Síða 1 af 2

Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Mán 20. Jan 2014 23:24
af Aimar
Sælir.

Ég er með ungling sem mig langar til að fylgjast með. Hún er með ipad, iphone og fartölvu.

Ég er búin að setja upp lás á wifi lanið en vil sjá helst alla notkun á þessum hlutum. Einnig er hún með inneign á símanum sem hún notar þegar wifi lokar.

Hvernig fylgist ég með allri notkun á þessum tólum? Forritum, netvafri og svo framvegis?

kv. Einn áhyggjufullur.

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Mán 20. Jan 2014 23:27
af Ripparinn
Mér finnst þetta ekki rétta leiðin punktur...

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Mán 20. Jan 2014 23:29
af Aimar
Takk fyrir þetta innlegg. En ég er að leita af lausnum ekki eigin skoðunum.

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Mán 20. Jan 2014 23:31
af dori
Það er rosalega erfitt að ætla að setja upp einhverjar hindranir og vesen til að fá krakka til að nota ekki eitthvað sem þér er illa við, það eru alltaf leiðir fram hjá því og þá er alveg eins líklegt að það væri bara farið eitthvert annað til að sinna því sem þú bannar (forrit/vefir).

Ef þú vilt virkilega (bara) fylgjast með öllu þá gætirðu náttúrulega sett öll tækin upp þannig að þau fari í gegnum netið þitt (notar VPN á þeim tækjum sem eru á ferðinni) og svo seturðu upp eitthvað sem loggar þetta í router. Þetta myndi samt pottþétt búa til frekar mikil gögn, þyrftir einhverja græju til að greina traffíkina sem ég hef ekki þekkingu á.

En til að geta gert þetta þarftu router sem þú getur tjúnað allskonar, tölva sem keyrir pfsense væri örugglega fín í það. Ég er hins vegar frekar mótfallinn njósnum og hindrunum. Traust og einlæg samskipti ættu allavega að vera fullreynd fyrst...

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Mán 20. Jan 2014 23:39
af Aimar
Mig langar til að koma að nokkrum punktum.

1. Enginn veit mína sögu eða barns míns.
2. Engum ber hér að segja mér hvað ég skuli gera eða ekki gera.
3. Að grípa til svona ráða er síðasta strá hvers föðurs.
4. Hér er ég að biðja um hjálp með vandamál sem getur verið viðkvæmt en nauðsýnlegt.

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Mán 20. Jan 2014 23:40
af natti
Svona þræðir eiga það til að færast mikið út í persónulegar skoðanir og oft allskonar vitleysu.

Engu að síður, ef þú vilt "fylgjast" með einhverju, þá að "loka" á það er alls ekki góð leið.
Þú getur t.d. ekki "fylgst" með wifi notkun ef þú lokar viðkomandi út af wifi netinu.
En ef þú leyfir henni að hafa aðgang að wifiinu, þá ertu amk í aðstöðu til að setja upp tól og tæki til að fylgjast með notkuninni.
Allar þær "varnir" sem þér getur dottið í hug að setja upp, er hægt að fara framhjá á einn eða annan hátt.
(Ef þetta er spurning um agavandamál, þá eina sem þú gerir með því að loka á eina leið er að viðkomandi finnur aðra leið...)
Flestir munu alltaf nota augljósu og einföldu leiðina, hence ef viðkomandi hefur óheftan aðgang, þá mun hann/hún ekki reyna að fara neitt í "kringum" aðganginn né reyna að fela slóð sína.
Og þar af leiðandi með því að loka ekki á neitt ertu í prime aðstöðu til að fylgjast með flestu.

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Þri 21. Jan 2014 00:05
af Nitruz
Ef þú hefur aðgang að tækjunum afhverju ekki að setja upp monitoring/spy software? það eru til fullt af keyloggers sem á að geta tekið upp hluti einns og þú talaðir um, þeir eru til fyrir iphone, android,pc og mac.

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Þri 21. Jan 2014 00:05
af tdog
Það er einfaldast fyrir þig að sitja bara yfir henni þegar hún er á netinu.

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Þri 21. Jan 2014 00:09
af rapport
Þetta er persónuverndarmál og brot á fjarskiptalögum, þú hefur ekki rétt til að lesa hennar einkamál.

Ég er sjálfur foreldri og þekki þessar áhyggjur = netvarinn hér heima.

Það sem ég mun gera þegar mín verður eldri og verður komin með svona fínni tæki, þá mun ég segja við hana að vegna þess hvernig internetið er, þá muni ég vilja kveikja á loggum í símanum/tölvunni o.s.frv.

Sá sem er verið að vakta verður að fá að vita af því = persónuverndarmál, annar er um njósnir að ræða og þá er þetta hreinn glæpur.

Ég mun útskýra hvernig gott lykilorð, dulkóðun o.þ.h. verndar símann hennar og gögnin sem og útskýra hvernig loggar sem synca við miðlægt drif sbr. dropbox geta skipt sköpum ef eitthvað bjátar á.

Að þetta sé gert fyrir hana.

Hún þarf svo að kunna þetta sjálf þegar hún verður eldri = þetta er nútíma kennsla til barnana.

En ekki fara á bakvið barnið þitt, ekki svona.

Hún mun aldrei geta treyst þér aftur + að það má túlka þetta sem einhvern perraskap.

Þú ert að njósna um og hnísast í skilaboðum, myndum og samskiptum táningsdóttur þinnar....

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Þri 21. Jan 2014 00:31
af Nitruz
Hreinn glæpur? það getur varla átt við fyrr en einstaklingurinn er orðinn sjálfráða eða hvað?
Þegar börn búa í foreldrahúsum fram yfir sjálfræðisaldur er foreldrum vitaskuld heimilt að setja börnum sínum skilyrði fyrir uppihaldinu. Er hér aðeins um almennt samningssamband að ræða. Hef allavega ekki heyrt mikið um einhver sakamál þar sem foreldrar eru að lesa einkaskilaboð hjá börnunum sínum. En auðvitað væri best ef að allir gætu bara hagað sér :)

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Þri 21. Jan 2014 00:48
af rapport
Nitruz skrifaði:Hreinn glæpur? það getur varla átt við fyrr en einstaklingurinn er orðinn sjálfráða eða hvað?

Það er aldrei hægt að semja frá sér réttindi og sérstaklega ekki ef þú ert barn.

Börn hafa rétt til einkalífs rétt eins og fullorðið fólk og fullorðið fólk á ekki að nota vald, tækni eða einhverja yfirburði til að hnísast nema láta barnið vita fyrirfram hvaða eftirlit fari fram, hvenær og hvernig.

Sbr. sambandið milli launþega og atvinnurekanda, það má nota eftirlit til að vakta en ekki til að hnísast.

Svo má líka bara spurja Persónuvernd, kanna hver afstaða þeirra er...

En ef barninu þínu er ekki treystandi með snjallsíma, fartölu, tölvu, facebook. o.s.frv. þá eru það engin mannréttindi að fá að nota þessi tæki og tól og þá er það þitt sem foreldri barnsins að standa með þínum ákvörðunum um að leyfa barninu ekki að nýta sér þessa tækni fyrr en á einhverjum tímapunkti.

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Þri 21. Jan 2014 01:22
af Minuz1
Nitruz skrifaði:Hreinn glæpur? það getur varla átt við fyrr en einstaklingurinn er orðinn sjálfráða eða hvað?
Þegar börn búa í foreldrahúsum fram yfir sjálfræðisaldur er foreldrum vitaskuld heimilt að setja börnum sínum skilyrði fyrir uppihaldinu. Er hér aðeins um almennt samningssamband að ræða. Hef allavega ekki heyrt mikið um einhver sakamál þar sem foreldrar eru að lesa einkaskilaboð hjá börnunum sínum. En auðvitað væri best ef að allir gætu bara hagað sér :)

„allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti“

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Þri 21. Jan 2014 01:26
af chaplin
tdog skrifaði:Það er einfaldast fyrir þig að sitja bara yfir henni þegar hún er á netinu.

Nákvæmlega.

Væri ekki betra að tala við stelpuna en ekki brjóta traustið sem hún ber til þín varðandi friðhelgi? Ef hún kemst af því að þú sért að fylgjast með því sem hún gerir getur þú gleymt því að hún treysti þér fyrir neinu.

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Þri 21. Jan 2014 02:01
af Olafst
Ef OP væri að biðja um uppeldisráð, þá væru þið kannski að hjálpa. En hann er ekki að því, eins og hefur komið fram.

Snögg google leit skilar þessu appi fyrir apple tækin: https://itunes.apple.com/gb/app/mobicip ... 53586?mt=8
Og þessu fyrir fyrir fartölvuna: http://www.qustodio.com/
En ég hef enga persónulega reynslu af þessu eða sambærilegum hugbúnaði til að geta mælt með eða á móti.

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Þri 21. Jan 2014 02:05
af bigggan
mundi frekar nota parent control eða eikvað svoleiðis sem blokkar siður istaðin. en herna er eikvað fra dr. phil sem kanski vilt.

http://www.drphil.com/articles/article/603

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Þri 21. Jan 2014 10:13
af Hrotti
Nitruz skrifaði:Ef þú hefur aðgang að tækjunum afhverju ekki að setja upp monitoring/spy software? það eru til fullt af keyloggers sem á að geta tekið upp hluti einns og þú talaðir um, þeir eru til fyrir iphone, android,pc og mac.

Þetta er lang besta lausnin ef að þú þarft að fylgjast með öllu, þú færð upplýsingar um hvert einasta keystroke og skjáskot með ákveðnu millibili osfr. Þessi forrit geta líka sent þér loggana á email þannig að þú þarft ekki einu sinni að fara í tækin hennar nema þegar að þú setur þetta inn.

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Þri 21. Jan 2014 13:31
af Stutturdreki
Væri ekki nær að setja upp local proxy og routa öllum tækjum í gegnum hann?

Er kannski ekki alveg með þetta 100% en þú átt að geta blockað síður/dómain og monitorað alla netumferð.

Td. http://www.anandtech.com/show/3715/family-proxy, og fullt af fleirri síðum á google.

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Þri 21. Jan 2014 15:32
af Bjosep
Eins og einhver benti á þá geturðu opnað fyrir allt og fylgst með henni þannig. Ef þú lokar á einhverja leið þá mun viðkomandi líklegast finna sér einhverja leið framhjá þeirri leið þannig að þú eigir engan möguleika á því að fylgjast með. Einnig er vert að hafa í huga að þessi vöktun virkar væntanlega einvörðungu á meðan viðkomandi veit ekki að verið sé að vakta hann. Um leið og það verður ljóst að þú sért að vakta viðkomandi þá mun viðkomandi líklegast breyta notkun sinni á þann hátt að þú getir ekki fylgst með, þ.e.a.s. ef einbeittur brotavilji er fyrir hendi.

Ég velti því einnig fyrir mér hversu lengi þú komir til með að nenna að lesa það sem kemur úr keyloggernum. Eins og einhver nefndi þá mun þetta líklegast skila þér alveg ómældu magni af gögnum og ég efast um að ég myndi nenna að lesa í gegnum einhverja annála frá keyloggerum svo vikum skipti.

Og án þess að ég ætli mér neitt að vera að veita nein foreldraráð að þá passarðu þig líka á því að þú gætir endað á því að sjá hana skrifa eitthvað sem þig langar ekki endilega að lesa en eitthvað sem væri ekki rangt en hún skrifaði einvörðungu á þeirri forsendu að hún teldi sig vera í einkasamtali (+NSA), þetta er svona hálfpartinn eins og að labba inn á barnið sitt fróa sér og ég held nú að flestir myndu vilja komast hjá því eins mikið og hægt væri.

Annars ertu ekki sá fyrsti til að spyrjast fyrir um keyloggera (eða svipaða vöktun) hérna og þræðirnir virðast alltaf enda eins. Gætir samt prufað að leita eftir þeim þráðum og sjá hvort aðrir hafa fengið betri ráð í þau skiptin.

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Þri 21. Jan 2014 17:49
af BugsyB
ég er í svipuðum sporum - ég nota bara opendns og loka á þá flokka sem ég vill og ef ulingurinn er með stæla þá tek ég fb og instagram af henni og þá verður hún strax góð aftur - og ef mjög ill fer þá er slökt á netinu og hún þarf að tæma inneigina sína á 3g sem er mjög slow og það er fljótt að ske.

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Þri 21. Jan 2014 20:27
af stefhauk
Ef barnið er í einhverskonar neyslu eða vafasömum félagsskap þá skil ég þetta alveg en ef þetta er venjulegt barn finnst mér persónulega frekar hart að gera þetta held að flestir unglingar vilji hafa smá privacy.

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Þri 21. Jan 2014 21:54
af Monk
Pabbi minn fór reglulega yfir tölvuna mína til að sjá hvað ég var að gera í henni þegar ég var unglingur. Ég var fljótur að læra að fela sporin og fara framhjá filterum og öðru sem var fyrir mér. Var alltaf skrefi á undan eftirlitinu þangað til hann hreinlega gafst upp á þessu.

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Þri 21. Jan 2014 22:49
af Squinchy
stefhauk skrifaði:Ef barnið er í einhverskonar neyslu eða vafasömum félagsskap þá skil ég þetta alveg en ef þetta er venjulegt barn finnst mér persónulega frekar hart að gera þetta held að flestir unglingar vilji hafa smá privacy.

+1

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Mið 22. Jan 2014 00:30
af Skippó
Held að keylogger forrit væru best í þetta veit svosem ekki neitt um þetta að viti.

Myndi ekki halda að það væri ólöglegt að "njósna" um krakkann ef hann er undir 18 ára og þú ert Foreldri/Forráðamaður, ef það ætti að vera ólöglegt að gera það þá ætti sennilega að vera ólöglegt fyrir foreldrið að sjá einkunir manns í skóla. En það held ég allavega, hef ekki kynnt mér það neitt nánar.

En auðvitað er það ekki alltaf besta leiðin að tala við unglinginn, en kannski til þess að hann "hati" þig ekki þegar hann kemst að því að þú ert að skoða alla notkunina hans þá væri kannski hægt að tala við hann um þetta og ef að það nægir ekki þá segja honum kannski að þú hefur ekki aðra kosti en að gera þetta, en þá ertu einnig að láta hann vita af því að þú ferð og fylgist með notkuninni og þá getur hann gert ráðstafanir á mót svosem lært að komast fram hjá því alskonar þannig.

En þetta eru bara mínar hugmyndir og tillögur og það er algjörlega þitt að meta að nota þær.
Vonandi var þetta hjálpsamt og kannski gefur þetta þér einhverjar hugmyndir.

En eins og ég segi alls ekki mitt að meta og veit ekkert hvernig ástandið er, en vona sárlega að þetta hafi hjálpað þér eitthvað.

-Skippó

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Mið 22. Jan 2014 10:30
af linenoise
Heyrði sögu af barni sem var klámblokkerað heima hjá sér. Það fór heim til vina sinna; braust fram hjá lélegu netvörnunum í skólanum; og stal wifi í hverfinu eins og vindurinn í staðinn. Ég veit ekki hversu sönn þessi saga er, heyrði hana frá kunningja, en þetta er vinkill.

Hjá mér höfum við aðallega reynt að taka umræðuna á þetta, en börn eru svo helvíti misjöfn (og foreldrar líka) að það virkar örugglega ekki fyrir alla.

Varðandi lagahliðina, þá er hún misvísandi og út um allar grundir.

Persónuvernd hefur gefið misvísandi álit á njósnum. Þetta svar er loðið og skrifað á "legaleze"
http://www.personuvernd.is/efst-a-baugi ... ar/nr/1582
tl;dr "It depends"

Þetta svar er afdráttarlausara: "Já, þú mátt njósna um börnin þín til að vernda þau". http://www.personuvernd.is/spurningar-og-svor/nr/684

Umboðsmaður barna segir: "Þú mátt ekki njósna um börnin þín ef þau eru að nota sína eigin accounta eða eigin tæki"
http://www.barn.is/adalsida/algengar_sp ... _id=178820

Re: Hvernig á að fylgjast með unglingum og búnaði!!

Sent: Fim 23. Jan 2014 16:37
af rapport
linenoise skrifaði:Heyrði sögu af barni sem var klámblokkerað heima hjá sér. Það fór heim til vina sinna; braust fram hjá lélegu netvörnunum í skólanum; og stal wifi í hverfinu eins og vindurinn í staðinn. Ég veit ekki hversu sönn þessi saga er, heyrði hana frá kunningja, en þetta er vinkill.

Hjá mér höfum við aðallega reynt að taka umræðuna á þetta, en börn eru svo helvíti misjöfn (og foreldrar líka) að það virkar örugglega ekki fyrir alla.

Varðandi lagahliðina, þá er hún misvísandi og út um allar grundir.

Persónuvernd hefur gefið misvísandi álit á njósnum. Þetta svar er loðið og skrifað á "legaleze"
http://www.personuvernd.is/efst-a-baugi ... ar/nr/1582
tl;dr "It depends"

Þetta svar er afdráttarlausara: "Já, þú mátt njósna um börnin þín til að vernda þau". http://www.personuvernd.is/spurningar-og-svor/nr/684

Umboðsmaður barna segir: "Þú mátt ekki njósna um börnin þín ef þau eru að nota sína eigin accounta eða eigin tæki"
http://www.barn.is/adalsida/algengar_sp ... _id=178820

Flott svar, useful info sem ég mun nota...