Smá vandamál með stafi sem hafa kommu


Höfundur
sirkus
Nýliði
Póstar: 17
Skráði sig: Þri 04. Jan 2011 18:58
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Smá vandamál með stafi sem hafa kommu

Pósturaf sirkus » Mið 26. Feb 2014 09:52

Windows tók allt í einu upp á því að þegar maður ætlar að gera "í" (og alla aðra stafi sem hafa kommu), þá kemur þetta "´´i", er búinn að vera reyna finna þetta á netinu en ekkert fundið ennþá.

Er með :
W7 pro
Office 2013
og fleirri forrit.



Einhverjar hugmyndir hvað þetta gæti verið ?



Skjámynd

upg8
vélbúnaðarpervert
Póstar: 998
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 21:32
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: Smá vandamál með stafi sem hafa kommu

Pósturaf upg8 » Mið 26. Feb 2014 09:57

prófaðu að ýta á alt+shift þegar þetta gerist, hugsanlegt að þú hafir skipt um tungumála layout á lyklaborðinu og ef þú ert inní tilteknu forriti þegar þú gerir það, þá gerist það ekki system-wide heldur bara í tilteknu forriti.


Kóði: Velja allt

"There's an adapter for that"

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Smá vandamál með stafi sem hafa kommu

Pósturaf dori » Mið 26. Feb 2014 09:58

Er þetta svona í öllum forritum? Þú ert pottþétt með stillt á íslenskt lyklaborð?

Annars hef ég séð að keyloggerar geta valdið þessu dæmi. Ekkert endilega ástæða til paranoju en ég myndi allavega hafa það í huga og skanna tölvuna þokkalega ef það er ekki önnur augljósari ástæða.




kjartanbj
FanBoy
Póstar: 709
Skráði sig: Fim 24. Sep 2009 12:42
Reputation: 155
Staða: Ótengdur

Re: Smá vandamál með stafi sem hafa kommu

Pósturaf kjartanbj » Mið 26. Feb 2014 09:58

mögulegt að þú sért með Keylogger vírus , eða einhver sett upp Keylogger á tölvunni hjá þér, prufaðu að opna task manager og vera með notepad opið líka og byrjaðu á að killa processum sem þú þekkir ekki og reyndu að gera kommustafi inn á milli í notepad, sjáðu hvort það lagist ekki við að killa einhverju processinu



Skjámynd

svensven
spjallið.is
Póstar: 453
Skráði sig: Þri 16. Mar 2010 16:10
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Smá vandamál með stafi sem hafa kommu

Pósturaf svensven » Mið 26. Feb 2014 09:58

Keyrðu ComboFix á vélina, það lagar þetta.

Hérna eru nánari upplýsingar um hvað er að http://www.bleepingcomputer.com/forums/ ... t-problem/
Og hérna er svo linkur á ComboFix http://www.bleepingcomputer.com/download/combofix/