Síða 1 af 1

HR - New Technology

Sent: Lau 07. Des 2013 23:00
af Xyron
Áhugaverður áfangi sem er kenndur í HR
http://www.youtube.com/watch?v=L0p9xU_XIdY

Re: HR - New Technology

Sent: Lau 07. Des 2013 23:18
af rapport
Líklega kennt undir hatti viðskiptafræði.

Re: HR - New Technology

Sent: Lau 07. Des 2013 23:34
af Baldurmar
Rapport, fyrsta setningin í myndbandinu er "The school of Computer Science at Reykjavik University offers..."

Re: HR - New Technology

Sent: Sun 08. Des 2013 02:41
af DJOli
Ekki er hægt að komast í háskólann án þess að klára x margar einingar í framhaldsskóla, eða hvað?

Eg er svo mikill tossi að ég kláraði eins og eina önn í framhaldsskóla. Eg gæti farið aftur, og ætla mér það, en það er engin leið að 'hoppa' yfir framhaldsskólanámið og einingakröfurnar í háskóla, eða hvað?

Re: HR - New Technology

Sent: Sun 08. Des 2013 02:49
af tdog
Framhaldsskólinn kennir þér nauðsynleg atriði sem þú þarft að hafa á hreinu til þess að fara í háskólann, ef að þú gætir bara hoppað yfir framhaldsskólastigið er alveg eins hægt að sleppa því og senda fólk beint í háskóla eftir grunnskólapróf.

Re: HR - New Technology

Sent: Sun 08. Des 2013 03:38
af Viktor
Var í kúrsi í HÍ sem heitir "Tölvutækni og samfélagið" sem virðist vera svipað.

Re: HR - New Technology

Sent: Sun 08. Des 2013 03:40
af intenz
Þetta er mjög góður áfangi.

DJOli skrifaði:Ekki er hægt að komast í háskólann án þess að klára x margar einingar í framhaldsskóla, eða hvað?

Eg er svo mikill tossi að ég kláraði eins og eina önn í framhaldsskóla. Eg gæti farið aftur, og ætla mér það, en það er engin leið að 'hoppa' yfir framhaldsskólanámið og einingakröfurnar í háskóla, eða hvað?

Haha bjartsýnn. Ef það væri hægt myndi enginn fara í framhaldsskóla heldur bara stökkva beint í háskóla. En eins og tdog segir þá undirbýr framhaldsskólinn mann fyrir háskólann.

Getur skoðað http://www.keilir.net/haskolabru

Re: HR - New Technology

Sent: Sun 08. Des 2013 04:07
af DJOli
intenz skrifaði:Þetta er mjög góður áfangi.

DJOli skrifaði:Ekki er hægt að komast í háskólann án þess að klára x margar einingar í framhaldsskóla, eða hvað?

Eg er svo mikill tossi að ég kláraði eins og eina önn í framhaldsskóla. Eg gæti farið aftur, og ætla mér það, en það er engin leið að 'hoppa' yfir framhaldsskólanámið og einingakröfurnar í háskóla, eða hvað?

Haha bjartsýnn. Ef það væri hægt myndi enginn fara í framhaldsskóla heldur bara stökkva beint í háskóla. En eins og tdog segir þá undirbýr framhaldsskólinn mann fyrir háskólann.

Getur skoðað http://www.keilir.net/haskolabru


Háskólabrú skrifaði:Umsækjendur skulu hafa náð 25 ára aldri og hafa lokið 70 einingum á framhaldsskólastigi. Þar af þurfa umsækjendur að hafa lokið að minnsta kosti 6 einingum í stærðfræði, íslensku og ensku.


Mynd

Re: HR - New Technology

Sent: Sun 08. Des 2013 12:04
af upg8
Reyndar geta svona námskeið eins og þetta virkað sem hvatning til frekara náms og væri því ekki slæm hugmynd að kenna á menntaskólastigi eða hafa námskeiðin opin að þvi gefnu að nemar borgi fullt verð fyrir. Þetta virðist t.d. ekki vera námskeið sem þarfnast flókninna útreikninga heldur meira verið að fara yfir söguna og smá greiningu á markaðsþróun. þetta eru alveg réttmætar vangaveltur hjá DJOli.

Það myndi ekki veita nein réttindi þótt það væri hægt að sitja svona námskeið og því ættu háskólamenntaðir ekki að taka því sem ógn þótt aðrir kynni sér málin en auðvitað er rétt að þeir hafi forgang sem eru að læra til réttinda.

Re: HR - New Technology

Sent: Sun 08. Des 2013 12:58
af Baldurmar
Ef að þú ert ekki með stúdentspróf þá mæli ég með Frumgreinanáminu í HR, er þar sjálfur núna á þriðju önn. Þetta er mjög krefjandi, en ótrúlega skemmtilegt. Ég held að síðasti séns til að sækja um næstu önn hafi verið 5.des en það mætti auðvitað prófa ennþá, í versta falli færðu nei og ert í nákvæmlega sömu stöðu og þú ert í núna. Svo er alltaf hægt að sækja um næsta sumar fyrir haust önn ;)