Síða 1 af 1

BEWAN router / Voda-ljós / Deildu.net / vesen

Sent: Þri 01. Júl 2014 02:55
af gullli
Sælir.

Ég er að vesenast með Bewan router frá Vodafone, á ljósi.

Er búinn að portforwarda (að ég held) skv. leiðbeiningum hérna inni og get dl'að af piratebay og öðrum erlendum síðum án mikilla vandræðra. Það er stundum nokkuð lengi að fara af stað en rýkur upp í hraða þegar það byrjar.

Vandamálið er að þegar ég ætla að sækja eitthvað af deildu.net (sama hvað það eru margir að seeda) kemur alltaf í utorrent að það sé enginn að deila og ekkert gerist.

Þetta eitthvað sem einhver þekkir og getur hjálpað mér með?

(tel mig hafa farið yfir allt hérna sem ég fann í leitinni og komst ekki að niðurstöðu, þessvegna spyr ég hér)

Takk.

G.

Re: BEWAN router / Voda-ljós / Deildu.net / vesen

Sent: Þri 01. Júl 2014 19:42
af Xberg
Portforwarding hefur ekkert með Download-ið að gera bara Upload-ið.

Piratebay er ( alltaf / oft ) lengi að byrja Downloada. Svo það er eðlilegt hjá þér.

Enn þinn vandi með Deildu er ég ekki alveg viss um hvað gæti verið að.
Skoðaðu allar stillingar í utorrent og athugaðu hvort þú sért ekki pottþétt með Íslenska Ip addressu, sérð það hérna --> https://kjarni.cc/tools/checkforiceland

Ef hún er íslensk prófaðu þá að senda Hjálparanum á deildu skilaboð og athuga hvort þinn Ip flokkur sé á skrá hjá þeim , á að vera nó að senda þeim fyrstu 2.dálkana í þinni Ip ( s.s 252.265.???.??? )
En er hún er af einhverri ástæði erlend þá er sá vandi leistur. :)

Re: BEWAN router / Voda-ljós / Deildu.net / vesen

Sent: Þri 01. Júl 2014 19:47
af Blackened
Snöggt svar er reyndar að gleyma þessum BEWAN router.. ef þú hefur minnsta séns á að fá eitthvað annað.. go for it! ;)

(Reyndar kemur kannski ekki þessu vandamáli beint við.. en samt :) )

Re: BEWAN router / Voda-ljós / Deildu.net / vesen

Sent: Þri 01. Júl 2014 20:27
af Viktor

Re: BEWAN router / Voda-ljós / Deildu.net / vesen

Sent: Þri 01. Júl 2014 20:37
af gullli
Xberg, takk fyrir skjót svör. Prófa þetta.

Þið hinir, þakka ykkur líka .. var svosem búinn að láta mér detta í hug að sturta þessu Bewan dóti norður og niður (sérstaklega eftir að hafa verið að lesa greinar og vandamál hérna inni). Gef honum þó líf eitthvað aðeins, nema hann verði áfram til verulegra vandræða, þá endurskoðast það eftir atvikum.

G.

Re: BEWAN router / Voda-ljós / Deildu.net / vesen

Sent: Mið 02. Júl 2014 01:30
af Hargo
Ertu ekkert að lenda í því að routerinn restarti sér þegar þú ert að fullnýta bandvíddina á tengingunni gegnum torrent?

Lendi alltaf í því hjá mér, þarf að cappa download hraðann í utorrent forritinu við cirka 4mb til að halda þessum Bewan router stöðugum í downloadi.

Re: BEWAN router / Voda-ljós / Deildu.net / vesen

Sent: Þri 08. Júl 2014 00:07
af gullli
Sæll.

Nei, hef ekki lent í neinum restart-vandræðum.

Er þó enn að glíma við þetta að hann vill ekki sækja neitt í gegnum deildu en piratebay og aðrar erlendar virka eins og enginn sé morgundagurinn.

Kv. G

Re: BEWAN router / Voda-ljós / Deildu.net / vesen

Sent: Þri 08. Júl 2014 19:53
af mercury
fór í gegnum 3 bewan routera áður en ég fékk nbg420N eða hvað hann heitir, en var aldrei sáttur. batnaði þó talsvert með þeim síðar nefnda. endaði svo á að kaupa mér asus n56u og þá fyrst hætti ég að lenda í vandræðum. Tel það mjög góð kaup að eyða 10-20k í álmennilegan router í staðin fyrir að borga ~500kr á mánuði fyrir einhvað sorp.