Síða 1 af 1

Hátt Lol ping hjá Hringdu.

Sent: Fös 04. Apr 2014 23:57
af Drrio
Svo er mál með vexti að ég er ný kominn með ljósnet frá Hringdu eftir að hafa þurft að þola 2 mánuði af sönnu vodafone rugli. Flest allt virðist virka eins og auglýst var en League of Legends hinsvegar fer ekki undir 150ms.

Hef mjög takmarkaða þolinmæði gagnvart síma og netþjónustu aðilum þessa stundina og langaði að vita hvort fleiri væru að lenda í því sama með Hringdu áður en færi mig annað.

Re: Hátt Lol ping hjá Hringdu.

Sent: Lau 05. Apr 2014 00:15
af rango
Stundum þegar ég er að spila LoL þá er ég nokkrum sekundum á eftir öllum hinum.


Bara já vertu með 4G fyrir netleikina :P

Re: Hátt Lol ping hjá Hringdu.

Sent: Lau 05. Apr 2014 11:30
af trausti164
Ég er hjá símanum og ég tek dýfur niður í 5-800ping.

Re: Hátt Lol ping hjá Hringdu.

Sent: Lau 05. Apr 2014 12:03
af Plushy
Ég hef aldrei lent í neinu háu pingi eða laggi nema þegar LoL serverarnir eru sjálfir að lagga, sem er merkilega oft á EU :)

er hjá Tal

Re: Hátt Lol ping hjá Hringdu.

Sent: Fim 10. Apr 2014 21:32
af Raidmax
Er að lenda í því nákvæmlega sama, er kickað af öllum counter strike serverum sem ég fer inná. Mjög óþolandi þetta er alltaf að gerast, er sambandið hjá hringdu við erlenda þjóna svona slakt ?