Síða 1 af 1
Gömul forrit á Windows 8.1 ? (Virtual Machine?)
Sent: Mið 19. Feb 2014 14:07
af GTi
Góðan daginn.
Ég þarf að keyra gamalt iðntölvuforrit í tölvunni hjá mér. En ég er með Windows 8.1 og það neitar að setja það upp.
Það eru allir sem eru með Windows 8 eða 8.1 sem geta ekki sett það upp. En það virkar fyrir Windows 7 og eldra.
Ég var að googla og eitthvað benti mér á Hyper-V Virtual Machine sem er innbyggt í Windows 8.1? Hefur einhver prófað það eða veit einhver um aðra leið til þess að láta þetta virka?
Re: Gömul forrit á Windows 8.1 ? (Virtual Machine?)
Sent: Mið 19. Feb 2014 14:14
af upg8
Ertu búin að prófa compatabily mode? Annars þarft þú að setja upp Hyper-V í tölvunni, undir programs and features. Turn windows features on or off..
Re: Gömul forrit á Windows 8.1 ? (Virtual Machine?)
Sent: Mið 19. Feb 2014 14:22
af GTi
upg8 skrifaði:Ertu búin að prófa compatabily mode? Annars þarft þú að setja upp Hyper-V í tölvunni, undir programs and features. Turn windows features on or off..
Ég átta mig ekki alveg á "compatabily mode". En ég er búinn að virkja Hyper-V í tölvunni hjá mér. En ég á í erfiðleikum með að setja það upp.
Er að reyna fylgja þessum
leiðbeiningum. en stoppa á því að
Hyper-V - Virtualiization Endabled in Firmware..
Ég þarf e-ð að reyna skoða þetta betur hjá mér. :/
Re: Gömul forrit á Windows 8.1 ? (Virtual Machine?)
Sent: Mið 19. Feb 2014 14:26
af Garri
Hef lent í vandræðum með 8.1, neitar að keyra upp Pervasive gagnagrunn sem ég nota með nokkrum gerðu af forritum. Réttara er að það installar forritinu en næst þegar vélin er endurræst, þá fer service-inn ekki í gang. Með því að innstallera aftur, þá er allt í fína... þar til slökkt er á gripnum.
Re: Gömul forrit á Windows 8.1 ? (Virtual Machine?)
Sent: Mið 19. Feb 2014 14:32
af GTi
Í þessu tilfelli þá stoppar uppsetningin í miðju ferli og maður sér progress barinn fara til baka og kemur með error.
Re: Gömul forrit á Windows 8.1 ? (Virtual Machine?)
Sent: Mið 19. Feb 2014 14:40
af upg8
Þú getur breytt compatability mode á uppsetningarforritum líka. Hægri smellir á setup, velur properties og þar er tab sem heitir compatility mode. Hvaða forrit ertu að reyna að keyra?
Re: Gömul forrit á Windows 8.1 ? (Virtual Machine?)
Sent: Mið 19. Feb 2014 14:51
af Nacos
Villan sem þú ert að fá er til komin vegna þess að virtualization hefur ekki verið enableað í BIOS.
Re: Gömul forrit á Windows 8.1 ? (Virtual Machine?)
Sent: Mið 19. Feb 2014 15:05
af GTi
upg8 skrifaði:Þú getur breytt compatability mode á uppsetningarforritum líka. Hægri smellir á setup, velur properties og þar er tab sem heitir compatility mode. Hvaða forrit ertu að reyna að keyra?
Ég þarf að prófa það. Takk fyrir ábendinguna.
En forritið heitir Unity Pro M - Útgáfa 7. ( er með Licence á það )
Nacos skrifaði:Villan sem þú ert að fá er til komin vegna þess að virtualization hefur ekki verið enableað í BIOS.
Ég var einmitt að enda við að klára stilla þetta.