Síða 1 af 1

DNS og Roku 3

Sent: Fös 06. Des 2013 23:03
af ljónið
Sælir allir. Er með Roku3 og er að lenda í vandræðum með DNS. Er með Cisco router og svo Neatgear AP sem ég er búinn að stilla DNS á AP með USA DNS frá playmotv en AP sendir bara 192.168.1.254 frá sér sem kemur væntalega frá Ciscoinum.

Þegar AP er stilltur með US DNS þá ætti hann að senda tölur frá US en hann gerir það ekki.

Er búinn að liggja 5 tíma yfir þessu og þetta ætti að virka en virkar ekki.

Með kveðju
Ljónið

Ps. Ef ég stilli DNS á tölvum (sem Roku3 leyfir ekki) þá virkar Netflixið

Re: DNS og Roku 3

Sent: Fös 06. Des 2013 23:15
af einarth
Þetta virkar ekki svona - þú ert líklega bara að stilla hvaða DNS web gui'ið á AP notar fyrir DNS lookup..

Routerinn þinn er eini DHCP serverinn á netinu þínu.

Ein leið til að ná þessu fram væri að nota router fyrir innan router - keyra annan DHCP á honum með öðrum dns'um og tengja bara Roku í hann - allt hitt á fremri routerinn..

Kv, Einar.

Re: DNS og Roku 3

Sent: Fös 06. Des 2013 23:31
af ljónið
Sæll Einar. Er með Asus RT-AC66R router og hef verið að reyna þetta án árangurs. Tengi RT-AC66R við lanið(með snúru) stilli hann sem Router og DHCP, stilli DND á USA en ekkert virkar. Er Ciscoinn að yfirtaka þetta allt? Er hjá Símafélaginu.

Re: DNS og Roku 3

Sent: Fös 06. Des 2013 23:48
af einarth
Verður að tengja wan port a asus við lanið.

Re: DNS og Roku 3

Sent: Lau 07. Des 2013 00:24
af ljónið
Takk Einar. Þetta var vandamálið.

Það er rosalega gott að hafa fólk eins og Einar til að aðstoða fólk.

Takk fyrir hjálpina
:P