Síða 1 af 1

Ping fix?

Sent: Þri 12. Nóv 2013 10:55
af SergioMyth
Góðan og blessaðan!

Lumar einhver á góðu ráði til þess að laga ping? :)

Re: Ping fix?

Sent: Þri 12. Nóv 2013 11:00
af Garri
Öööhh.. pong?

Re: Ping fix?

Sent: Þri 12. Nóv 2013 11:03
af AntiTrust
Gætiru gefið örlítið (lesist:mikið) betri lýsingu á vandamálinu, villum sem koma, tækjum sem eru notuð, stýrikerfi, staðlar etc?

Re: Ping fix?

Sent: Þri 12. Nóv 2013 11:05
af GuðjónR
SergioMyth skrifaði:Góðan og blessaðan!

Lumar einhver á góðu ráði til þess að laga ping? :)


Restarta router, nota netkapal í stað wi-fi, tengjast serverum sem eru nær þér svo eitthvað sé nefnt.

Re: Ping fix?

Sent: Þri 12. Nóv 2013 11:16
af Garri
Til að byrja með.. ertu að pinga á milli tölva í lókal lani eða ertu að pinga út fyrir lanið?

Re: Ping fix?

Sent: Þri 12. Nóv 2013 15:49
af SergioMyth
afsakið þetta drengir þetta slæma ping á sér stað í net leikjum mw3, cod4 o.fl. :) Þá er ég ekki bein tengdur routernum og lagga/fæ hátt ping! :) Hef restartað routernum ;)

Re: Ping fix?

Sent: Þri 12. Nóv 2013 16:01
af AntiTrust
Getur nánast bókað að þetta sé WiFi issue. Prufaðu aðrar rásir og færðu routerinn til ef það hjálpar, en þú færð aldrei jafn stabílt samband á WLAN og á LAN.

Re: Ping fix?

Sent: Þri 12. Nóv 2013 16:09
af SolidFeather
Ertað tengjast server sem er í Kína?

Re: Ping fix?

Sent: Þri 12. Nóv 2013 17:27
af GullMoli
SergioMyth skrifaði:afsakið þetta drengir þetta slæma ping á sér stað í net leikjum mw3, cod4 o.fl. :) Þá er ég ekki bein tengdur routernum og lagga/fæ hátt ping! :) Hef restartað routernum ;)


Hvar ertu með internet? Ef þú ert hjá Hringdu þá er það nánast pottþétt vandamálið.

Re: Ping fix?

Sent: Þri 12. Nóv 2013 19:38
af Viktor
Regla númer eitt í netleikjum: Ekki nota WIFI !

Mynd

Re: Ping fix?

Sent: Mið 13. Nóv 2013 00:50
af fannar82
Úff, ekki að ég sé sá besti í WiFi sendingum, en þá held ég að ef þú ert inn á sömu rás\tíðni og annar router eða heimilistæki í kringum þig þá getur það búið til aukapakka sem kortið þitt er að lesa, ss checkar fyrst hvort að þetta sé pakki sem er frá þessum SSID og ef það er consistant flæði af pökkum gæti það endað í smá laggi þó svo að hann sé fljótur að hafna þeim er smá bið á pakkanum sem þú villt fá á meðan hann checkar á pakkanum sem hann er að fara fleygja.

Einnig minnir mig að ef þú villt að router x og y senda engan veginn á sömu pakkatíðni þurfa 3 rásir að vera á milli ss x á 1 og y þá á 4-11
það er ágætis grein um þetta hér (rétt hljóp yfir hana nennti ekki að lesa en hún virðist vera nokkuð rétt)
http://www.smallnetbuilder.com/wireless ... less-crowd

Re: Ping fix?

Sent: Mið 13. Nóv 2013 08:19
af beatmaster
Ekki spila á WiFi, það getur alveg sloppið en það er svo margt sem að getur truflað að það er ekkert skrítið þótt að það sleppi ekki, ef að þetta lagg er líka þegar að þú ert snúrutengdur þá er þetta netveitunni þinni væntanlega um að kenna eða routerinn þinn er bilaður.

Til að draga þetta saman:

Lagg á Wifi en ekkert lagg í snúru=Tiltölulega eðlilegt, fer eftir ytri aðstæðum

Lagg á Wifi og líka lagg snúrutengdur=Ekki eðlilegt, bilaður router eða slæmur þjónustuaðili

Re: Ping fix?

Sent: Mið 13. Nóv 2013 10:15
af SergioMyth
Takk fyrir góð svör en nei spila mest á USA/Evrópu serverum! :)