Síða 1 af 1
Góð forrit til að gera tölvuna betri hraðari?
Sent: Mán 06. Jan 2014 17:16
af dbox
Getið þið mælt með einhverjum fríum forritum til að gera tölvuna hraðari og betri?
Sjálfur hef ég verið að nota C Cleaner og Glary Utilities eru ekki til einhver betri forrit?
Re: Góð forrit til að gera tölvuna betri hraðari?
Sent: Mán 06. Jan 2014 17:30
af Sucre
format og setja upp nýtt windows... ef það er ekki nóg þá kaupa ssd disk. eina sem virkar
Re: Góð forrit til að gera tölvuna betri hraðari?
Sent: Mán 06. Jan 2014 17:35
af upg8
Það eru engar góðar töfralausnir í þessum efnum og mörg hreinsiforrit gera jafnvel illt verra.
Hvernig tölvu ertu með og hvaða stýrikerfi? Ef þú ert með HDD þá getur þetta forrit
http://www.mydefrag.com/ hjálpað eitthvað pínulítið en þó ekki mikið. Eina defragmentation forritið sem sýnir mælanlegan mun samanborið við þann innbyggða í Windows.
Ertu með nóg RAM, ertu með mikið af forritum í gangi sem þurfa ekki að vera í gangi?
Re: Góð forrit til að gera tölvuna betri hraðari?
Sent: Mán 06. Jan 2014 17:36
af agust1337
dbox skrifaði:Getið þið mælt með einhverjum fríum forritum til að gera tölvuna hraðari og betri?
Sjálfur hef ég verið að nota C Cleaner og Glary Utilities eru ekki til einhver betri forrit?
Þetta gerir ekki tölvuna mikið hraðari svo að þú sjáir.
Eins og þegar þú notar Disk Defragmenter eða Defraggler þá sérð þú ekki beint að tölvan er hraðari, heldur gera þessi forrit vélbúnaðin hraðari eins og að laga til skjöl þannig að harði diskurinn sé ekki að leita um allt eftir því, má segja að hann fari í beina línu heldur en beyglaðar línur um diskinn sjálfann.
En, það besta til að gera tölvunna þína hraðari er að kaupa betri vélbúnað, enginn forrit munu láta vélbúnaðinn þinn hraðari.
Re: Góð forrit til að gera tölvuna betri hraðari?
Sent: Mán 06. Jan 2014 17:46
af dbox
er ekki með ssd disk
Re: Góð forrit til að gera tölvuna betri hraðari?
Sent: Mán 06. Jan 2014 17:48
af worghal
bara Download More Ram
Re: Góð forrit til að gera tölvuna betri hraðari?
Sent: Mán 06. Jan 2014 18:01
af upg8
Það getur ýmislegt hægt á tölvunni, það getur verið malware eða eitthvað verra. Þú gætir þurft að uppfæra driver fyrir eitthvað í tölvunni eða hugbúnað eða kannski er BIOS vanstilltur. HPET er dæmi um nokkuð sem er að hafa mismunandi áhrif á tölvur, flestar tölvur ættu að keyra betur með HPET en á öðrum kann að vera betra að slökkva á því. Ég þarf t.d. að slökkva á því á einni tölvu útaf driver sem virkar illa og höktir með HPET.
http://www.ghacks.net/2013/04/18/try-changing-hpet-settings-to-improve-your-pcs-performance/Það getur verið user profile á tölvunni sem er illa leikið og aðrir notendur í tölvunni kunna að virka betur, þá er einfaldast að stofna nýjan user.
MyDefrag raðar reyndar mikilvægum forritum betur og framar á diskinn. Defraggler gerir ekki neitt slíkt enda mydefrag eina forritið sem ég hef séð sjáanlegan mun á í benchmarks. En það er svo rosalega lítið að það skiptir ekki máli í flestum tilfellum.
Re: Góð forrit til að gera tölvuna betri hraðari?
Sent: Mán 06. Jan 2014 18:25
af Gúrú
agust1337 skrifaði:Eins og þegar þú notar Disk Defragmenter eða Defragger þá sérð þú ekki beint að tölvan er hraðari, heldur gera þessi forrit vélbúnaðin hraðari eins og að laga til skjöl þannig að harði diskurinn sé ekki að leita um allt eftir því, má segja að hann fari í beina línu heldur en beyglaðar línur um diskinn sjálfann.
En, það besta til að gera tölvunna þína hraðari er að kaupa betri vélbúnað, enginn forrit munu láta vélbúnaðinn þinn hraðari.
Þetta passar ekki alveg saman hjá þér.
Stutt og einföld útskýring á defragmenting er að harði diskurinn geymir þá bita sem eiga að vera saman, saman.
Úr:
A A B C B C A C B
Í:
A A A B B B C C C
Þetta lágmarkar vegalengdina (og þar með tímann) sem harðdiskanálin þarf að fara til að lesa skrá.

Sent: Mán 06. Jan 2014 18:26
af agust1337
Gúrú skrifaði:agust1337 skrifaði:Eins og þegar þú notar Disk Defragmenter eða Defragger þá sérð þú ekki beint að tölvan er hraðari, heldur gera þessi forrit vélbúnaðin hraðari eins og að laga til skjöl þannig að harði diskurinn sé ekki að leita um allt eftir því, má segja að hann fari í beina línu heldur en beyglaðar línur um diskinn sjálfann.
En, það besta til að gera tölvunna þína hraðari er að kaupa betri vélbúnað, enginn forrit munu láta vélbúnaðinn þinn hraðari.
Þetta passar ekki alveg saman hjá þér.
Stutt og einföld útskýring á defragmenting er að harði diskurinn geymir þá bita sem eiga að vera saman, saman.
Úr:
A A B C B C A C B
Í:
A A A B B B C C C
Þetta lágmarkar vegalengdina (og þar með tímann) sem harðdiskanálin þarf að fara til að lesa skrá.
Já, var ekki viss hvernig ég átti að útskýra það, eina sem mér datt í hug var þetta xD
Re: Góð forrit til að gera tölvuna betri hraðari?
Sent: Mán 06. Jan 2014 18:41
af upg8
Þessi aðferð sem þið eruð að lýsa við defragmentation er ekki sú hraðvirkasta. Heppilegra er að raða skrám eftir því hversu mikið þær eru notaðar og MyDefrag virkar sérstaklega vel vegna þessa.
Re: Góð forrit til að gera tölvuna betri hraðari?
Sent: Mán 06. Jan 2014 18:57
af fannar82
Tjah, ég var e-ð að vandræðast með gamlar fartölvur og mér fannst ég aldrei ná að boosta þeim e-ð spes,
endaði á að setja upp
http://lubuntu.net/ á þær og það svín virkar, hratt og þæginlegt .
Re: Góð forrit til að gera tölvuna betri hraðari?
Sent: Mán 06. Jan 2014 19:45
af Gúrú
upg8 skrifaði:Þessi aðferð sem þið eruð að lýsa við defragmentation er ekki sú hraðvirkasta. Heppilegra er að raða skrám eftir því hversu mikið þær eru notaðar og MyDefrag virkar sérstaklega vel vegna þessa.
Það er þá bara önnur aðferð sem tengist defragment ekki og er notuð samhliða defragmenti hjá MyDefrag.
Defragment eins og orðið gefur til kynna lýsir því einfaldlega að hafa ekki hluti í brotum hér og þar á diskinum.
Re: Góð forrit til að gera tölvuna betri hraðari?
Sent: Mán 06. Jan 2014 21:22
af daremo
services.msc
msconfig (task manager/startup í win8)
Þetta er allt sem þú þarft til að gera tölvuna "hraðari" - þeas, koma í veg fyrir að ónauðsynlegt drasl fer sjálfkrafa í gang þegar þú kveikir á tölvunni.
Defrag er svo eiginlega orðið óþarfi í dag. Win7/8 gerir það sjálft af og til þegar vélin er idle.
Re: Góð forrit til að gera tölvuna betri hraðari?
Sent: Mán 06. Jan 2014 21:34
af upg8
Hér eru benchmarks fyrir efasemdamenn, vissulega ekki miklu sem munar en það er þó munur...
http://www.hofmannc.de/en/windows-7-defragmenter-test/benchmarks.html