Síða 1 af 1
Spurning varðandi net yfir rafmagn
Sent: Mán 03. Feb 2014 23:41
af Tesy
Ég var að spá.. Ef ég kaupi mér svona:
http://tolvutek.is/vara/trendnet-200mbp ... r-einingarGæti ég þá notað þetta í gegnum fjöltengi?
Re: Spurning varðandi net yfir rafmagn
Sent: Mán 03. Feb 2014 23:57
af Alex97
Nei það er ekki mælt með því að setja þetta í fjöltengi. Lang best að setja það beint í vegg.
Langar að benda þér á aðra gerða af net yfir rafmagn frá trendnet þar sem að það er talsvert hraðara og þú getur stungið því í vegg og svo fjöltenginu í net yfir rafmagn eininguna.
http://tolvutek.is/vara/trendnet-500mbp ... -innstungu
Re: Spurning varðandi net yfir rafmagn
Sent: Þri 04. Feb 2014 00:26
af Tesy
Ok, er eh þráðlaust netkort sem þið mælið með og hafið reynslu af? Helst hjá tölvuteki
Má ekki vera dýrar en 8k
Re: Spurning varðandi net yfir rafmagn
Sent: Þri 04. Feb 2014 00:28
af Yawnk
Hvernig virkar svona net yfir rafmagn?
Re: Spurning varðandi net yfir rafmagn
Sent: Þri 04. Feb 2014 00:38
af gullielli
Yawnk skrifaði:Hvernig virkar svona net yfir rafmagn?
bara þú veist.. færð netsamband í gegnum rafmagnsleiðsluna..
Re: Spurning varðandi net yfir rafmagn
Sent: Þri 04. Feb 2014 00:48
af Hauxon
Ég er með svona Trendnet net-yfir-rafmagn fyrir sjónvarp. Virkar oftast vel en stundum þá rofnar sjónvarpssignalið í nokkrar sekúndur (oftast á ögurstundu). Gerði þau mistök að setja í stutt fjöltengi á dögunum og það hafði mjög slæm áhrif á tenginguna. Hef pínu áhyggjur af því að þetta muni ekki duga fyrir HD straum (hjá Vodafone sjónv.). Ég er í nýju húsi og rafmagnið hérna líklega frekar gott og spurning hvernig þetta er í eldri húsum.
Re: Spurning varðandi net yfir rafmagn
Sent: Þri 04. Feb 2014 00:52
af Demon
Fer mikið eftir lögnum í húsinu. Hjá mér dugar þetta fínt (jafnvel fyrir HD útsendingu hjá Vodafone). En í annari íbúð sem ég bjó í áður var signalið mjög veikt og rofnaði yfirleitt eftir 5 mín.
Re: Spurning varðandi net yfir rafmagn
Sent: Þri 04. Feb 2014 01:10
af Tesy
http://kisildalur.is/?p=2&id=2504En hvernig er þetta? Hefur einhver reynslu á þessu?
Keypti mér USB Trendnet rusl í gær á 3500kr sem virkar hörmulega.. fékk net sem endist í mínutu og svo datt það af.
Re: Spurning varðandi net yfir rafmagn
Sent: Þri 04. Feb 2014 11:46
af gullielli
Gera þetta almennilega og fara í þetta:
Nýr og góður router:
http://tolvutek.is/vara/trendnet-gigabi ... c-n-routerÞráðaus USB lykill sem fullnýtir (fræðilega séð) hraðamöguleika routersins:
http://tolvutek.is/vara/trendnet-tew-80 ... b3-netkort..stundum er ekki bara nóg að kaupa eitthvað USB netkort, routerinn sem þú ert með gæti verið gamall/crappy (og er það pottþétt ef þú ert með stock router frá símafyrirtækinu).
Að fjárfesta í góðum router borgar sig upp á einu ári eða skemur (enda ertu að borga leigu af router frá símafyrirtækinu...)
...samt ekki fara í svona pakka nema þú sért með ljósleiðara
Re: Spurning varðandi net yfir rafmagn
Sent: Þri 04. Feb 2014 13:33
af russi
Aðalmálið í þessu rafmangsfixi er tvennt, ekki setja þetta í fjöltengi og passa að þeir tenglar sem eru notaðir séu á sama pól.
Sem er yfirleit ekki vandamál í blokkaríbúðum, enn í stærri húsum, sérstaklega nýlegum er þetta mjög misjafnt