Nú er ég engin sérfræðingur í svona porta málum en mér hefur allavega hefur tekist að opna port í öðrum router-um áður án mikil vandræða. Nú aftur á móti er eins og ekkert virki. Nú fór ég inn í routerinn og prófaði hitt og þetta en fæ til dæmis alltaf "I could not see your service on..." fyrir ytri ip töluna hjá mér og það port sem ég var að reyna opna á http://canyouseeme.org/
Þetta gerði ég inní routernum:
Væntanlega er önnur hvor reglan óþarfi en ég setti inn báðar þar sem ég var að reyna fikta mig áfram. Er málið að ég er að gera eitthvað vitlaust í þessum stillingum hjá mér?
Re: Fæ ekki port til að opnast.
Sent: Mið 11. Des 2013 14:07
af Andri Þór H.
spurning að prófa fara eftir þessu videoi
Re: Fæ ekki port til að opnast.
Sent: Mið 11. Des 2013 15:04
af Sidious
Já var búin að sjá þetta video. Líka búin að leita af router-num mínum á portforward síðunni.
Re: Fæ ekki port til að opnast.
Sent: Mið 11. Des 2013 16:34
af arons4
Grunar að síður eins og canyouseeme treysti á eitthvað sé að hlusta á portinu sem er valið á tölvunni sem þetta er routeað á. Þannig að þetta gæti vel verið að virka. test2 er óþarfi.
Re: Fæ ekki port til að opnast.
Sent: Mið 11. Des 2013 16:45
af tdog
Ertu pottþétt með kveikt á Plex Media Server á þessari vél?
Re: Fæ ekki port til að opnast.
Sent: Mið 11. Des 2013 17:03
af intenz
Kveiktu á uPnP á routernum.
Re: Fæ ekki port til að opnast.
Sent: Mið 11. Des 2013 17:10
af Hannesinn
Getur verið að þú þurfir að haka í enabled þarna efst?
Ég er með TEW-812DRU og ég fattaði ekkert af hverju þetta virkaði ekki hjá mér fyrr en ég sá akkurat efst að það þurfti að enable'a þessa function og þá fuku reglurnar í gang. Lítur samt öðruvísi út hjá mér, þannig að það þarf ekkert að stemma.
Re: Fæ ekki port til að opnast.
Sent: Mið 11. Des 2013 17:22
af intenz
Hannesinn skrifaði:Getur verið að þú þurfir að haka í enabled þarna efst?
Ég er með TEW-812DRU og ég fattaði ekkert af hverju þetta virkaði ekki hjá mér fyrr en ég sá akkurat efst að það þurfti að enable'a þessa function og þá fuku reglurnar í gang. Lítur samt öðruvísi út hjá mér, þannig að það þarf ekkert að stemma.
Út frá smá gúggli á ekki að búa til þessar reglur í eldveggnum heldur í "Virtual Server".
Re: Fæ ekki port til að opnast.
Sent: Mið 11. Des 2013 17:36
af Hannesinn
Það er bara hægt að opna fyrir einstaka port í virtual server, ekki port range eins og hér fyrir ofan. Hjá mér er það gert í "Gaming Rules" og ég er ekki með "Firewall Rules."
Það þarf smá pirring til að lesa sig í gegnum þetta gui hjá trendnet, þekkt færibæri eins og firewall eða nat er varla að vinna þar.
Re: Fæ ekki port til að opnast.
Sent: Mið 11. Des 2013 18:19
af Sidious
Það er kveikt á upnp og er hakað í enabled í firewall rules. Ég hef ekkert breytt neinu í virtual server flipanum.
Kveikt á Plex server já, hann tengist á port 25737 ef að ég leyfi honum að sjá um það sjálfur ef að ég reyni að velja port sem ég taldi vera opið þá nær hann ekki að tengjast.
Skal annars prófa að setja inn reglur í virtual server og sjá hvað gerist þá.
Re: Fæ ekki port til að opnast.
Sent: Mið 11. Des 2013 20:07
af intenz
Sidious skrifaði:Það er kveikt á upnp og er hakað í enabled í firewall rules. Ég hef ekkert breytt neinu í virtual server flipanum.
Kveikt á Plex server já, hann tengist á port 25737 ef að ég leyfi honum að sjá um það sjálfur ef að ég reyni að velja port sem ég taldi vera opið þá nær hann ekki að tengjast.
Skal annars prófa að setja inn reglur í virtual server og sjá hvað gerist þá.
Ef Plex nær að tengjast á öðru porti, er þetta þá ekki komið?
Re: Fæ ekki port til að opnast.
Sent: Mið 11. Des 2013 21:18
af Sidious
Jújú svosem alveg komið. Hefði viljað finna út úr þessu samt, pirrandi þegar maður nær ekki að fatta svona.
Já nei það breytti engu nema ég hafi verið að gera þetta vitlaust. Það eru stillingar um private og public port, ég setti bara inn port 32400 í bæði. Annars er þeim ly´st svona í bælklingnum.
Private Port – Enter the port number required by your device. Refer to the connecting device’s documentation for reference to the network port(s) required. Public Port – Enter the port number used to access the device from the Internet.