Síða 1 af 1

Að setja upp server?

Sent: Lau 30. Okt 2004 14:08
af kanill
Sælir ég er að vellta því fyrir mér að skella upp server til þess að hýsa eina litla heimasíðu fyrir hana múttu. Og líka bara væri þæjinlegt að vera með server. En allavega ég er með P3 700 256 í minni og engann disk í augnarblikinu :) En ég var að spá hvort maður á að setja upp Win2k eða WinXp. Hvort gerið þið? Ég nenni ekki að setja upp Linux alls ekki útaf því að ég sé einhver M$ fan nr. 1 heldur einfaldlega útaf því að ég hef enga kunnátu á Linux hef aldrei nennt að skipa um umhverfi :oops: . Og Já ég er latur!! En allavega hvað ætti ég að setja upp og hvaða forrit þarf maður og svona .. ég er alger nýgræðingur í þessum málum. Endilega ef þið vitið um einhvern góðan tutorial eða eitthvað fyrir þetta url me upp baby!

Endir.

Sent: Lau 30. Okt 2004 14:30
af CendenZ
það er svo skítlétt.

setur bara win2k inn með öllum nýjustu updeitum. (xp er með ooof mikið drasl og aðeins of þungt í keyrslu, munar þó ekki miklu)

ferð í services og mmc og slekkur á öllum óþarfa og einhverju drasli sem þú þarft alls ekki.

installar apache eða virkjar IIS

hefur sem minnst á tölvunni.

=)

Sent: Lau 30. Okt 2004 14:47
af kanill
CendenZ skrifaði:það er svo skítlétt.

setur bara win2k inn með öllum nýjustu updeitum. (xp er með ooof mikið drasl og aðeins of þungt í keyrslu, munar þó ekki miklu)

ferð í services og mmc og slekkur á öllum óþarfa og einhverju drasli sem þú þarft alls ekki.

installar apache eða virkjar IIS

hefur sem minnst á tölvunni.

=)


Svallt!! .. en hversu miklu munar ef segjum að ég myndi henda endrum og eins upp leikjaserver eða eitthvað á þessu ... yrði síðan sem væri hýst þarna bara eins og á 28.8 módemi eða?

Sent: Lau 30. Okt 2004 15:11
af MezzUp
Fer náttla eftir því hvernig tengingu þú ertu með.
Annars held ég að 700Mhz ráði ekkert við marga manna leikjaserver, allavega ekki ef þú ert líka PHP og MySQL á síðunum.

Sent: Lau 30. Okt 2004 15:13
af kanill
MezzUp skrifaði:Fer náttla eftir því hvernig tengingu þú ertu með.
Annars held ég að 700Mhz ráði ekkert við marga manna leikjaserver, allavega ekki ef þú ert líka PHP og MySQL á síðunum.


Ahh ok .. bara pæla þá bara verð ég að sleppa því þangað til ég myndi updaita serverinn :wink:

Sent: Lau 30. Okt 2004 15:31
af CendenZ
server uppsetningar koma tengingum ekkert við :)


en já, ætlaru að hafa leikjaserver á þessu ?

p3-800 + 1gb sdram myndi alveg virka ... þeas, í ákveðin tíma, svo þarftu að reboota því pagefileið á til að taka stærra pláss því lengra sem það er spilað :D


en fyrir bara heimasíðu með kannski 10 hits á dag er þetta no problem :)


já, tengingin þyrfti auðvitað að vera góð.. annars myndi engin skoða =)

ps, sagðistu ekki ætla hósta vefsíðu ? breyttiru síðan í leikjaþjón ? :?:

Sent: Lau 30. Okt 2004 15:45
af MezzUp
kanill skrifaði:en hversu miklu munar ef segjum að ég myndi henda endrum og eins upp leikjaserver eða eitthvað á þessu

lesa Cendenz :)

Sent: Lau 30. Okt 2004 15:52
af CendenZ
lestu sjálfur.


1.sti pósturinn = þá ætlar hann að hosta "tiny biny oggulitla heimasíðu"

svo allt í einu ætlar kauði í 3ja pósti ætlar hann að henda upp cs server sem skítlaggar!


SPURNING UM AÐ LESA VOGABARN :D


Ég er borgarbarn!

Sent: Lau 30. Okt 2004 17:19
af Andri Fannar
huh , endrum og eins :!:

Sent: Lau 30. Okt 2004 18:01
af MezzUp
SvamLi skrifaði:huh , endrum og eins :!:

ákkúrat. Svona fer borgarmenguninn með þig Cendenz :P

Sent: Lau 30. Okt 2004 19:15
af CendenZ
nóbb!! [-(


;þ <-- afhverju er ekki ullikall ? :x

Sent: Lau 30. Okt 2004 19:17
af gnarr
ég var nú með BF1942 server á 1GHz p3 með 128MB minni. hann fór ekki að lagga fyrr en 12-15+ voru inná

Sent: Lau 30. Okt 2004 19:38
af CendenZ
heh

netkóðinn í CS er _örlítið_ frábrugðin BF :>

Sent: Lau 30. Okt 2004 19:39
af Pandemic
Að vera með bf server tekur gífurlegt Ram :S

Sent: Lau 30. Okt 2004 19:49
af gnarr
og mikið utanlands gagnamagn ;(

128MB duguðu nú bara mjög vel. þar að auki sdr

Sent: Sun 31. Okt 2004 13:21
af kanill
CendenZ skrifaði:lestu sjálfur.


1.sti pósturinn = þá ætlar hann að hosta "tiny biny oggulitla heimasíðu"

svo allt í einu ætlar kauði í 3ja pósti ætlar hann að henda upp cs server sem skítlaggar!


SPURNING UM AÐ LESA VOGABARN :D


Ég er borgarbarn!



Nei ég ætla nú aðalega að hósta síðuna .. en var bara að spá hvort hitt væir möguleiki :wink:

Sent: Sun 31. Okt 2004 17:13
af Pandemic
Apache-php
Deadly duo

Sent: Sun 31. Okt 2004 19:51
af Voffinn
Pandemic skrifaði:Apache-php
Deadly duo


Er það samt ekki meira svona, apache + mod_php? :8)

Sent: Sun 31. Okt 2004 19:53
af Pandemic
ég er með apache-php-mysql-perl
Guð minn góður ég prófaði einu sinni svona autoinstall pakka það er ömurlegt að nota þannig.

Sent: Mán 01. Nóv 2004 08:49
af gnarr
apache-mysql-php er málið.

Sent: Mán 01. Nóv 2004 14:38
af MezzUp
gnarr skrifaði:apache-mysql-php er málið.

Amm, það er nokkuð þéttur pakki, sérstaklega ef að maður nennir að henda því upp á Linux.