Síða 1 af 1

Hjálp með val á router

Sent: Mið 04. Jún 2014 13:09
af I-JohnMatrix-I
Sælir vaktarar

Nú hef ég ákveðið að segja upp neti mínu hjá Símanum þar sem þeir virðast ekki vilja halda í viðskiptavini sína. Ég hef ákveðið að prufa netið hjá Hringdu og vantar mig þá router. Ég var að velta því fyrir mér hvort að það væru einhverjir adsl routerar í boði í tölvuverslunum sem eru betri en þessir sem hringdu eru að selja. Ekki er verra ef hann er langdrægur og hann má kosta ca 15 k.

Re: Hjálp með val á router

Sent: Mið 04. Jún 2014 22:24
af Karmine
Er sjálfur með TrendNet í augnablikinu hann virkar fínt en lélegt Admin Panel, var áður fyrr með Cisco leigðan frá Vodafone og eitt skipti frá Tal, þeirra Admin viðmót er betra.
Eina ráðið sem ég get gefið.

Re: Hjálp með val á router

Sent: Mið 04. Jún 2014 23:07
af I-JohnMatrix-I
Takk fyrir það, búinn að vera skoða þennan http://tl.is/product/asus-rt-n56u-router

Fær frábæra dóma, hugsa ég skelli mér á hann nema einhver veit um betri router íi þessum verðflokki. :)

Re: Hjálp með val á router

Sent: Mið 04. Jún 2014 23:40
af Oak
þessi er fyrir ljósleiðara sem þú bendir á.

Re: Hjálp með val á router

Sent: Mið 04. Jún 2014 23:46
af I-JohnMatrix-I
Oak skrifaði:þessi er fyrir ljósleiðara sem þú bendir á.


Hann virkar s.s. ekki með adsl ? Ef ekki ertu með einhverjar uppástungur ? :)

Re: Hjálp með val á router

Sent: Mið 04. Jún 2014 23:48
af Oak
hefurðu ekki möguleikann á VDSL (ljósnet)?

Re: Hjálp með val á router

Sent: Mið 04. Jún 2014 23:52
af Oak

Re: Hjálp með val á router

Sent: Mið 04. Jún 2014 23:59
af I-JohnMatrix-I
Því miður, ekkert VDSL hér :(

Þakka ábendingarnar. :)

Re: Hjálp með val á router

Sent: Fim 19. Jún 2014 10:51
af Some0ne
Það er ekkert mál að breyta öllum ADSL/VDSL routerum í bridge bara, og nota svo sinn eigin router til að sjá um allt annað.