allt í lagi með hluti eins og Quick Time Helper og svoleiðis, en ekki hluti eins og t.d. Explorer.Exe :P

Re: Hvernig slekk ég á forritum sem eru að vinna í bakgrunni

Sent: Fös 01. Ágú 2014 13:29
af lukkuláki
msconfig og tekur hakið úr því sem þú vilt ekki hafa í gangi. Endurræsir síðan vélina.
Man ekki betur en þú getir hægri klikkað á avast iconið niðri í taskbarnum og slökkt á því í ákveðinn tíma eða permanently.
Það er fínt að keyra ccleaner til að hreinsa draslið.

Re: Hvernig slekk ég á forritum sem eru að vinna í bakgrunni

Sent: Fös 01. Ágú 2014 13:34
af jardel
Svona lýtur þetta út hjá mér í task manager er eitthvað þarna sem betur mætti fara?
Get ég lokað einhverju þarna án þess að það opnist aftur þegar ég enduræsi tölvuna.

Re: Hvernig slekk ég á forritum sem eru að vinna í bakgrunni

Sent: Fös 01. Ágú 2014 13:36
af Viktor
Ccleaner er gott forrit til þess að hreinsa tölvuna, og slökkva á aukaforritum

Re: Hvernig slekk ég á forritum sem eru að vinna í bakgrunni

Sent: Fös 01. Ágú 2014 13:40
af jardel
Í msconfig. hvað er í lagi að taka marga haka út þar?

Re: Hvernig slekk ég á forritum sem eru að vinna í bakgrunni

Sent: Fös 01. Ágú 2014 15:09
af Yawnk
jardel skrifaði:Í msconfig. hvað er í lagi að taka marga haka út þar?

Haha ekki bara haka í eitthvað.. ekki haka í það ef þú veist ekki hvað það gerir..

Re: Hvernig slekk ég á forritum sem eru að vinna í bakgrunni

Sent: Fös 01. Ágú 2014 16:05
af Lunesta
gúglaðu bara það sem þú ert óviss um. Flest windows drasl geturu látið í friði. Þetta ætti að vera
nokkuð basic ef þú ferð bara varfærnislega í gegnum þetta.

Re: Hvernig slekk ég á forritum sem eru að vinna í bakgrunni

Sent: Fös 01. Ágú 2014 17:11
af lukkuláki
Getur sett hak þarna í "Hide all microsoft services" og gert síðan 'Disable all' þá ræsir vélin eðlilega en þá þarftu að setja hak í eitt af öðru fyrir hitt og þetta til að það virki en þú getur alveg prófað þig áfram með það.

Re: Hvernig slekk ég á forritum sem eru að vinna í bakgrunni

Sent: Fös 01. Ágú 2014 17:58
af jardel
Ég þakka fyrir upplýsingar. Eru einhverjir hérna sem notar avast vírus vörn?
avast notar mjög mikið pláss í ram eru einhverjar styllingar betri en aðrar?

Re: Hvernig slekk ég á forritum sem eru að vinna í bakgrunni

Sent: Fös 01. Ágú 2014 18:31
af TraustiSig
Sallarólegur skrifaði:Ccleaner er gott forrit til þess að hreinsa tölvuna, og slökkva á aukaforritum


Hef notað CCleaner með góðum árangri. Til að þrífa óþarfa Cache gögn af HDD og registry. Þar geturu líka farið í flipa sem heitir "Startup" og hakað úr öllum þeim forritum sem þú vilt ekki að ræsi með vélinni (Adobe Auto Updater, Skype etc)

jardel skrifaði:Ég þakka fyrir upplýsingar. Eru einhverjir hérna sem notar avast vírus vörn?
avast notar mjög mikið pláss í ram eru einhverjar styllingar betri en aðrar?


Microsoft Security Essentials hef ég svo yfirleitt notað sem vírusvörn. Létt og þæginleg og updatear sig með Windows Update.
Yfirleitt instalað henni gegnum https://ninite.com/ með því að haka í "Essentials" undir "Security"
Þarna geturu líka updateað þau forrit sem þú ert með á tölvunni nú þegar eða vantar að setja upp í leiðinni -> (Adobe Reader, VLC, Chrome/Firefox etc.) :happy

Re: Hvernig slekk ég á forritum sem eru að vinna í bakgrunni

Sent: Fös 01. Ágú 2014 19:38
af jardel
Þakka upplýsingarnar.

Hvað browser finnst ykkur hraðastur?
Ég hef alltaf verið að nota firefox er chrome betri?

Re: Hvernig slekk ég á forritum sem eru að vinna í bakgrunni

Sent: Fös 01. Ágú 2014 19:49
af GullMoli
jardel skrifaði:Þakka upplýsingarnar.

Hvað browser finnst ykkur hraðastur?
Ég hef alltaf verið að nota firefox er chrome betri?


Persónulega kýs ég Firefox fram yfir Chrome.

Getur sótt og keyrt Speedyfox til þess að hreinsa til í browsernum ef hann er farinn að verða eitthvað hægvirkur; http://www.crystalidea.com/speedyfox

Re: Hvernig slekk ég á forritum sem eru að vinna í bakgrunni

Sent: Fös 01. Ágú 2014 20:45
af BaldurÖ
Ég skipti út avast (free version) fyrir panda cloud free miklu léttari í vinnslu :)

Re: Hvernig slekk ég á forritum sem eru að vinna í bakgrunni

Sent: Fös 01. Ágú 2014 21:56
af kizi86
ein spurning, hvað er það sem krefst svona mikils vinnsluminnis hjá þér? samkvæmt þessu skjáskoti frá þér, ertu að keyra firefox og leik, saman taka þau 840MB og ert með fleira í keyrslu, samt ertu með 47% laus af vinnsluminninu...

Re: Hvernig slekk ég á forritum sem eru að vinna í bakgrunni

Sent: Fös 01. Ágú 2014 23:00
af brain
Tók líka eftir að Avast tók 5 Mb í minni...

Skil ekki alveg vandamálið með Avast.

Re: Hvernig slekk ég á forritum sem eru að vinna í bakgrunni

Sent: Lau 02. Ágú 2014 00:16
af lukkuláki
Hef notað Avast á tölvur heima hjá mér, foreldrum mínum, vinum og fleirum í mörg ár.
það hefur aldrei verið neitt vandamál með Avast hún keyrir mjög létt og er lang besta vírusvörn sem ég hef prófað því hún einfaldlega virkar.