Síða 1 af 1

Router með usb(ekki printer né storage)

Sent: Fös 10. Jan 2014 17:59
af Skari
Sælir

Nú vantar mig ykkar aðstoð, er að vinna mikið með brunakerfi og sumt af þessum búnaði er með serial tengi og svo usb.

Ég hef verið að nota í nokkrum verkefnum usb-anywhere sem býr til virtual usb port og sendir það svo yfir ethernet kapal en nú er ég að hugsa aðeins stærra,
þá aðallega þegar ég er að service-a eitthvað.

Semsagt það sem mig langar er að router með mjög mjög góða drægni og svo með usb inngang sem ég get tengt búnaðinn við og myndi í gegnum það búa til virtual usb port á tölvunni minni og signalið síðan sent yfir wifi.

Þetta er svona last resort, búinn að leita á google og finn bara ef ég ætla að hafa prenter eða einhvern harðan disk .

Veit einhver hvort svona búnaður sé til sem myndi auðvelda líf mitt svo mikið ;)

Fyrifram þakkir

Óskar

Re: Router með usb(ekki printer né storage)

Sent: Fös 10. Jan 2014 19:06
af Cikster
Routerar eru ekki með þennan möguleika. Bara mjög einfalda drivera fyrir harðadiska og prentara.

Fljótleg google leit skilaði hinsvegar Belkin F5L009 sem öðrum ódýrari möguleika í staðinn fyrir Digi USB Anywhere búnaðinn.

http://community.spiceworks.com/how_to/ ... x-and-esxi

Re: Router með usb(ekki printer né storage)

Sent: Fös 10. Jan 2014 19:44
af tdog
Það er kannski meira vit í því að fá þér Ethernet í RS232 ferjald?

Re: Router með usb(ekki printer né storage)

Sent: Fös 10. Jan 2014 23:06
af Skari
Þakka ykkur báðum fyrir og að sjálfsögðu tdog að eftir að skoða RS232 yfir wifi þá er það betra ;)

Hafði hreinlega ekki dottið það bara í hug ;) var svo fastur í að finna lausn á þessu með usb en þetta með serial-ið er superb, búinn að
finna fínan búnað fyrir þetta en samt með hræðilega stutt wifi sem kannski skiptir ekki máli þar sem ég mun hvort sem er notast við router eða einhverskonar extender
á networkinu fyrir þetta ;)

Takk aftur

Re: Router með usb(ekki printer né storage)

Sent: Fös 10. Jan 2014 23:47
af Revenant
Getur notað búnað frá Moxa til að breyta serial yfir í IP. Síðan er hægt að tengja þetta við wifi með ap brú